Morgunblaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
T
HE Joshua Tree er platan sem
gerði meðlimi U2 að stórstjörnum.
Fram að því var um að ræða sæmi-
lega vinsæla sveit sem hafði átt
nokkuð óvæntan smell með plöt-
unni War árið 1983, plata sem gaf til kynna að
sveitin væri á öruggri siglingu upp í meistara-
deildina. Sveitin setti hins vegar sjálf strik í
reikninginn með því að gefa út plötu alls ólíka
War strax ári síðar. Um var að ræða The Unfor-
gettable Fire, öllu víraðra og þyngra verk. List-
ræn heilindi liðsmanna voru greinilega alger,
svo alger að meðlimir voru tilbúnir að fórna
vinningsformúlu og öllu því gulli og þeim grænu
skógum sem biðu handan við hornið fyrir þessi
blessuðu heilindi. „Hvílíkir vitleysingar,“ hljóta
markaðsmennirnir að hafa hugsað. Eftir The
Unforgettable Fire hefðu hlutirnir getað dottið
á hvorn veginn sem var, U2 átti það svo sem í
sér að stíma áfram, slík hafði þrjóskan verið
fram til þessa en platan hefði líka hæglega getað
orðið banabiti sveitarinnar. Tveimur árum síðar
var enn ekkert að gerast í plötumálum og útlitið
ekkert sérstaklega gott. Var sveitin kannski bú-
in á því eftir allt saman?
Reglubókin endurskrifuð
Það var svo í mars árið 1987 sem lýðum varð
ljóst að einurðin og hugrekkið, sem meðlimir
höfðu sýnt þremur árum áður, var engin til-
viljun. Eftir The Joshua Tree varð U2 að
stærstu – og vinsælustu – sveit heims, titill sem
hún hefur haldið í æ síðan, árangur sem verður
að teljast hreint ótrúlegur. U2 gerði hlutina á
sinn hátt en í þessari umferð fór hún með það
einu, nei nokkrum skrefum lengra. Reglubók
rokksins var endurskrifuð með The Joshua
Tree, plata þar sem orðið „stórt“ er algert lyk-
ilorð. Hvort sem litið er til dramatísks plötu-
umslagsins eða laganna sjálfra var þetta dæmi
sem gat í raun ekki lifað annars staðar en á risa-
leikvöngum frammi fyrir tugum þúsunda. Þetta
var einfaldlega þannig tónlist. En ekki að hún
hafi verið sniðin þannig af tölfræðilegum kulda,
þvert á móti lagði Bono hjartað í vinnuna í gegn-
um plötuna, hvort sem hann var að velta fyrir
sér trúnni, spá í örlög námuverkamanna, harm
argentínskra mæðra eða þjáningar eiturlyfja-
neytenda. Fókusinn var allt frá beittri sam-
félagslegri gagnrýni yfir í hugleiðingar um ein-
manakennd mannsins; lögin grimmúðleg
(„Bullet The Blue Sky“, „Exit“), falleg („Runn-
ing To Stand Still“, „One Tree Hill“), hádrama-
tísk („Red Hill Mining Town“, „Mothers Of The
Disappeared“) og allt þar á milli. Það var mikið
undir á plötunni. Og það merkilegasta auðvitað
að U2 náði öllu í höfn og það glæsilega. Meist-
araverk, tímamótaverk, ef einhvern tíma er
hægt að tala um slíkt.
Það er athyglisvert en kemur kannski ekki á
óvart að þessi dáða og vinsæla sveit hefur farið
varlega í að blóðmjólka aðdáendur. Þannig er
endurútgáfan á The Joshua Tree ekki ódýrt
peningaplokk og hér verður fullyrt að hún er
hverrar krónu virði. Býsnin öll af b-hliðum og
áður óheyrðum lögum er þar að finna sem gerir
þetta þess virði fyrir þá sem þegar eru búnir að
Mikil músík
verður meiri
Plata U2, The Joshua Tree, markaði tímamót
á ferli sveitarinnar þegar hún kom út fyrir tuttugu
árum Tvítugsafmæli þessa öndvegisgrips
verður fagnað með viðamikilli endurútgáfu
Úr Dyflinni Larry Mullen Jr., Bono, Adam
Clayton og The Edge fyrir 20 árum.
TÓNLIST»
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Ljónið glennti upp ginið ogtróð marvaða í aurnumog bleytunni, dyggilegastutt af ríflega 88 þúsund
aðdáendum. Temjarinn var ekki
mikill fyrir mann að sjá þar sem
hann stjáklaði andspænis því. Var
það mál manna að þetta yrði ójafn
leikur. Svo gengu þau á hólm, ljón-
ið og temjarinn. Til að gera langa
sögu stutta vann sá síðarnefndi
öruggan sigur, dró ljónið sundur
og saman í háði og spotti strax frá
upphafi. Ekki svo að skilja að kon-
ungur dýranna reyndi ekki að
koma höggi á andstæðing sinn, það
gerði hann og á tímabili með góð-
um árangri, en þegar upp var stað-
ið var temjarinn einfaldlega of lip-
ur og snar í snúningum fyrir hann.
Loks sveið ljóninu svo sárt undan
svipunni að það tók þann kost
vænstan að skríða inn í fylgsni sitt
– með skottið milli fóta.
Gömlu kraftaknattspyrnuna bar
upp á sker á Wembley-leikvang-
inum í Lundúnum síðastliðinn mið-
vikudag þegar sprækt lið Króatíu
lagði þunga, raga og hugmynda-
snauða Englendinga með sannfær-
andi hætti. Það þýðir að þeir síð-
arnefndu sitja heima þegar flautað
verður til leiks í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins í Sviss og Austurríki
næsta sumar.
Auðvitað vantaði Rooney, Owen,
Terry og Ferdinand. En það er
engin afsökun. Stórveldið á að eiga
fleiri tromp á hendi. Og hvers
vegna eru hæfileikaríkir leikmenn
á borð við Gerrard, Lampard og
Cole fastir í fjötrum knattspyrnu
gærdagsins þegar þeir smeygja
ljónatreyjunni yfir hvirfilinn? Og
hverjum datt í hug að ráða Steve
McClaren til starfa? En það er
önnur saga, leyfum Englendingum
að sleikja sárin í friði. Ekki veitir
af.
Bjart framundan hjá Króötum
Beinum sjónum okkar frekar að
sigurvegurunum, Króötum. Eftir
nokkur mögur ár tefla þeir nú að
nýju fram firnasterku liði sem er
til alls líklegt á EM næsta sumar.
Mörgum er í fersku minni frækið
lið hins nýbakaða lýðveldis sem
vann til bronsverðlauna á Heims-
meistaramótinu í Frakklandi sum-
arið 1998. Nöfn eins og Davor
Šuker, sem varð markakóngur
mótsins, Zvonimir Boban, Robert
Prosinecki, Igor Štimac og Robert
Jarni hringja örugglega bjöllum.
Nú velta menn því fyrir sér hvort
annað slíkt lið sé í uppsiglingu.
Svo skemmtilega vill til að þjálf-
ari króatíska landsliðsins nú var
einmitt lykilmaður í gullaldarliðinu
á sínum tíma, Slaven Bilic. Kyn-
legur kvistur sem auk afreka sinna
í sparkheimum hefur lokið prófi í
lögfræði, talar fjögur tungumál
reiprennandi og er meðlimur í
rokkhljómsveit. Bilic lagði sig allan
fram á velli, en hann lék m.a. með
ensku félögunum West Ham Unit-
ed og Everton, og treður sömu slóð
sem þjálfari. Hann á líf sitt og limi
undir hverri spyrnu líkt og við-
brögð hans á Wembley-leikvang-
inum gáfu glöggt til kynna.
Bilic þjálfaði lið Króatíu skipað
leikmönnum 21 árs og yngri um
nokkurt skeið áður en hann tók við
aðalliðinu sumarið 2006.
Markviss sókn og sterk vörn
Árangur liðsins undir stjórn Bi-
lic hefur verið frábær og aðeins
eitt land fékk fleiri stig í undan-
keppni EM að þessu sinni, Grikk-
land. Króatar unnu E-riðilinn með
yfirburðum, hlutu 29 stig en Rúss-
ar sem höfnuðu í öðru sæti fengu
24.
Króatar fundu netmöskvana 28
sinnum í tólf leikjum og fengu að-
eins á sig átta mörk. Aðeins Þjóð-
verjar og Slóvakar skoruðu meira.
Sóknarleikur Króata hefur aflað
liðinu aðdáenda um alla Evrópu
» Loks sveið ljóninusvo sárt undan svip-
unni að það tók þann
kost vænstan að skríða
inn í fylgsni sitt – með
skottið milli fóta.
KNATTSPYRNA»
Ljónatemjarinn frá Zagreb
Landslið Króatíu sem sló Englendinga út úr Evrópumeistarakeppninni þykir búið miklu atgervi
Yamaha RX-V661
7 x 90W, RMS (7.1)
SCENE
3 x HDMI,1080p stuðningur
iPod Ready
Verð 69.995 kr.
Yamaha RX-V861
7 x 105W, RMS (7.1)
SCENE
3 x HDMI, 1080p stuðningur
Uppskölun í HDMI: 1080i
iPod Ready
Verð 94.995 kr.
Er hljóðið jafnstórt og m
Ya
7 x
Do
5 x
Up
iPo
V