Morgunblaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 21
Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson
audur@jonsdottir og totil@totil.com
Þ
að er bókstaflega hægt
að stela af manni andlit-
inu, stundi Þórarinn of-
an í fartölvuna sína.
Ekstrabladet.dk fjallar
hérna um Facebook.com, heimasíð-
una sem við og vinir okkar hafa
uppgötvað á síðustu dögum – og er
nú í tísku að nota til að hafa upp á
gömlum kunningjum. Því miður
fara stundum glæpamenn á síðuna
til að stela auðkennum fólks. Því er
ekki ráðlegt að gefa meiri upplýs-
ingar á Facebook.com en maður
myndi gefa ókunnugum náunga á
strætóstoppistöð. Skemmtilega orð-
að hjá þeim. Hvað myndi maður
svosem segja við ókunnugan
náunga í strætó? Sæll, ég heiti Þór-
arinn Leifsson. Má bjóða þér heim-
ilisfangið mitt og kennitöluna mína?
Auður kvaðst hafa lesið aðra
grein líkt og klippta út úr vís-
indaskáldsögu á spiegel.de/
international. Hún fjallaði um vís-
indamenn sem flögguðu því að nýj-
ar rannsóknir bentu ótvírætt til
þess að skaðsemi geislavirkni væri
ofmetin. Rússinn Clemens Woda og
teymi hans störfuðu við rannsóknir
í Síberíu á svæði sem hafði verið
innsiglað síðan Sovétmenn þróuðu
fyrstu atómsprengjuna sína þar
seint á sjötta áratugnum. Þá hafði
átt sér stað umhverfisslys með
þeim afleiðingum að fjöldi fólks lést
og börn fæddust afmynduð. Nú
reyndu Woda og teymi hans að
sanna að þetta væru allt ýkjur og
náttúrlega höfðu þeir stuðað um-
hverfisverndarsinna. Greenpeace-
samtökin bentu til dæmis félögun-
um á að um 272.000 manns hefðu
farist í umhverfisslysinu.
Sniff, sniff, snörlaði Þórarinn og
þefaði út í loftið líkt og risavaxinn
hamstur í leit að æti. Pútin! sagði
hann loks. Ég finn lyktina af ráða-
bruggi Vladimirs Pútins Rússlands-
forseta. Auður heyrði varla brand-
arann. Brátt fann hún aðra grein á
spiegel.de/international sem bar
líka með sér kalda-stríðs-stemn-
ingu. Þar var fjallað um skoðanir
Helmuts Schmidt, fyrrverandi
kanslara Þýskalands á tíræðisaldri,
sem hafði nýverið fullyrt að Banda-
ríkin væru hættulegasta þjóð í
heimi – sama hvað hver segði. Auk
þess hefðu Rússar ekki ráðist á
annað ríki síðan á Gorbatsjov-
árunum. Af greininni að dæma var
þessi ályktun hans vægast sagt um-
deild. Sérstaklega í ljósi þess að
Helmut hafði verið kanslari Þýska-
lands í átta ár og jafnframt hvata-
maður að auknum vígbúnaði
Bandaríkjanna í kalda stríðinu.
Hvaða, hvaða, sagði Þórarinn
þegar hann hafði heyrt um tiltæki
öldungsins. Bandaríkjamenn eiga
sér viðreisnar von. Samkvæmt el-
periodico.com, og fleiri miðlum,
hyggst sjónvarpsstjarnan Oprah
Winfrey veita demókratanum Bar-
ack Obama liðsinni sitt í baráttu
hans fyrir forsetastól landsins. Sá
ætti að senda henni vænan blóma-
vönd því hún hefur margoft verið
tilnefnd af fjölmiðlum sem valda-
mesta kona Vesturlanda. Sumir
segja að hún sé ókrýnd drottning
Bandaríkjanna. Það er útlit fyrir að
næstu kosningar Bandaríkjamanna
verði útkljáðar í sjónvarpi, sá miðill
hefur víst ekki haft jafn mikið vægi
í kosningum síðan Nixon tapaði fyr-
ir Kennedy í beinni útsendingu fyr-
ir tæpri hálfri öld.
Netið kemur nú líka sterkt inn
sem miðill dagsins í dag, sagði Auð-
ur. Ég get sagt þér sæta ástarsögu
sem styður það: Patrick Moberg, 21
ára gamall vefsmiður, sá skyndilega
draumadísina sína þegar hann var í
þann mund að taka neðanjarðarlest
í New York. Þetta var ást við fyrstu
sýn! Í ofboðinu missti hann af henni
– en flýtti sér að teikna mynd og
opna vefsíðuna nygirlofmy-
dreams.com í von um að hafa upp á
henni. Vinur hennar sá síðuna og
nú eru þau Patrick á föstu. Og auð-
vitað vill Hollywood búa til bíómynd
um herlegheitin. Á aftenposten.no
kemur svo fram að skötuhjúin vilji
helst að Natalie Portman og Jake
Gyllenhaal leiki þau á hvíta tjald-
inu.
Það skil ég vel, sagði Þórarinn
hugsi. Hver gæti leikið okkur í bíó-
mynd?
Auður velti því fyrir sér eitt and-
artak og kom svo með svarið: Jack
Nicholson og Roseanne Barr.
Að sýna sitt rétta andlit
FÖST Í FRÉTTANETI»
Höfundar eru heimavinnandi hjón í
Barcelona.
Það er útlit fyrir að næstu
kosningar Bandaríkja-
manna verði útkljáðar
í sjónvarpi, sá miðill hefur
víst ekki haft jafn mikið
vægi í kosningum
síðan Nixon tapaði fyrir
Kennedy.
Málstofa í Landbúnaðarháskóla Íslands
26. nóvember kl. 15 á Hvanneyri
Tilraunir með áburð á
kartöflur
Hvernig nálgumst við
viðfangsefnin?
Á árunum 2002-4 voru gerðar tilraunir með
áburð á kartöflur á kartöfluökrum sunnlenskra
bænda og á tilraunastöðinni á Korpu. Meðal
annars kom fram að flýta má kartöflusprettu
í móajarðvegi (brúnjörð) um viku og auka
uppskeru með því að dreifa sérstökum
flýtiáburði í sjálfa kartöflurásina. Kartöflur
nota mikið kalí og það er nauðsynlegt til að
tryggja gæði kartaflna. Kalíáburð ætti að bera
á í samræmi við upptöku, en hann hefur verið
ofnotaður og má ætla að það hafi óheppileg
áhrif á jarðveg og upptöku mikilvægra efna
eins og magnesíums og kalsíums. Fosfór og
nitur eru mikilvæg áburðarefni, en þörfin er
misjöfn og í eldri tilraunum koma fram mjög
breytileg áhrif áburðar. Sérstaklega verður
fjallað um N×P×K-tilraunir frá 2004 sem
voru 3×3×2 þáttatilraunir án endurtekningar.
Fjallað verður um uppgjör slíkra tilrauna, gildi
þeirra og takmarkanir. Rætt verður um val
tilraunaverkefna og áhersla lögð á mikilvægi
sáðskipta í kartöfluræktun eins og annarri
akuryrkju.
Hólmgeir
Björnsson er
fyrirlesari að
þessu sinni.
Hólmgeir nam
búvísindi með
jarðrækt og
jarðvegsfræði
sem aðalgrein í
Landbúnaðarháskólanum
á Ultuna í Svíþjóð og
stundaði framhaldsnám í
Cornellháskóla með tölfræði
sem aðalgrein og lauk
doktorsprófi 1974. Milli
námsdvala erlendis 1962-66
var hann fyrst starfsmaður
tilraunastöðvarinnar á
Akureyri og svo kennari
á Hvanneyri, og frá 1969
var hann starfsmaður
Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins. Eftir
sameiningu stofnana
2005 hlaut hann stöðu
prófesssors í LbhÍ, en er nú
á eftirlaunum.
Er lögheimili þitt
rétt skráð í þjóðskrá?
Nú er unnið að frágangi íbúaskrár 1. desember. Mikilvægt er að
lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá.
Hvað er lögheimili?
Samkvæmt lögheimilislögum er lögheimili sá staður, þar sem
maður hefur fasta búsetu.
Hvað er föst búseta?
Föst búseta er á þeim stað þar sem maður hefur bækistöð sína,
dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína
og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal
jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma.
Hvenær og hvar skal tilkynna flutning?
Breytingu á lögheimili ber að tilkynna innan 7 daga frá flutningi
til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til. Ennfremur má
tilkynna flutning beint til Þjóðskrár.
Eyðublað vegna flutningstilkynninga er að finna á slóðinni
www.thjodskra.is/flutningstilkynning
Þjóðskrá
Borgartúni 24, 150 Reykjavík,
sími 569 2900, bréfasími 569 2949.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111