Morgunblaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 25
ur og hvaðeina og var ákaflega hrif-
inn af píramídaforminu í byrjun. Svo
áberandi var þessi lína að vinur minn,
sem kom í heimsókn, hafði á orði að
það mætti nánast drepa mann með
húsgögnunum mínum,“ rifjar Reynir
upp. Píramídaformið heyrir að mestu
sögunni til og allt óþarfa skraut þykir
honum leiðigjarnt þegar húsgögn
eiga í hlut. Klassísk form og beinar
línur eiga aftur á móti upp á pall-
borðið og birtast á hverri síðu í bækl-
ingi, sem hann lét útbúa áður en hann
opnaði hönnunarstofuna.
Lærði að teikna
Reynir viðurkennir að teikning
hafi aldrei verið sín sterkasta hlið.
Smám saman fór honum að þykja
bagalegt að engir aðrir
en hann sjálfur botnuðu
í húsgagnaskissum
hans og dreif sig því í
þrjár annir í tækni-
teikningu í Iðnskól-
anum og sótti auk þess
fjögur kvöldnámskeið í
fríhendisteikningu í
Myndlistarskóla
Reykjavíkur. „Hús-
gagnahönnun og -smíði var
orðin gríðarleg ástríða hjá mér.
Ég smíðaði og smíðaði, en samt var
það ekki fyrr en vinir mínir spurðu
mig hvað ég ætlaði eiginlega að gera
með þetta allt saman, að ég ákvað að
skella mér út í nám,“ segir Reynir.
Hann hleypur hratt yfir Danmerk-
urárin, þar sem hann nam hús-
gagnahönnun við tvo virta skóla í Ár-
ósum í fjögur ár samtals. Þar hannaði
hann t.d. prótótýpu af stól, sem hann
kallaði Zilo, og sýndi ásamt öðru í eig-
in bás á sýningu í Bella Center í
Kaupmannahöfn 1999. Tvö, dönsk
fyrirtæki sýndu mikinn áhuga á að
framleiða stólinn, en úr því varð ekki
þar sem hann þótti of dýr í fram-
leiðslu. „Ég hafði hugsað mér að
steypa stólinn í
gúmmí, en slík
vinna reynd-
ist aðeins á
færi einnar
verk-
smiðju í
Dan-
mörku,
og fyr-
irtækjunum óx
stofnkostnaðurinn í
augum,“ segir Reynir,
sem síðar lét framleiða stól-
inn úr öðru efni og býður nú upp á í
mörgum litum í hönnunarstofu sinni.
Zilo-stóllinn er dæmi um húsgagn
sem leikmönnum kann að þykja afar
einfalt en útheimtir mikla sérhæf-
ingu, sem eitt og sama framleiðslu-
fyrirtækið býr oftast ekki yfir. Reynir
útskýrir að einn stóll geti farið í gegn-
um mörg slík fyrirtæki áður en hann
nær að þjóna tilgangi sínum sem slík-
ur. Efniviðurinn ræður þar miklu um
sem og samsetningin, bólstrun, og
hvert einasta smáatriði. Svo á við um
flest húsgögn að sögn Reynis, sem við
heimkomuna tók aftur til við að
hanna húsgögn samhliða vinnu sinni í
Nota Bene, fyrirtæki sem sérhæft er
í umhverfisauglýsingum. „Ég kapp-
kostaði líka að komast í sambönd við
íslensk framleiðslufyrirtæki sem
leyst gátu úr margvíslegum tækni-
legum vandamálum og voru í stakk
búin að hefja samstarf við mig er
fram liðu stundir,“ segir hann.
Pælingar með iðnaðarmönnum
Akurinn var því nokkuð vel plægður
þegar Reynir gerðist sjálfs sín herra
og opnaði hönnunarstofuna. Síðan hef-
ur hann að mestu leyti lagt hamarinn á
hilluna en kemur þó einstaka sinnum
að samsetningu húsgagnanna og því-
umlíku. Auk þess hefur hann í nógu að
snúast í viðskiptaútréttingum og alls
konar pælingum með iðnaðarmönn-
um. Ómældur tími fer einnig í áfram-
haldandi uppbyggingu hornsteins fyr-
irtækisins, sem er sjálf húsgagna-
hönnunin. „Ég er með einn starfs-
mann í vinnu, sem er grafískur
hönnuður. Þar sem ég er svolítið gam-
aldags og meira fyrir að handteikna
húsgögnin og lita svo með trélitum, sér
hann um að tölvuteikna eftir teikn-
ingum mínum þegar þess gerist þörf,“
segir Reynir og upplýsir að hann hafi
mjög gaman af að gera prótótýpur í
hlutföllunum 1:5 af húsgögnunum,
sem hann hyggst láta smíða. Stærsta
einstaka verkefni Reynis fram til
þessa eru 200 uppstaflanlegir ráð-
stefnustólar, móttökuborð og önnur
húsgögn, sem hann hannaði sér-
staklega fyrir Orkuveitu Reykjavíkur
vegna Hellisheiðarvirkjunar.
Þúsund stykki á sex vikum
Spurður hvort Hönnunarstofan
Syrusson verði þess umkomin að út-
vega slíkt magn húsgagna með stutt-
um fyrirvara svarar hann játandi.
„Ég legg upp með að bjóða upp á
mikið úrval og kappkosta að afgreiða
vörurnar á sem skemmstum tíma.
Þótt ég eigi húsgögnin ekki á lager er
framleiðslugeta fyrirtækjanna, sem
ég skipti við, slík að ég gæti hæglega
afgreitt eitt þúsund stóla á sex vikum,
sem er ekki lengri tími en það tekur
að panta slíkt magn erlendis frá.“
Annað sem Reynir leggur áherslu
á eru persónuleg samskipti við við-
skiptavini sína. Í Hönnunarstofu
Syrusson geta kúnnarnir pantað hús-
gögnin með því áklæði og í þeim lit-
um, og stundum úr þeim efnivið, sem
þeir vilja sjálfir eða þeir geta leitað
ráða hjá hönnuðinum.
„Ég fylgi svo með sófanum heim í
stofu,“ segir hann í gríni.
» Samböndin, sem
hann skapaði sér á
þessum árum, komu sér
líka vel síðar þegar
draumurinn um eigin
hönnunarstofu nálgaðist
veruleikann.
Morgunblaðið/RAX
Zilo Stafl-
anlegir stólar,
sem fást með
eða bólstrunar.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 25
Astma- og ofnæmisveik
börn og skólinn
Almennur fundur í
Gerðubergi þriðjudaginn
27. nóvember kl. 15:30.
Frummælendur eru
læknarnir Ari Axelsson
og Michael Clausen.
Foreldrar astma- og
ofnæmisveikra barna,
kennarar og annað
starfsfólk skólanna er
hvatt til að mæta á
fundinn.
www.ao.is
vjon@mbl.isÍslensk húsgagnahönnun Sófar, stólar, borð og símastandar eftir Reyni
eru meðal þess sem gefur að líta í Hönnunarstofunni Syrusson.
Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is
AR
GU
S
/
07
-0
81
0
SPRON, í samstarfi við Þróunarbanka Evrópu CEB og Norræna fjárfestingar-
bankann NIB, býður konum með mótaða og samkeppnishæfa viðskiptaáætlun,
hagstætt athafnalán* til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.
Fáðu aðstoð hjá viðskiptastjórum SPRON og draumurinn
gæti orðið að veruleika!
*Háð útlánareglum SPRON
Nú er tækifærið!