Morgunblaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 62
62 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Íbúð óskast
Skilvíst og reglusamt par óskar eftir
íbúð í Reykjavík út apríl, helst með
húsgögnum. Upplýsingar í síma: 695
3289.
Klúbbar og félagasamtök
Skipuleggjum sérferðir til Barcelona,
Bayern, Búdapest, Ítalíu, London,
Rínardals, Skotlands, Slóveníu,
Svartaskógar og Utah. Hjólaferðir,
hallargisting, gönguferðir, golf,
vínsmökkun, skíðaferðir, jólamarkaðir
og bjórmenning - bara gaman!
Nánar á www.isafoldtravel.is.
Ferðaskrifstofan Ísafold,
sími 544-8866.
Ferðalög Húsgögn
Pool-borð til sölu
Gott 8 ft pool-borð til sölu fyrir
50.000 kr. Nánari upplýsingar hjá
Helgu í síma 587 7770 eða netfang:
helga@ev.is
Húsnæði í boði
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Til leigu er rúmlega 90 fm
3-4 herbergja íbúð í Norðurmýrinni.
Íbúðin er öll nýuppgerð. Reglusemi
og góð umgengni skilyrði. Áhuga-
samir sendi svar á veffang
ohol@simnet.is
Hreingerningar
Skúringavélar til sölu!
Til sölu notaðar skúringavélar, 20
tommu, 17 tommu. Fínar fyrir íþrótta-
hús og verkstæði. Upplýsingar í síma
897 8444.
Skammtímaleiga 101 RVK
Fullbúin fjögurra herbergja íbúð til
leigu í viku í senn. Uppábúin rúm fyrir
fimm, þvottavél og uppþvottavél á
staðnum. Verð 20 þús. per sólarhring.
Laus yfir jólin.
Upplýsingar í síma 691 2242.
Húsnæði óskast
Smáauglýsingar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Sól á Suðurlandi:
„Skyndileg stefnubreyting Lands-
virkjunar vegna orkusölu er allt ann-
að mál en virkjanaframkvæmdir í
Þjórsá. Almenningur í landinu getur
glaðst yfir því að Landsvirkjun sjái
nú fleira en álver.
Heimamenn við Þjórsá hafa hins-
vegar enga ástæðu til að gleðjast.
Nema kannski yfir því að allir sjá
nú það sem Sól á Suðurlandi hefur
bent á frá upphafi, að ofuráhersla á
að virkja Þjórsá sem fyrst var röng.
Hún var röng af náttúruverndar-
sjónarmiðum, hún var röng af mann-
réttindasjónarmiðum, hún var röng
vegna þeirra aðferða sem beitt hefur
verið við kynningar, samninga og
undirbúning allan. Hún var röng af
því að orkuna átti að bjóða hverjum
sem hafa vildi til stóriðju eða hvað
sem var.
Hún var líka röng af því að suð-
vesturhornið er ofþanið heitt svæði,
þar sem stórframkvæmdir auka á
vandræði allra landsmanna, þenslu
þar sem síst skyldi og á ójafnvægi
milli landshluta. Síðast en alls ekki
síst var hún röng af öryggissjónar-
miðum vegna þeirra sem búa á lág-
lendinu neðan við stíflugarða á jarð-
skjálftasvæðinu við Þjórsá.
Aðeins eitt er breytt!! Landsvirkj-
un matar ekki ný álver á suðvestur-
horninu.
Áhrif virkjana við Þjórsá eru jafn-
skaðleg og áður. Stefna Landsvirkj-
unar er áfram ógnun við náttúruna,
eignarrétt, mannréttindi, öryggi
Sunnlendinga á jarðskjálftasvæðinu
við Þjórsá, og við afkomu þeirra til
framtíðar. Stefna Landsvirkjunar
eykur enn á þenslu á suðvesturhorn-
inu. Virkjanir strax og nokkur hundr-
uð störf í viðbót á suðvesturhornið er
ekki það sem þjóðin þarf núna.
Við tökum mark á ábendingum
Davíðs Oddssonar Seðlabankastjóra,
nú eins og fyrir álverskosningarnar í
Hafnarfirði. Davíð Oddsson varaði
við þenslunni þá og hann varar við
þenslunni nú. Landvernd, Náttúru-
verndarsamtökin flytja viðvaranir,
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverf-
isráðherra minnir á afstöðu heima-
manna og blandar ekki saman orku-
nýtingu og virkjunum. Björgvin G.
Sigurðsson viðskiptaráðherra leggur
til að leitað verði sátta, en Lands-
virkjun fer áfram sínu fram og bakk-
ar ekki um þumlung. Jarðrask og
framkvæmdir eru þegar í gangi, þótt
skipulag með virkjunum liggi aðeins
fyrir öðrum megin við ána.
Sól á Suðurlandi lítur á virkjanir
og orkusölu sem tvö mál. Ekki hefur
þótt skynsamlegt að selja skinnið áð-
ur en björninn er unninn. Það gerir
Landsvirkjun hiklaust og treystir því
að hún fái að fara sínu fram. Fólkið
við Þjórsá telur stefnubreytingu
Landsvirkjunar staðfestingu á að
málflutningur fyrirtækisins hefur
ekki staðist hingað til. Því einu má
treysta að fyrirtækið hyggst keyra
virkjanir sínar í gegn. Ekki fyrir al-
mannahag, heldur viðskiptalega
hagsmuni orkufyrirtækis sem áfram
hagar sér eins og ríki í ríkinu.“
Sól á Suðurlandi lítur á virkjanir og orkusölu sem tvö mál.
Áherslan á að
virkja Þjórsá röng
UM 200 manns tóku þátt í hóp-
tíma sem Hreyfing stóð fyrir í
Valsheimilinu 3. nóvember sl. og
dönsuðu zumba við suðræna tón-
list til styrktar UNIFEM. Glitnir
styrkti viðburðinn en bankinn er
einn af aðalstuðningsaðilum UNI-
FEM.
Allur ágóði af viðburðinum,
400.000 krónur, rennur til UNI-
FEM á Íslandi en féð verður nýtt
til baráttunnar gegn ofbeldi gegn
konum í Suður-Ameríku, segir í
fréttatilkynningu.
Zumba er æfingakerfi sem
byggist á samspili danshreyfinga
við suðræna tónlist og á rætur að
rekja til Kólumbíu. Í tilefni af
söfnuninni kom kólumbískur
gestakennari til landsins og leiddi
suðrænu sveifluna. Hreyfing opn-
ar nýja stöð í Glæsibæ um ára-
mótin og þar verður zumba einn
af fjölmörgum kostum til heilsu-
bótar.
Sjöfn Vilhelmsdóttir, fram-
kvæmdastjóri UNIFEM á Íslandi,
þakkar öllum sem tóku þátt í tím-
anum og studdu gott málefni með
skemmtilegum hætti.
Dansað til styrktar UNIFEM
Þátttakendur í zumbasveiflu í Valsheimilinu 3. nóvember sl.
Bændur í stuði hjá B.A.
Akureyrarmót í tvímenningi, fjög-
urra kvölda barómeter, hófst hjá B.A.
á þriðjudagskvöldið með þátttöku 14
para. Spiluð verður tvöföld umferð.
Eftir sex lotur hafa þeir tekið forystu,
stórbóndinn Helgi Steinsson á Bæg-
isá og smábóndinn Gylfi Pálsson frá
Dagverðartungu. En „mörg stig eru
eftir í pottinum“ eins og þar stendur
og verður eflaust sótt hart að þeim
næstu spilakvöld.
Röð efstu para er annars þessi:
Helgi Steinss. og Gylfi Pálsson +42
Sveinbjörn Sigurðss. og Kári Gíslason. +24
Pétur Guðjónss. og Jónas Róbertss. +23
Jón Sverrisson og Una Sveinsd. +21
Frímann Stefánss. og Reynir Helgas. +13
Guðm. Halldórss. og Pétur Gíslason +13
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 19. nóvember byrjaði
tveggja kvölda Hraðsveitakeppni. 9
sveitir mættu til leiks og efstar eftir
fyrsta kvöld voru:
Sigurður Sigurjónsson +36
Hulduherinn +24
Inda +20
Erla Sigurjónsdóttir +19
Mánudaginn 26. nóvember er
seinna kvöldið í Hraðsveitakeppninni
en Aðalsveitakeppni BH byrjar 3.
desember.
Bridsfélag Hafnarfjarðar spilar á
mánudagskvöldum í Flatahrauni 3.
Öll spilaaðstaða er til fyrirmyndar og
er vel tekið á móti öllum spilurum.
Spilamennska byrjar kl. 19.30.
Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Ei-
ríksson.
Brids í Gullsmára
Það var „aðeins“ spilað á 10 borð-
um í Gullsmáranum 22. nóvember sl.
Lokastaðan í N/S:
Þorsteinn Laufd. - Magnús Halldórss. 213
Leifur Jóhanness. - Guðm.Magnússon 202
Eysteinn Einarsson - Jón Stefánsson 171
Haukur Guðbjartss. - Jón Jóhannsson 169
A/V
Steindór Árnason - Halldór Heiðar 196
Bragi Bjarnason - Óli Gíslason 195
Páll Guðmundss. - Elís Kristjánss. 188
Ruth Pálsd. - Viggó M.Sigurðss. 181
Miðvikudagsklúbburinn
22 pör mættu til leiks miðvikudag-
inn 21. nóvember. Mikið var af pörum
að æfa fyrir Parasveitakeppnina og
voru efstu pörin úr þeim hópi. Ragn-
heiður Nielsen og Ómar Olgeirsson
unnu með 64,7% skor og Soffía Daní-
elsdóttir og Magnús Sverrisson voru í
2. sæti með 63%. Staða efstu para var:
Ragnheiður Nielsen - Ómar Olgeirss. 82,5
Soffía Daníelsd. - Magnús Sverriss. 72,6
María Haraldsd. - Páll Valdimarss. 36,3
Halldór Svanbss. - Kristinn Kristinss. 30,8
Hulda Hjálmarsd. - Halldór Þorvaldss. 21,2
Efsta sætið fékk veglegar osta-
körfur og annað sætið nældi sér í kon-
fekt.
Halldór Svanbergsson, Kristinn
Kristinsson, Lilja Kristjánsdóttir og
Hlynur Vigfússon voru dregin út og
kræktu sér í jólakaffi.
Miðvikudagsklúbburinn spilar á
miðvikudagskvöldum í húsnæði
Bridssambands Íslands. Spilaður er
eins kvölds tvímenningur með for-
gefnum spilum og notuð er nýjasta
tækni í allri tölvuvinnslu. Spila-
mennska hefst kl. 19 og er tekið sér-
staklega vel á móti spilurum sem hafa
litla og enga reynslu af keppnis-
bridge. Allir spilarar eru velkomnir.
Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Ei-
ríksson. Heimasíða félagsins er
www.bridge.is/mid
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, fimmtud. 22.11.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
168 stig. Árangur N-S
Ragnar Björnsson – Ólafur Ingvarss. 202
Ægir Ferdinandss. – Hannes Ingibergs. 193
Viggó Nordqvist – Gunnar Andréss. 181
Árangur A-V
Magnús Oddsson – Björn E. Péturss. 255
Hólmfríður Árnad. – Stefán Finnbogas. 206
Þröstur Sveinsson – Bjarni Ásmunds 192
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Ungum jafnaðar-
mönnum:
„Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir
eindregnum stuðningi við frumvarp
um bætta réttarstöðu útlendinga,
sem nú liggur fyrir Alþingi. Í frum-
varpinu er tekið á ámælisverðum
gloppum í íslensku lagaumhverfi,
sem löngu er tímabært að leiðrétta.
Því er það von Ungra jafnaðar-
manna að frumvarpið mæti ekki fyr-
irstöðu í þinginu og eru þingmenn
Samfylkingarinnar sérstaklega
hvattir til að gera það sem í þeirra
valdi stendur til að tryggja því fram-
gang. Í fyrsta lagi er brýnt að leið-
rétta stöðu útlendinga, þá einkum
erlendra kvenna sem sæta heimilis-
ofbeldi af hálfu maka sinna. Það á
ekki að líðast að fólk þurfi að ganga
gegnum það helvíti að þola ofbeldi á
eigin heimili í framandi landi og eiga
á hættu að missa landvistarleyfi ef
skilnaðar er óskað. Í öðru lagi ítreka
Ungir jafnaðarmenn þá afstöðu sína
að hina svokölluðu 24 ára reglu beri
að afnema þegar í stað. Það er ómál-
efnaleg mismunun að setja þetta ald-
urstakmark á dvalarleyfi maka. Í
ljósi þess að þingmenn Samfylking-
arinnar töluðu manna hæst á móti
lögleiðingu þessarar reglu árið 2004,
vænta Ungir jafnaðarmenn þess að
þeir tryggi breytingatillögunni
framgang í þinginu nú. Í þriðja lagi
gerir frumvarpið ráð fyrir bættri
stöðu einstaklinga gagnvart atvinnu-
rekendum, meðal annars þannig að
tímabundið atvinnuleyfi sé veitt ein-
staklingi en ekki atvinnurekanda.
Þetta telja Ungir jafnaðarmenn, nú
sem fyrr, mjög æskilega breytingu
sem geti stuðlað að því að fyrir-
byggja misnotkun og slæma meðferð
á erlendum launþegum, sem eru of
háðir vinnuveitanda sínum vegna at-
vinnuleyfis. Að lokum tekur frum-
varpið á skilyrðum um dvalarleyfi,
sem eru of ströng gagnvart erlend-
um ungmennum. Núverandi lög um
útlendinga gera þannig ráð fyrir að
við 18 ára aldur þurfi börn innflytj-
enda sjálf að sýna fram á trygga
framfærslu sína. Þetta getur m.a.
leitt til þess að þau hætti skóla-
göngu.“
Styðja frumvarp um bætta
réttarstöðu útlendinga