Morgunblaðið - 25.11.2007, Side 10

Morgunblaðið - 25.11.2007, Side 10
10 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Jörð kallar teknir hafa verið úr búðinni í lausa- vigt án plastpoka. „Þetta er Lífið,“ segir Ísafold og hefur stóran staf í Líf til heiðurs leiðbeinanda þeirra á námskeiðinu. Þau hafa þegar hér er komið sögu brautskráðst með láði. Undir eldhúsvaskinum liggur Sorpskrímslið keflað á höndum og fótum. Á sér ekki viðreisnar von. Snæfríður Sól potar stríðnislega í það til að gera því gramt í geði um leið og hún flokkar ruslið ofan í safn- kassann eins og henni hefur verið kennt. Aumingja skrímslið engist um í örvilnan. Fyrir utan eldhúsgluggann brosa ruslatunnurnar við heimasætunni. Sú bláa fyrir dagblöð og tímarit og sú græna fyrir alhliða úrgang en hún hefur leyst þá svörtu af hólmi og er losuð á tveggja vikna fresti. Það er yfirdrifið nóg eftir að fjölskyldan breytti um lífsstíl. Á leiðinni út horfir Ísafold með að- dáun á nýmálaða veggina. „Mikið var gott að við skyldum finna þessa Svansmerktu málningu, ástin mín. Ég er ekki viss um að ég hefði haft samvisku í að mála annars,“ segir hún við Loft. „Já, og fannst þér ég ekki láta hendur standa fram úr ermum við verkið,“ segir hann um hæl. „Svo sannarlega, elskan mín. Svo sannarlega.“ Með mynd af bílnum í vasanum Ísafold sest inn í nýja metanbílinn í heimkeyrslunni og býr sig undir að keyra sem leið liggur á spítalann. Það er heldur langt að hjóla enda þótt hún hafi skýr áform um að gera það annað veifið næsta sumar. Það er hlýtt í veðri þennan vetrardag og krakkarnir krefjast þess að ganga í skólann. Leiðin er heldur ekki löng. Í kulda og trekk keyrir mamma þau og einstöku sinnum fær pabbi að fljóta með í vinnuna – svona þegar hjóli er ekki út sigandi. „Þú passar vel upp á systur þína, Hreinn minn,“ segir mamma. Hann jánkar því og systkinin hverfa léttstíg fyrir hornið. Loftur er tilbúinn á hjólinu og veif- ar Ísafold í kveðjuskyni þegar hann hefur spennt á sig hjálminn. Þegar hún er komin í hvarf á fjölkorna- dekkjunum dregur hann aftur á móti mynd af gamla góða GMC-anum upp úr vasanum og virðir hana fyrir sér. „Hvar ert þú nú, kæri vinur?“ spyr hann dapur í bragði. – Heyrðu, Loftur! Ert þú ekki orð- inn umhverfisvænn? „Jú, ég er orðinn grænn í gegn.“ – Hvers vegna gengurðu þá um með mynd af bílnum í vasanum eins og Auðbjörn töffari um árið? „Ha, ha, ha. Alltaf sama kaldhæðn- in úr þessari áttinni. Ég er grænn en ég hef líka tilfinningar. Það átt þú að vita sem bjóst mig til. Ég þarf bara aðeins lengri aðlögunartíma. Þetta kemur á endanum. Hættu svo að setja út á mig og einbeittu þér að því að skrifa söguna!“ – Það er naumast. Afsakaðu ónæð- ið. „Og ef þú kjaftar í Ísafold þá J ibbí,“ hljóðar Loftur Hreinsson skyndilega einn morguninn þar sem hann stendur á baðvoginni á heimili sínu. „Það eru fimm kíló farin.“ „Þarna sérðu, pabbi. Allt hjólinu að þakka,“ seg- ir Hreinn sonur hans og skyrpir út úr sér tannkreminu. „Það ber ekki á öðru,“ segir fað- irinn stoltur og stígur niður á um- hverfisvottaðar flísarnar. Nokkrar vikur eru nú síðan fjöl- skyldan sagði loftslagsbreytingum af mannavöldum stríð á hendur og skráði sig á námskeiðið „Vistvernd í verki“. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim tíma. Loftur hjólar nú daglega í vinnuna, um tuttugu mín- útur hvora leið og hefur svo sann- arlega fundið fyrir hreyfingunni. Ekki svo að skilja að þyngdin hafi verið að sliga okkar mann en hann er samt sem áður allur léttari á fæti. Því hafa séra Seamus og hinir félagarnir í bumbuboltanum fengið að kynnast. Loftur dansar nú í kringum þá eins og ballerína. „Ef þú reynir þetta aftur, þá verð- ur þú jarðaður,“ þrumaði séra Sea- mus í síðasta tíma þegar Loftur renndi knettinum lymskulega milli fóta hans. „Í Jesú nafni!“ Burt með bílveiki og plastpoka Langt er síðan „bílveikur“ morg- unverður hefur verið á borðum hjá okkar fólki. Nú hámar það í sig súr- mjólk úr stórri hyrnu og ávexti sem Þegar við kynntumst vinum okkar, Lofti Hreinssyni, Ísa- fold Jökulsdóttur og börnum þeirra í Grafarvoginum fyrir sex vikum voru þau á kross- götum. Fram að því höfðu þau látið sér hlýnun jarðar og loftslagsbreytingar af mannavöldum í léttu rúmi liggja en seglin snerust þannig að þau ákváðu að taka upp vistvænna líf. Undanfarnar vikur höfum við fylgst með þeim vaxa og dafna á vistvæna vísu og nú er svo komið að þau hafa braut- skráðst með láði úr verkefninu „Vistvernd í verki“. Áfanginn er stór á þessari göfugu vegferð en samt sem áður eru þau hvergi nærri fullnuma, brýnt er að vera áfram á varðbergi – jörðin kallar sem aldrei fyrr. Og hana höfum við aðeins að láni. Loftur Hreinsson Ísafold Jökulsdóttir Snæfríður Sól Loftsdóttir Hreinn Loftsson Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur | ben@mbl.is og Orra Pál Ormarsson | orri@mbl.is Teikningar: Andrés Andrésson Ljósmyndir: Kristinn Ingvarsson og fleiri Umbrot: Harpa Grímsdóttir Grafík: Guðmundur Ó. Ingvarsson Út í loftið Fjölskyldan 

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.