Morgunblaðið - 25.11.2007, Page 29

Morgunblaðið - 25.11.2007, Page 29
191 metra í keppni í Planica. Það met bætti Pólverjinn Piotr Fijas raunar ári síðar um þrjá metra. Breyskur til ölsins Undarleg lund er oft og tíðum fylgifiskur snilligáfu og Nykänen er þar engin undantekning. Hann þótti snemma óstýrilátur og breyskur til ölsins. Hermt er að á köflum hafi hreinlega þurft að loka hann inni milli móta. Hann var í tvígang settur út úr landslið- inu vegna slæmrar hegðunar og árið 1986 fékk hann skilorðsbund- inn dóm fyrir að stela sígarettum og bjór úr sjoppu. Gjálífið glepur og eftir um ára- tug í fremstu röð fór áhugi Nyk- änens á stökkinu þverrandi. Hann lagði skíðin á hilluna. Kappinn hefur víða komið við síðan og óhætt er að fullyrða að lífið hafi ekki farið um hann mjúk- um höndum. Finnar munu alla tíð bera virðingu fyrir skíðastökkv- aranum Matti Nykänen en sama verður tæplega sagt um mann- eskjuna sjálfa. Sumir ganga svo langt að halda því fram að hann sé orðinn að þjóðarskömm. Skíðastökkvarinn syngjandi Nykänen hefur tekið sér eitt og annað fyrir hendur frá því stökk- ferlinum lauk en þekktastur er hann líklega fyrir framlag sitt til popptónlistarinnar. Tvennum sög- um fer þó af hæfileikum hans á því sviði. Á opinberri heimasíðu Nyk- änens, mattinykanen.info, eru gíf- uryrðin þó ekki spöruð. „Matti Nykänen reyndi fyrst fyrir sér sem söngvari snemma á tíunda áratugnum og fólk kunni svo vel að meta hann að fyrsta breiðskífa hans, Nótt hins óvænta (f. Yllätys- ten yö), náði gullsölu. Skíða- stökkvarinn syngjandi vakti meira að segja athygli í Þýskalandi, þar sem hann kom fram.“ Það var og. Tónlist Nykänens hefur verið lýst sem „popprokki með kómísku ívafi“ og fjalla textarnir margir hverjir um líf listamannsins og störf. Þannig mun lagið Einn, tveir, þrír – hraðinn eykst (f. Yy kaa koo nee – vauhti kovenee) vera óður til viðburðaríks lífsstíls Nykänens. Það er að finna á ann- arri breiðskífunni, Samurai, frá árinu 1992. Nykänen er enn viðloðandi tón- listina og í fyrra kom þriðja breið- skífan út. Hún inniheldur m.a. lag- ið Kannski fékk ég mér (í glas), kannski ekki (f. Ehkä otin, ehkä en), þar sem Nykänen lætur hlust- endum eftir að meta hvort hann hafi snúið baki við Bakkusi eður ei. Þeir sem gerst þekkja til hall- ast að síðari kostinum. Enn að trylla lýðinn Á fyrrnefndri heimasíðu kemur fram að Matti Nykänen & Sam- urai-sveitin komi reglulega fram á klúbbum og veitingastöðum „og trylli lýðinn með viðburðaríkri og kraftmikilli dagskrá. Fyrir utan frábæra tónlist inniheldur sýn- ingin reyk, ljós og svita og skilur engan eftir í kuldakasti!“ Já, það er stíll Nykänens að ylja alþýðunni. Svo langt gekk það meira að segja á tímabili að hann vann fyrir sér sem fatafellir. Ef- laust hafa einhverjr aðdáendur hans af veikara kyninu haft yndi af því en gjörningurinn var síst til þess fallinn að auka hróður hans meðal finnsku þjóðarinnar. Fleira hefur farið fyrir brjóstið á fólki. Nykänen þykir skipta helst til oft um konur en hann á þegar fimm hjónabönd að baki, þar af hefur hann gengið tvívegis að eiga núverandi spúsu sína, Mervi Tapola. Mismikla virðingu hefur hann borið fyrir þessum konum en athygli vakti að meðan hann var kvæntur Sari Paanala, á árunum 1996-98, tók hann upp eft- irnafn hennar. Það er alltént inn- legg í jafnréttisbaráttuna. Annars hefur Nykänen ekki þótt koma nægilega vel fram við konur sínar og margoft hefur komið til kasta lögreglu vegna barsmíða á heimili hans. En halda ber því til haga að Nykänen hefur víst bæði verið gerandi og þolandi í þeim viðureignum. Tilraun til manndráps Botninum náði Nykänen þó þeg- ar hann var handtekinn 24. ágúst 2004 grunaður um tilraun til manndráps eftir að fjölskylduvin- ur fannst með stungusár á heimili hans. Hann var fundinn sekur um alvarlega líkamsárás og dæmdur í 26 mánaða fangelsi í október sama ár en leystur úr haldi ellefu mán- uðum síðar. Eitthvað hefur það komið hon- um úr jafnvægi því fjórum dögum síðar var hann færður í járn að nýju fyrir að misþyrma eiginkonu sinni. Það þýddi fjóra mánuði bak við lás og slá til viðbótar. Lítið hefur farið fyrir Nykänen síðan en auglýsing í norsku sjón- varpi í fyrra vakti athygli. Þar knýr hópur föngulegra meyja dyra hjá kappanum og býður honum í teiti. Öllum að óvörum afþakkar Nykänen boðið. Að baki auglýs- ingunni stóð norska farsímafyr- irtækið djuice og slagorðið var „Nú getur þú líka verið við stjórn- völinn“. Að fenginni reynslu efast menn aftur á móti um að hér sé einhver yfirlýsing á ferðinni. Nyk- änen hafi ekki snúið við blaðinu. Menn skyldu þó aldrei segja aldrei. Þannig bárust af því fregn- ir í haust að Nykänen hefði tekið fram skíðin á nýjan leik og hygð- ist freista þess að keppa aftur á mótum – 44 ára að aldri. Nú er að sjá hvernig það fer. Í HNOTSKURN »Kvikmynd var gerð umlíf Matti Nykänens á síð- asta ári og fór finnski leik- arinn Jasper Pääkönen með titilhlutverkið. Þar er eink- um lögð áhersla á athafnir hans utan skíðastökkpall- anna. »Endurminningar Nyk-änens hafa líka komið út á bók, m.a. á ensku, undir heitinu Kveðja frá helvíti. »Nykänen hefur löngumverið kunnur fyrir kald- hæðnisleg spakmæli sín og lifa mörg þeirra góðu lífi meðal ungra Finna. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 29

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.