Morgunblaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 41 þeir greiða félagsmönnum sínum. Alvara lífsins byrjar svo fyrir alvöru fyrir allan almenning ef fasteignir lækka í verði eitthvað að ráði. Af þessu er ljóst, að það er allra hagur að tak- ast megi að halda þeirri þróun, sem staðið hefur yfir um skeið en lét finna fyrir sér fyrir alvöru í síðustu viku, í skefjum. Þáttur í því getur einfald- lega verið að fólk og fyrirtæki, stór og smá, um- gangist þennan markað með meiri varúð en gert hefur verið. Greiningardeildir bankanna hafa frá því snemma á árinu spáð mikilli hækkun á hluta- bréfamarkaðnum. Slíkir spádómar hafa að sjálf- sögðu ýtt undir kaup á markaðnum. Hvað skyldi mikið standa eftir af þessum spám? Kaupþing í lykilstöðu K aupþing banki vigtar svo þungt á íslenzka hlutabréfamarkaðnum, að öll óvissa í kringum það fyr- irtæki getur valdið lækkun á bréfum bæði í bankanum sjálfum og þeim fyrirtækjum, sem eiga verulegan hlut í honum. Á undanförnum vikum hefur gætt óvissu, ekki bara á markaðnum hér heldur einnig í öðrum löndum, vegna spurninga, sem hafa vaknað um fjármögnun á kaupum Kaupþings á hollenzkum banka. Þessi óvissa hef- ur m.a. leitt til að svonefnt skuldatryggingaálag á skuldabréfum, sem Kaupþing hefur gefið út og viðskipti eru með á alþjóðlegum fjármálamörk- uðum, hefur hækkað mjög og raunar rokið upp. Í þessu samhengi hefur tvennt gerzt síðustu daga. Morgunblaðið skýrði frá því sl. miðvikudag, að erlendir bankar hefðu tekið að sér að sölu- tryggja 180 milljarða hlutafjárútboð Kaupþings. Frétt þessi var byggð á nafnlausum heimildum og ekki staðfest af forráðamönnum Kaupþings. Af þeim sökum spurðu aðilar á markaðnum hér hver annan, hvort fréttin væri rétt. Liggur þó í augum uppi, að Morgunblaðið hefði ekki gert þessari frétt svo hátt undir höfði, sem raun bar vitni, ef blaðið teldi sig ekki hafa alveg öruggar heimildir fyrir henni. Eftir að fréttin birtist hefur verið beðið eftir opinberri tilkynningu um þessa samn- inga. Það er mikilvægt að hún komi sem fyrst eft- ir þessa helgi og um leið og hún liggur fyrir má gera ráð fyrir að slík staðfesting muni hafa mjög róandi áhrif á markaðinn bæði hérlendis og er- lendis. Í raun má segja, að endanleg tilkynning um að fjármögnun á kaupum Kaupþings á hol- lenzka bankanum sé tryggð, sé lykilatriði í að skapa jafnvægi á markaðnum hér á ný. Hitt, sem gerzt hefur varðandi Kaupþing, er ný skýrsla Merrill Lynch um Kaupþing, sem Morg- unblaðið skýrir frá í dag, laugardag, en þar er þeirri skoðun lýst, að tryggingaálagið á skulda- bréfum Kaupþings sé of hátt. Í frétt Morgun- blaðsins segir: „Segir í skýrslunni, að eignasafn og lausafjár- staða Kaupþings séu ekki til þess fallin að valda fjárfestum áhyggjum. Líkur á stórfelldri rýrnun eigin fjár Kaupþings séu litlar og sömuleiðis að bankinn sé vel staddur hvað varðar lausafé. Að vísu telji Merrill Lynch, að kaup Kaupþings á hollenzka bankanum NIBC hafi ekki verið til hins bezta og að endurskipulagning á rekstri hol- lenzka bankans sé nauðsynleg. Þá gerir grein- ingadeildin ekki ráð fyrir frábæru ári hjá Kaup- þingi árið 2008. Hins vegar sé tryggingaálag upp á 3,40 prósentustig eða meira of hátt miðað við það, sem áður hefur verið nefnt, og mælir bank- inn ekki með því að fjárfestar skortselji skulda- bréf Kaupþings, þ.e. mælir gegn því að fjárfestar veðji á frekari hækkun álagsins.“ Í megindráttum er þessi umsögn Merrill Lynch jákvæð fyrir Kaupþing. Þessi umsögn, ásamt væntanlegri tilkynningu um samninga um sölutryggingu á hlutafjárútboði Kaupþings, ætti að stuðla að auknu jafnvægi á íslenzka hluta- bréfamarkaðnum eftir helgi. Næsta ár A llar umræður beggja vegna Atl- antshafsins benda til þess að al- mennt gæti mikillar varúðar um þróun efnahagsmála og markaða á næsta ári. Yfirleitt er tónninn í fjármálablöðum í Evrópu og Bandaríkjunum sá, að fjármálakreppan, sem skollið hefur á vegna húsnæðislánakreppunnar, sé ekki búin og að gera megi ráð fyrir afleiðingum hennar frameftir næsta ári. Í Bandaríkjunum þrýsta stjórnmálamenn á um aðgerðir til þess að koma í veg fyrir, að fólk missi hús sín. Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefur hvatt lánveitendur til þess að milda lánakjör til að auðvelda fólki að komast í gegnum húsnæðislá- nakreppuna. Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, tilkynnti fyrir nokkrum dögum að hann hefði gert samkomulag við fjóra stóra lán- veitendur á sviði húsnæðislána um að þeir mundu frysta tímabundið núverandi vaxtastig húsnæð- islána í stað þess að hækka vexti í samræmi við ákvæði lánanna. Jafnvel ríkisstjórn Bush hefur hvatt lánveit- endur til svipaðra aðgerða til þess að koma í veg fyrir að fólk missi hús sín enda eru húsnæðis- málin að komast alvarlega á dagskrá í kosninga- baráttunni vestanhafs. Í gær, föstudag, tilkynnti Seðlabanki Evrópu að hann hefði gert ráðstafanir til þess að bæta lausafjárstöðu banka og annarra fjármálafyrir- tækja vegna þess að á meginlandi Evrópu hafa menn auknar áhyggjur af þróun mála. Það er því ljóst að alls staðar í kringum okkur eru menn að bregðast við til þess að koma í veg fyrir að sá vandi, sem nú blasir við, fari úr bönd- um. Þess vegna þarf engum að koma á óvart, þótt áþekkar umræður vegna stöðu húsnæðismála séu hafnar hér. Ef rétt og skynsamlega er á haldið eigum við Íslendingar að geta komist klakklaust frá þeim vandamálum, sem við stöndum frammi fyrir. Þá er ekki átt við stöðu einstakra fyrirtækja, sem getur verið með mismunandi hætti, heldur þá al- mennu stöðu að afturkippur á hlutabréfamark- aðnum hafi ekki víðtækari áhrif en nauðsyn kref- ur. Þess vegna er nokkuð ljóst, að þeir, sem mest áhrif geta haft á þróunina hér, þurfa að tala sam- an en sitja ekki hver í sínu horni og geri það, sem að þeim snýr, án þess að nokkur aðili hafi yfirsýn yfir málið allt. » Sú verðmætaaukning, sem orðið hefur á hlutabréfamark-aðnum hér á þessu ári, hefur nánast gufað upp. Papp- írshagnaðurinn hefur í sumum tilvikum orðið að engu. Afleið- ingarnar verða margvíslegar, ekki bara fyrir umsvifamestu leikendur á þessu sviði, heldur líka einstaklinga, sem hafa haft minni umsvif en hafa engu að síður verið þátttakendur á mark- aðnum. rbréf Morgunblaðið/Brynjar Gauti Bæjarferð Þessir kátu krakkar brugðu fyrir sig betri fætinum í vikunni og fóru í ferðalag í miðbæ Reykjavíkur. Jólin nálgast óðfluga og má ætla að börnin hafi orðið vör við undirbúning þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.