Morgunblaðið - 25.11.2007, Side 42

Morgunblaðið - 25.11.2007, Side 42
42 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING GERÐUR Kristný hefur sent frá sér tvær nýjar bækur; barnabókina Ball- ið á Bessastöðum, þar sem lýst er fjörlega nokkrum dögum í lífi ímynd- aðs forseta, og sína þriðju ljóðabók, Höggstað. Þótt sjö ár séu frá útkomu síðustu ljóðabókar Gerðar er Högg- staður eins og í beinu framhaldi af Launkofa. „Það er satt. Ég tek yrkisefni upp úr fyrri bókum, líka Ísfrétt, og yrkist á við sjálfa mig,“ segir Gerður. „Kötturinn sem er lifandi í Launkofa og mitt mesta yndi er til dæmis dá- inn í Höggstað. Hallgerður sem er í Ísfrétt fær líka sitt ljóð hérna. Mað- ur tæmir ekki yrkisefni úr Njálu svo auðveldlega.“ Hver væri draumanágranninn Hún segir ljóðin koma til sín í kippum. „Mér finnst svo takmarkað hvað á erindi í ljóð. Ég yrki ekki um hvað sem er. Reyni það ekki einu sinni en þegar góð ljóðahugmynd gefst þá vinn ég úr henni. Oft yrki ég þegar ég fer út á land. Einhvern tímann fannst mér leið- inlegast af öllu að bregða mér út fyr- ir bæinn en hefði kannski átt að gera meira af því,“ segir hún og hlær. Blaðar svo í bókinni og segir: „Hér er eitt um Kirkjufell, eftir ferð um Snæfellsnes, og alls eru þrjú ljóð í bókinni ort í Skagafirði – enda er ég tengdadóttir Skagafjarðar. Svo er hér ljóð um Önnu Frank. Ég bjó í tíu ár fyrir ofan fíkniefnaneytanda og fór að hugsa um hver væri draumanágranninn. Ég er viss um að Anna Frank hefði kunnað að haga sér í fjölbýli. Hún hefði að minnsta kosti aldrei boðið heim fólki sem kveikti síðan bara í hjá henni.“ Gerður Kristný hóf ferilinn sem ljóðskáld og segir ljóðið alltaf kalla á sig. „Ljóðið er æðst allra bókmennta- greina. Ég held að allt þetta tal síð- ustu ára um dauða ljóðsins lýsi bara ótta okkar við að missa það, rétt eins og þegar fréttir fara á kreik um and- lát ástsælla tónlistarmanna eða veð- urfræðinga. Á meðan þessi þjóð þarf á því að halda að láta hugga sig, skemmta eða hrista upp í sér verður ljóðið alltaf sterkur þáttur í lífi henn- ar.“ Það sem mér finnst fyndið Ljóð Gerðar eru fáguð og meitluð, er hún lengi að slípa þau til? „Stundum koma þau algjörlega fullsköpuð og þá er ég hrædd um að ég sé að yrkja upp eitthvað sem ég hef lesið áður. Maður sér það stund- um gerast hjá ljóðskáldum. Sumum ljóðum þarf ég að liggja lengi yfir áður en þau eru tilbúin. Ljóðin eiga að vera um eitthvað sem skiptir máli – og hafa góða loka- línu. Ef eitthvert annað form minnir á ljóð, þá er það kannski myndabækur fyrir börn,“ segir Gerður og tekur upp Ballið á Bessastöðum, sögu fyrir börn sem er prýdd fjölda ærslafeng- inna mynda eftir Halldór Bald- ursson. „Fyrir svona bók þarf að finna einfaldan söguþráð og góðan endi. Þetta er í raun líka mjög knappt form og strangt.“ Á heimili Gerðar í Skerjafirðinum sér yfir á Álftanes, var útsýnið til Bessastaða henni innblástur? „Ég var byrjuð á bókinni áður en ég flutti hingað í vor en þetta jók sjálfsagt innblásturinn,“ segir hún og hlær. „Þegar ég skrifa svona bók hugsa ég bara um það sem mér finnst fynd- ið. Ég er ekki með neina ímyndaða krakka í huga sem eiga eftir að lesa bókina; ég setti reyndar gröfur inn í söguna. Ég hef lært það af syni mín- um að það er mikilvægt að hafa þungavinnuvélar í bókum. En þetta er saga fyrir börn á aldrinum fimm til tíu ára, og vonandi er hún líka for- eldravæn. Ég skrifa bara eins og mig lystir og set inn brandara sem mér sjálfri finnast sniðugir. Síðan athuga ég stílinn og reyni að einfalda tungu- málið svolítið. Í texta og myndum reynum við Halldór að varpa ljósi á starf forset- ans, svo börnin átti sig til dæmis á því að hann býr á Bessastöðum og starfar á Sóleyjargötu, og hann býr líka svo vel að hafa bæði ritara og ráðskonu. Börnin þurfa að geta skemmt sér og vonandi lært eitthvað nýtt í leiðinni.“ Líka mjög knappt form og strangt Morgunblaðið/Einar Falur Tvær nýjar „Ef eitthvað annað form minnir á ljóð, þá er það kannski myndabækur fyrir börn,“ segir Gerður Kristný. Gerður Kristný með tvær nýjar bækur, ljóð og barnasögu Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is MODEST Mússorgskí var svo mikil fyllibytta að hann kláraði fæst af því sem hann samdi. Það er synd, því hann var snillingur og hugmyndir hans voru innblásnar. Nótt á norna- stóli, sem flutt var á tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar Íslands á fimmtu- dagskvöldið, er frábært verk með mergjuðum laglínum og magnaðri stígandi, en þótti svo klúðurslega skrifað fyrir hljómsveit að það kom í hlut annarra að gera það áheyri- legra. Það var útsetning hljómsveit- arstjórans Leopold Stokowski sem var leikin á tónleikum Sinfóníunnar og var henni fremur dauflega stjórn- að af Petri Sakari, enda kom hún máttleysislega út, þótt hún væri ágætlega útfærð tæknilega séð. Verkið fjallar jú um djöfladýrkendur á fjallstindi á Jónsmessunótt undir ægilegum kringumstæðum, en hér sá maður frekar fyrir sér gamla hippa í andaglasi fyrir framan varðeld. Næst á dagskrá var Till Eulenspiegel eftir Richard Strauss. Eulenspiegel, eða Ugluspegill, var óskaplegur prakkari fyrr á öldum sem fjöldi þjóðsagna hefur spunnist um, og Strauss málar mynd af honum í tónum sem er býsna vandmeðfarin, enda verkið ekki auðvelt í flutningi. Tónlistin verður að vera leikin af miklum galsa, jafnvel göslaragangi, en samt af gríðarlegri fágun, sem er ekki á allra meðfæri. Ólíkt verkinu á undan tókst þetta yfirleitt eins og best verð- ur á kosið á tónleikunum. Þeir Emil Friðfinnsson hornleikari og Sigurður I. Snorrason klarínettuleikari voru í banastuði, studdir ærandi básúnu- og túbuleik félaga sinna; almennt tal- að var hljómsveitin samtaka og virt- ist skemmta sér konunglega. Alltént skemmti ég mér vel. Síðust á dagskránni var tónlistin eftir Grieg við leikrit Ibsens um ólík- indatólið Pétur Gaut. Flutningurinn var yfirleitt góður, helst mátti finna að loðnum strengjaleik í einum þætt- inum, Dansi Anítru, sem er þokka- fullur, seiðandi dans, en var allt ann- að en þokkafullur á tónleikunum – hvað þá seiðandi. Flest annað var hins vegar ágætlega útfært og gólfið skalf undan líflegri frásögn Gunnars Eyjólfssonar, sem á tímabili var eins og eldklerkur á vakningasamkomu. Segja má að innhverfur, mjúkur ein- söngur Guðrúnar Jóhönnu Ólafs- dóttur hafi myndað fullkomið mót- vægi við ofsann, en hún kom fram undir lok verksins. Guðrún virtist dá- litið óörugg í byrjun, en náði sér fljótt á strik og kom rödd hennar einkar ljúflega út. Að heyra tónlist Griegs leikna við þessar aðstæður vakti samt spurningar. Flestir þekkja hluta úr verkinu eins og Morgunstemningu, Arabískan dans og Söng Sólveigar, en allt er það músík sem er orðin samofin fjölda- menningu nútímans. Ófáir þekkja líka leikrit Ibsens, og því er spurning hvort frásögn Gunnars hafi í raun verið nauðsynleg. Svona uppákoma þar sem leitast er við að birta áhorf- andanum leikrit Ibsens í hnotskurn, og þannig fá nasasjón af því hvernig tónlist Griegs hefur hljómað í upp- hafi gerir manni lítið gagn. Þótt Gunnar hafi í sjálfu sér verið frábær, var þetta ekki leikritið, aðeins endur- ómur af því. Og hver vill heyra berg- mál af leikriti? Undir þessum kring- umstæðum virkaði tónlistin tilgerðarleg. Leikhústónlist á að magna upp stemninguna í leikritinu, en hér var ekkert til að magna. Óneitanlega olli útkoman von- brigðum og var engum til fram- dráttar, allra síst Grieg. Prakkarastrik á Sinfóníutónleikum Jónas Sen TÓNLIST Háskólabíó Verk eftir Mússorgskí, Grieg og Richard Strauss í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Einsöngvari: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir. Sögumaður: Gunnar Eyjólfs- son. Stjórnandi: Petri Sakari. Fimmtu- dagur 22. nóvember. Sinfóníutónleikar  ÞRÍR barnabókahöfundar munu lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum í Kórnum á Bókasafni Kópavogs kl. 14 í dag, sunnudag. Jónína Leósdóttir les úr ung- lingabók sinni Kossar og ólífur, Þórarinn Eldjárn les ljóð úr bók- inni Gælur, fælur og þvælur og sýnir jafnframt myndir Sigrúnar Eldjárn, og loks mun Þórarinn Leifsson lesa úr hryllingssögu sinni Leyndarmálið hans pabba, og sýna jafnframt myndir sínar úr bókinni. Boðið verður upp á kaffi og smákökur meðan á lestrinum stendur, aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Lesið fyrir börnin Morgunblaðið/Ómar Gælur og þvælur Þórarinn Eldjárn. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Vorum að fá í einkasölu á þessum einstaka stað í þessu gróna hver- fi, glæsilegt 240 fm parhús með innbyggðum bílskúr. Eignin er til afhendingar í febrúar næstkomandi, tilbúin undir tréverk, það er byggingarstig 5. Fullbúin að utan. Glæsileg hönnun. Vektor hönnun og ráðgjöf. Gert ráð fyrir instabus stjórnkerfi á rafmagni og hita. Einstök staðsetning, útsýni. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Hraunhamars. Hlíðarvegur - Kópav. Glæsilegt parhús. m bl.940651

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.