Morgunblaðið - 25.11.2007, Síða 44
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík,
sími 568 2444, fax 568 2446.
Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali.
Ragnar Gíslason lögg. fasteignasali.
Falleg og mikið endurnýjuð 140,2 fm. sérhæð í tvíbýlishúsi á sunnanverðu
Seltjarnarnesi. Stór timburverönd, þrjú svefnherbergi og tvær stofur.
15 millj. kr. lán á 4,15% vöxtum getur fylgt eigninni. Verð 43,5 millj.
MIÐBRAUT 17
Opið hús á milli kl. 15-16 í dag.
m
bl
.9
40
56
5
44 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÁGÆTI Kristján.
Þessa dagana er stjórn Fjar-
skiptasjóðs að bjóða út fjar-
skiptatengingar í dreifbýli. Fjar-
skiptasjóður hefur sett sér þær
reglur að ekki verði
gerð krafa um hvaða
tækni verður notuð til
að koma á fjarskipta-
sambandi við dreifðar
byggðir landsins. Þetta
eru mistök og mig lang-
ar til að vekja athygli
þína á því að áður hafa
verið gerð samskonar
mistök þegar tekin var
sú ákvörðun að allir
sem þess óskuðu í dreif-
býli skyldu hafa aðgang
að ISDN sambandi árið
2001.
Hugtakið háhraðatenging er mikið
notað í umræðunni. En hvað er há-
hraðatenging? Mig langar til að vísa
til fjarskiptaáætlunar fyrir árin 2005
til 2010 til útskýringar á hugtakinu
háhraðtenging: http://www.pta.is/
upload/files/fjarskiptaaetlun.pdf
Á blaðsíðu 15 í skýrslunni, í töflu 1,
er reynt að leiða að því getum hvað sé
háhraðatenging og hvernig hugtakið
muni þróast með auknum kröfum um
gagnaflutning. Til glöggvunar þá er
rætt um að árið 2007 verði há-
hraðatenging 50 Mbps. að og frá not-
anda.
Eflaust munu fjarskiptafyrirtæki
bjóða fram tækni sem byggist fyrst
og fremst á þráðlausum lausnum.
Þetta er til þess að fyrirtækin þurfi
ekki að leggja í kostnað við að leggja
ljósleiðara á hvern bæ heldur geti
komist sem ódýrast frá því að bæta
fjarskiptasamband í dreifbýli. Varð-
andi þráðlausar lausnir þá langar mig
til að vísa til reynslunnar í því sam-
bandi og vísa til greinar eftir þá séra
Geir Waage, Berg Þorgeirsson og
Óskar Guðmundsson sem birtist í
Mbl. þann 16.1.2007.
Víða liggja ljósleiðarar í dreifbýli
sem bíða þess að verða nýttir í þágu
íbúa viðkomandi sveitar
sbr. fyrrnefnda grein.
Fróðlegt viðtal er einn-
ig við Geir Árdal, bónda
í Dæli í Fnjóskadal, í
Mbl. þann 14.11. sl. en
þar kemur fram að
hann er að leggja ljós-
leiðara á eigin spýtur að
bæ sínum. Tekið er
fram að verkefnið muni
ekki njóta styrks frá
Fjarskiptasjóði. Til
hvers er Fjar-
skiptasjóður ef ekki til
að styðja verkefni eins
og verkefni Geirs bónda í Dæli? Enn
fremur bendi ég þér á frétt og viðtal í
seinni sjónvarpsfréttum RÚV þann
14.11. þar sem rætt var við Trausta
Þórisson, bónda á Hofsá í Svarf-
aðardal. Lýsing hans er nokkuð
raunsæ á þeim veruleika sem íbúar í
dreifbýli búa við í dag og munu búa
við aftur innan örfárra ára ef gripið
verður til annarra lausna en ljósleið-
ara.
Þegar tekin var ákvörðun á sínum
tíma um að bjóða öllum lögbýlum
landsins upp á ISDN samband var
verið að innleiða tækni sem reyndar
nýttist Landssímanum vel því hún
byggðist á lögnum sem þegar voru til
staðar. En tæknin nýttist ekki not-
endunum því árið 2001 var ISDN
gagnaflutningshraði úreltur og í dag
er ISDN tæknin komin á ruslahaug
sögunnar. Nægir að vísa til reynslu
Trausta, bónda á Hofsá, sem vísað er
til hér að ofan.
Nú hefur stjórn Fjarskiptasjóðs
sett það sem lágmark í útboði að
gagnaflutningshraði verði ekki lægri
en 2 Mbps! Þetta er móðgun við þá
hagsmuni sem stjórn sjóðsins á að
gæta en það eru hagsmunir íbúa í
dreifbýli á Íslandi. Það er ekki gert
með því að setja viðmið í gagnaflutn-
ingshraða sem er úreltur í dag og
þætti ekki boðlegur í þéttbýli, auk
þess að verða orðinn algerlega úreltur
eftir 2 til 3 ár. Ég bið þig um að koma
því til leiðar að ekki verði aftur tjaldað
til einnar nætur eins og gert var með
ISDN tæknina á sínum tíma. Þá var
fjármunum kastað á glæ. Látum það
ekki gerast aftur. Íbúum í dreifbýli
hefur stundum fundist eins og þeir
væru annars flokks þegnar þegar
kemur að ýmiskonar þjónustu af
hálfu hins opinbera. Nú er lag að þú,
sem þingmaður úr dreifbýli, standir
með þínu fólki í þessu máli.
Sem framtíðarlausn varðandi
grunnþarfir landsmanna í fjar-
skiptum er aðeins um eina lausn að
ræða en það er ljósleiðari. Þráðlaus
sambönd geta einfaldlega ekki keppt
við ljósleiðarann varðandi uppitíma
og gagnaöryggi. Ég bið þig um að láta
ekki villa þér sýn með því láta úrtölu-
menn halda öðru fram. Í þessu máli
þarf að horfa til framtíðar, ekki til for-
tíðar eins og nú stefnir í. Fjárfesting í
ljósleiðara er ekki ódýrasta lausnin en
hún er langsamlega arðbærust þegar
til lengri tíma er litið (sbr. verðmat
Gagnaveitu Reykjavíkur nú nýverið).
Áhrifin á byggðaþróun og búsetuskil-
yrði eru ótvíræð, það kemur glöggt í
ljós við skoðun á þeim greinum og við-
tölum sem ég vitna til hér að ofan.
Mig langar til að biðja þig um að
koma því til leiðar að reglunum um
Fjarskiptasjóð verði breytt á þá leið
að sjóðurinn muni eftirleiðis aðeins
veita styrki vegna fjarskiptateninga
til lögbýla með ljósleiðara. Þetta
snýst jú fyrst og síðast um hagsmuni
íbúanna í dreifbýlinu.
Ég leyfi mér að óska eftir svari við
þessu bréfi mínu.
Að lokum langar mig til að benda
þér á grein sem ég skrifaði í Morg-
unblaðið og birtist þann 28.10.2007 sl.
og fjallar um ljósleiðaratengingar í
dreifbýli. Hægt er að nálgast greinina
á slóðinni www.birting.net/greinar og
í gagnasafni Mbl.
Með vinsemd og virðingu.
Opið bréf til Kristjáns L.
Möller samgönguráðherra
Ingólfur Bruun skrifar
bréf til samgönguráðherra
um fjarskipti
» Sem framtíðarlausnvarðandi grunn-
þarfir landsmanna í
fjarskiptum er aðeins
um eina lausn að ræða
en það er ljósleiðari.
Ingólfur Bruun
Höfundur er áhugamaður
um bætt fjarskipti.
Lögg. fasteignasali
Hrafnhildur Bridde
Sigurberg Guðjónsson hdl.
Hrafnhildur Bridde,
lögg.fasteignasali
821 4400
534 2000
www.storhus.is
Skógarhlíð 22 • 105 Reykjavík • Sími 534 2000 • Fax 534 2001 • www.storhus.is
BERGSTAÐASTRÆTI, 101 REYKJAVÍK.
RÚMGÓÐ OG VEL SKIPULÖGÐ EFSTA HÆÐ Í TVÍBÝLISHÚSI
ÁSAMT BÍLSKÚR. SVALIR OG HÁTT TIL LOFTS
Tvö svefnherbergi. Rúmgóð stofa með
góðum gluggum og er eldhúsið opið
inn í stofuna. Suð-vestur svalir með
útsýni. Baðherbergi m/baðkari. Íbúðin
og geymslan eru 89,3 fm og bíl-
skúrinn 22,9 fm. VERÐ 37 MILLJ.
BÓKIÐ SKOÐUN !
155 fm + bílskúr. 1, 4. og 2.hæð en
hún er án bílskúrs með tvennum
svölum sem snúa til suðurs og
austurs. 4.svefnherb, mjög rúmgóð
stofa, baðherb. m/baðkari og sturtu-
klefa. Eldhúsið er opið inn í stofu með
eldunareyju. Þvottahús í íbúð. Lyfta.
VERÐ 37,5 - 41,8 MILLJ. SKIPTI Á
MINNI EIGN KOMA TIL GREINA!!
BÓKIÐ SKOÐUN !
ATH! SELJANDI GREIÐIR STIMPILGJÖLD
LAUSAR ! ÁSAKÓR 9, KÓPAVOGUR.
5.HERB. ÍBÚÐIR M/BÍLSKÚR.
Kjarrvegur 2
Glæsilegt einbýlishús í Fossvogsdalnum við opið svæði
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Glæsilegt einbýlishús/tengihús staðsett við opið svæði,
skógi vaxið með útsýni yfir Fossvogsdalinn og til sjávar.
Húsið er um 380,0 fm þ.m.t. 30,7 fm bílskúr, kj. og tvær
hæðir, innréttað á vandaðan og smekklegan hátt og
skiptist m.a. í 4 glæsilegar stofur, tvær garðstofur, eld-
hús með ljósum innrétt-ingum, 5 góð herb. auk líkam-
sræktarherb. og fataherb. og tvö baðherb. Allar innrét-
tingar eru sérsmíðaðar og granít, parket og flísar á gól-
fum. Suðursvalir út af efri hæð. Ræktuð lóð með fallegu
holtagrjóti og timburverönd með skjólveggjum.
Verð 135,0 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag,
frá kl. 14-16. Verið velkomin.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
m
bl
.9
40
33
7
Hásalir 1 – Kópavogi
OPIÐ HÚS Í DAG
Sunnudag 25 nóv. 2007 kl.16.00 – 17,00
Verulega fallegt parhús með frábæru útsýni.
Allar nánari upplýsingar veitir Baldvin Ómar í síma 898-1177 M
bl
9
40
61
1
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Glæsilegt mikið endurnýjað einbýlishús á frábærum stað í Þingholtunum alls
269,8 fm. Tvennar svalir fallegur garður með stórum garðskála. Upphitað hellu-
lagt bílaplan. Verð: 92,9 millj.
jöreign ehf
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG FRÁ 14 - 16
ÞINGHOLTSSTRÆTI 14
Dan Wiium tekur á móti áhugasömum
í dag milli kl. 14 - 16
M
bl
.9
40
97
2-