Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.11.2007, Síða 48

Morgunblaðið - 25.11.2007, Síða 48
Sýnum í dag 4ra herb., 101 fm, á 3. hæð í fjölbýli í Kópa- vogi. Íbúð skiptist í: Hol, stórar stofur, glæsilegt útsýni yfir Fossvogsdalinn, eldhús með búri inn af, baðherbergi, þvottahús, þrjú svefnherbergi. Sérgeymsla og sameiginleg hjóla/vagnageymsla í kjallara. Snyrtileg íbúð á góðum stað, stutt í skóla og alla þjónustu. V. 23,9 millj. Sveinn Eyland gsm: 6-900-820 sölumaður fasteign.is verður á staðnum. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15-15:30 KJARRHÓLMA 8 – KÓPAVOGI 3. HÆÐ LINDA Á BJÖLLU SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali. M b l 9 40 55 5 48 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Sími 533 4800 Glæsilegt 200,1 fm. parhús og 82 fm. bakhús mynda þessa sérstæðu eign sem er samtals 282,1 fm. Húsin standa á 1.320 fm. gróinni lóð. Á neðri hæð parhússins er meðal annars stór stofa og fallegt eldhús, á efri hæð eru svefnherbergi og baðher- bergi. Bakhúsið er einnig á tveimur hæðum og er í leigu. Góður bílskúr með gryfju. Miklir möguleikar felast í þessari skemmtilegu eign. Sjón er sögu ríkari. Beykihlíð – parhús og bakhús – Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! – m bl .9 40 16 9 Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013 Vel innréttað skrifstofu- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð, götuhæð alls 193,3 fm. Bjart húsnæði með gluggum á þrjá vegu. Nýleg vönduð eign, góð aðkoma, frábær stað- setning. Hentar vel sem verslun. Verð: 45,0 millj. Vorum að fá í sölu um 60 fm rými á jarðhæð á góðum stað í vesturbænum. Hús- næðið er með góðum gluggum að framanverðu og innkeyrsluhurð bakatil. Gæti nýst margvíslegri starfsemi. Stæði í lokuðu bílastæðahúsi. Laust strax. Verð: 13,9 millj. jöreign ehf ATVINNUHÚSNÆÐI HRINGBRAUT-107 RVÍK. - JARÐHÆÐ LÆKJARGATA HAFNARF. Vorum að fá í sölu 77 fm verslunarhúsnæði á góðum stað. Góðir nýjir gluggafront- ar. Einnig atvinnu- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð í sama húsi. Þrír eignarhlutar. Stærðir 96,9 fm, 106,2 fm og 157,5 fm. Innkeyrsluhurðar og gönguhurðar á öllum eignarhlutum. Mikið endurnýjað. Salerni, eldhúskrókur, skrifstofa og vinnusalur. LANGHOLTSVEGUR - LAUST STRAX M bl .9 37 75 5 Kristinn Valur Wiium Ólafur Guðmundsson sölumaður s. 896-6913 sölustjóri s. 896-4090 Um er að ræða sérlega glæsilega 4ra til 5 herbergja 126 fm íbúð á 2. hæð (efri) í litlu 2ja hæða fjölbýli ásamt bílskúr. Glæsilegar nýlegar innréttingar og parket. Góðar suðursvalir. Frábært útsýni. Stutt í skóla, leik-skóla og aðra þjónustu. Íbúðin er á einum besta stað í Hamrahverfinu. Gjörið svo vel að líta við. Þorkell og Þóranna taka vel á móti ykkur. ÍBÚÐIN LOSNAR Í DESEMBER NK. SPORHAMRAR 10 GRAFARVOGI Opið hús í dag sunnudag á milli kl 14 og 17. m bl.940500 Á MILLI fyrsta og síðasta andvarps mannsins er heil ævi, löng eða stutt eftir at- vikum. Vígður lífinu með sigurtákni þess bæði á enni og á brjósti, ristur í lófa frelsarans, skráð- ur í bók lífsins heldur líf mitt í ferðalag, sem aldrei tekur enda. Eilífðar ferð í gegn- um ævina að hinu síð- asta andvarpi, í gegn- um dyr dauðans og inn til lífsins. Lífsins með Jesú hjá Guði að eilífu. Ævi mannsins er eitt og líf hans er annað. Þó samofið þangað til dauðinn skilur að. Ævi mannsins er stutt, en lífið er langt. Ævinni lýkur við síðasta andvarp, en lífið heldur áfram. Það heldur á fund eilífs friðar og lífs hjá Guði sem einn megnar að kveikja líf, næra það og vekja, hlúa að því, við- halda því og varðveita það. Ævin er aðeins ögn af eilífðinni. Eitt stund- arkorn, eins og ljós- blossi. Hún er eins og dýrmæt lítil fögur perla. Afar viðkvæm, ósjálfbjarga perla sem okkur er úthlutað til umsjár af höfundi lífs- ins. Stundum er líf mitt eins og vængbrotinn fugl sem flögrar hálf- laskaður og stefnulaus í gegnum ævina. Stund- um hægt og stundum hratt. Stundum er ég glaður, hlæ og leik við hvern minn fingur. Og stundum er ég leiður og niðurdreginn, sorgmæddur og særður og ég græt. Þegar þannig er komið finnst mér svo gott að staldra við úti í nátt- úrunni, hinni meistaralegu og óvið- jafnanlegu sköpun. Hugsa til baka, biðja og horfa fram á veginn. Því þá finn ég vermandi andblæ um mig leika. Ljúfan andvara lífsins, yl eilífð- arinnar. Þá finn ég að ég er hluti af einhverju. Einhverju meiru og stærra en ég næ að skilgreina eða halda utan um. Einstök upplifun. Eins og forréttur að mikilli veislu Ævinnar gleði er eitthvað svo skelfing skammvinn og velgengnin völt. Sigrarnir geta vissulega verið sætir en sigurkransarnir svo ótrúlega fljótir að fölna. Hin varanlega gleði er fólgin í því að eiga nafn sitt letrað í lífsins bók með himnesku letri með hendi frelsarans, Jesú. Gleðjumst þeirri gleði, hún er nefnilega sig- ursveigur sem ekki fölnar. Ég er þess fullviss að ævi mannsins er aðeins rétt eins og forréttur að þeirri miklu veislu sem lífið er. Ef von mín næði aðeins til þessarar ljúfsáru allt of stuttu ævi, þá væri ég afar aumkunarverður maður. Þá væri lífið bæði dimmt og kalt, stutt og snautt, steindautt. Þú ert elskaður út af lífinu Í ljósi mannlegs veruleika ert þú aðeins eins og sandkorn á strönd. Sandkorn sem treðst undir í baráttu daganna. En í ljósi Guðs ertu óendanlega dýrmæt perla, einstakur gimsteinn, fullur af lífi og fegurð, fullur af leynd- ardómsfullum tilgangi í eilífri áætlun Guðs. Guðs sem elskar þig út af lífinu. Láttu því lífið ekki renna þér úr greipum eins og sand sem fýkur út í loftið og verður viðskila við sjálfan sig og tilgang sinn. Spáðu í frelsarann þinn, Jesú. Hann sem er lífið sjálft. Hann spáir í þig. Hann gefur þér grið og vill veita þér eilífan frið. Getur kannski verið eftir allt sam- an að þið eigið samleið, þú og lífið? Njótum forréttarins í ljósi þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Ævin og lífið Sigurbjörn Þorkelsson skrifar hugvekju »Ævin er aðeins ögnaf eilífðinni. Eitt stundarkorn. Hún er eins og lítil fögur perla. Viðkvæm, ósjálfbjarga perla sem okkur er trú- að fyrir. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er rithöfundur og fram- kvæmdastjóri Laugarneskirkju. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.