Morgunblaðið - 25.11.2007, Qupperneq 52
Fréttir á SMS
Kjarrmóar 12- Garðabæ
Endurnýjað raðhús
Opið hús í dag frá kl. 14-15
Fallegt 85 fm raðhús sem er hæð og ris ásamt 30 fm sérstæðum bílskúr.
Á aðalhæðinni eru anddyri, hol, stofa með útgangi á verönd, opið eldhús,
1 herbergi og baðherbergi. Uppi er opið parketlagt opið rými. Eignin er
mikið endurnýjuð. Laust til afhendingar strax. Verð 39,5 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-15.
Verið velkomin.
Sörlaskjól 94
Glæsileg neðri sérhæð
ásamt bílskúr
Opið hús í dag frá kl. 16-17
Glæsileg 109 fm neðri sérhæð í góðu steinsteyptu þríbýlishúsi ásamt 25
fm bílskúr á þessum eftirsótta stað í vesturbænum. Hæðin er mikið
endurnýjuð á vandaðan og smekklegan hátt m.a. gólfefni, innréttingar og
innihurðir og skiptist m.a. í 2 rúmgóðar stofur, 2 herbergi og vandað eld-
hús. Svalir til suðvesturs. Fallegt útsýni til sjávar. Laus til afh. við kaup-
samn. Verð 49,0 millj.
Eignin verður til sýnis í dag,
sunnudag, frá kl. 16-17.
Verið velkomin.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
VANTAR ÞIG EIGN FYRIR JÓL?
TVÆR EIGNIR LAUSAR TIL
AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING
52 SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Um er að ræða vel staðsett skrifstofuhúsnæði
með skrifstofuhúsgögnum.
Til leigu eru 200 og 600 fm rými.
Afhending er í mars 2008.
Nánari upplýsingar veitir
Hákon Jónsson í síma 824 9095.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Stórhöfði - Fullbúið skrifstofuhúsnæði til leigu
Einstakt tækifæri 172fm lúxus íbúð á þessum frábæra stað í Kópavoginum.
Íbúðin er fullbúin og var mikið lagt í allar innréttingar og frágang.
Glæsilegt útsýni. Verð 49.9 millj.
Þverholti 14 | 105 Reykjavík | Sími 595 9000 | www.holl.is | holl@holl.is
M
b
l 9
40
19
0
Opið hús - Perlukór 1A
Í dag sunnudag frá kl 15 – 16 sýnum við glæsilega
eign við Perlukór 1A í Kópavoginum.
Ítarlegri upplýsingar liggja fyrir
á skrifstofu Hóls, Þverholti 14.
Upplýsingar gefur Stefán Bjarni: 6944388
og Ólafur Sölvi : 6939988
ALÞJÓÐARÁÐSTEFNA Rauða
krossins og Rauða hálfmánans er
að jafnaði haldin í Genf á fjögurra
ára fresti og er einn mikilvægasti
vettvangur mannúðar-
umræðu í heiminum.
Á ráðstefnuna koma
saman fulltrúar Al-
þjóða Rauða krossins
og landsfélaga sem til-
heyra hreyfingu
Rauða krossins og
Rauða hálfmánans,
sem og talsmenn
þeirra þjóðríkja sem
aðild eiga að Genf-
arsamningunum. Búist
er við því að um 1.500-
1.800 manns taki þátt í
ráðstefnunni í ár en
þar verður fjallað um markmið
Rauða kross-hreyfingarinnar til
ársins 2011. Ráðstefnan í ár er
haldin undir kjörorðunum „Saman í
þágu mannúðar“.
Eitt af meginmarkmiðum ráð-
stefnunnar nú er að fjalla um þann
vanda sem steðjar að íbúum jarðar
á komandi áratugum. Meðal helstu
umræðuefna má nefna stórfellda
fólksflutninga milli landa og heims-
hluta, vaxandi glæpi og ofbeldi í
borgum, sjúkdómsfaraldra, lofts-
lagsbreytingar og annan umhverf-
isvanda. Á ráðstefnunni munu sam-
starfsaðilar ræða hvað
þeir geti gert í samein-
ingu til að hjálpa bág-
stöddum samfélögum
að takast á við fram-
tíðina.
Þátttakendur munu
einnig fjalla um sér-
stöðu landsfélaga
Rauða krossins og
Rauða hálfmánans
hvað varðar samstarf
þeirra við ríkisstjórnir
í heimalöndum sínum
og þörfina fyrir al-
þjóðlega staðla á sviði
neyðaraðstoðar. Á ráðstefnunni
verður jafnframt rætt um hið mik-
ilvæga hlutverk alþjóðlegra mann-
úðarlaga. Landsfélög Rauða kross-
ins munu einnig samþykkja
sameiginleg áheit með rík-
isstjórnum síns heimalands um
samvinnu um mannúðarstarf 2008-
2011 í samræmi við málaflokkana
sem eru til umræðu að þessu sinni:
loftslagsbreytingar; fólksflutninga,
smitsjúkdóma og starf á átaka-
svæðum.
Hreyfing Rauða krossins og
Rauða hálfmánans leggur höf-
uðáherslu á nauðsyn þess að eiga
með sér náið samstarf til að mann-
úðaraðstoð berist tímanlega og skili
tilætluðum árangri. Hreyfingin
byggir að þessu leyti á víðtækri
reynslu sinni sem stærsta mann-
úðarhreyfing heims.
Rauða kross-hreyfingin stendur
vel að vígi í mannúðarstarfi sínu
jafnt á heimavelli og í alþjóðlegu
samstarfi. Alþjóða Rauða krossinn
og landsfélögin nýta sameiginleg
aðföng og skiptast á þeirri sérþekk-
ingu sem hver og einn býr yfir.
Ekki síst nýtur Rauða kross-
hreyfingin þeirra milljóna sjálf-
boðaliða og starfsmanna sem ætíð
eru reiðubúnir til starfa um allan
heim. Markmið alþjóðaráðstefn-
unnar er að byggja áframhaldandi
starf sitt á þeim einstaka styrk sem
hreyfingin býr yfir, efla alþjóðlegt
samstarf enn frekar og fá fleiri að-
ila til liðs við hana.
Ekkert eitt samfélag, ríkisstjórn
eða hreyfing getur tekist á við þá
miklu erfiðleika sem steðja að íbú-
um veraldar án þess að eiga öflugt
og gott samstarf við aðra sem vinna
að sömu markmiðum. Ef þeir sem
tengjast hreyfingu Rauða krossins
og Rauða hálfmánans njóta þess
stuðnings og hagræðis sem hlýst af
víðtæku alþjóðlegu samstarfi verð-
ur árangurinn af baráttu þeirra
mun meiri en samanlagður ávinn-
ingur af því sem þeir gera einir.
Saman í þágu mannúðar
Kristján Sturluson skrifar í til-
efni af alþjóðaráðstefnu Rauða
krossins og ríkisstjórna 26.-30.
nóvember
» AlþjóðahreyfingRauða krossins og
ríkisstjórnir leggja línur
um samstarf næstu
fjögur árin á sameig-
inlegri ráðstefnu 26.-30.
nóvember.
Kristján Sturluson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Rauða kross Íslands.