Skinfaxi - 01.11.1938, Síða 56
13G
SKINFAXI
aðssamböndum að leila samvinnu við öll æsku-
lýðsfélög kaupstaðanna um aðgei'ðir i atvinnu-
málum æskunnar við sjóinn. Skal lagt til grund-
vallar frumvarp til laga frá sambandsstj. U. M. F.
I. og nefnd frá fulltrúaþingi ísl. barnakennara.
Einnig skal leitað samvinnu við Samband ísl.
barnakennara. Þingið iivetur mjög til þess að
framkvæmdir verði hafnar í þessu miáli hið bráð-
asta, með ræktunarstarfi eða öðru, enda þótt i
smáum stil sé.
Umræður urðu talsverðar um þegnskylduvinnu.
Ekki varð komizt að neinni ákveðinni niðurstöðu. Var
málinu vísað til stjórnarinnar og mun það verða tekið
þar til athugunar.
Bindindismák Þingið tók þau til allrækilegrar at-
hugunar. Er því ekki að leyna, að skoðanir voru talsvert
skiptar, En ekki greindi þar á um takmarkið heldur
leiðirnar að þvi. Þingið skildist með prýði við ])etta mál
og vöktu samþykktir þess bergmál á ýmsum vetlvangi.
Eftirfarandi tillaga var smþykkt:
12. þing U. M. F. f. livetur öll U. M. F. til trúrrar
starfsemi fyrir heilbrigt skemmtanalíf með ])ví:
I. Að vanrækja aldrei á skemmtisamkomum sín-
um þau dagskráratriði, sem mennnigargildi bafa
og hagnýta sem bezt þá skemmtikrafta, sem völ
er á til þess. II. Að þola aldrei ölvaða menn á sam-
komum sínum og gera öruggar ráðstafanir, svo
að áhrifa þeirra gæti þar ekki, en samkomurnar
geti orðið almennar og farið vel og skipulag fram.
f smbandi við þessa till. er rétt að geta annarrar, sem
fram kom á þinginu:
12. þing U. M. F. í. þakkar U. M. S. B. myndar-
legan viðbúnað til betra skemmtanalífs, sem er
öðrum U. M. F. til fyrirmyndar.
Er U. M. S. B. nú ekki lengur frægt að áformunum
einum í þessu efni, heldur einnig að framkvæmdum.