Skinfaxi - 01.11.1938, Qupperneq 76
156
SKINFAXI
Milliþinganefnd í iþróttamálum.
Það er alkunnugt, að forsætisráðherra vor er íþróttamað-
ur góður og áhugasamur vel um þau mál. Hann hefir nú beitzt
fyrir því, að koma betra skipulagi á íþróttamál þjóðarinnar,
til eflingar og aukningar iþróttalífi og heilbrigði. Hefir hann
siðastl. vor skipað milliþinganefnd i þessu skyni, og á hún
að skila tillögum til næsta Alþingis. í skipulagsbréfi nefndar-
innar segir svo m. a.:
„Það skiptir að áliti ráðuneytisins miklu máli fyrir þjóð-
ina, að íþróttahreyfingin nái að eflast; og þó skiptir það'
ekki minna máli, að öll þróun iþróttahreyfingarinnar sé þann-
ig, að íþróttaiðkanir verði ekki aðeins almennar, heldur stund-
aðar með þeim hætti, að þær megi sem mest og bezt þroska
og efla einstaklingana, og nái þvi marki, sem þær eiga að
ná og geta náð: Að gera þjóðina starfhæfari og hamingju-
samari.
Til þess að þessu marki verði náð, og það sem fyrst, telur
ráðuneytið nauðsyn til bera, að taka íþróttamálin í landinu
til ítarlegrar athugunar og yfirvegunar. Ileðal annars, sem
rannsaka þarf, eru fjáröflunarmöguleikar íþróttastarfseminn-
ar, hvernig fé því er varið, sem til íþróttamálanna gengur,
bæði frá því opinbera og annarstaðar frá. Athuga þarf, hvernig
aðstaðan er nú til íþróttaiðkana og hvernig hún er notuð-
Þá þarf enn að athuga íþróttastarfsemina i skólum landsins
og fyrirkomulag hennar í ungmenna- og íþróttafélögum."
í nefndina voru skipaðir: Pálmi Hannesson rektor, for-
maður nefndarinnar, Aðalsteinn Sigmundsson þáverandi sam-
bandsstjóri U.M.F.Í., Erlendur Pétursson forstjóri, Erlingur
Pálssön yfirlögregluþjónn, Guðmundur Kr. Guðmundsson
skrifstofustjóri, Jón Kaldal ljósmyndari, Jón Þorsteinsson
íþróttakennari, Óskar Þórðarson læknir og Steinþór Sigurðs-
son menntaskólakennari. Nefndin tók til starfa þegar í vor.
Sendi hún út fyrirspurnir til ungmenna- og iþróttafélaga,
skóla og íþróttakennara um allt land, til þess að fá sem gleggst
yfirlit um það ástand, sem nú ríkir. Mun svo nefridin skila
áliti og frumvarpi til iþróttalaga til ríkisstjórnarinnar, áður
en Aljnngi kemur saman i vetur.
Því miður er töluverður misbrestur á því, að félög hafi
sent nefndinni umbeðnar upplýsingar. Er það mjög bagalegt,
og ættu þau Umf., sem sek eru um vanrækslu í þessu efni,
að bæta úr því sem skjótast.
Félagsprentsmiðjan h.f.