Skinfaxi - 01.04.1940, Blaðsíða 16
16
SKINFAXI
frumvarp, um tekjuöflun fyrir íþróttasjóö. En undir
því, að íþróttasjóður liaí'i fjárráð til dráttar, er það mjög
komið, að íþróttalögin komi að tilætluðum notum.
II.
Enginn cfi getur leikið á því, að fé og fyrirhöfn, sem
varið er til aulcinnar lieilbrigði þjóðarinnar, er vel varið.
Eéð kemur aftur ávaxtað: beint í meiri afkastagetu þjóð-
arimmar, auknu starfsþreki og lengra lífi einstakling-
anna, — óbeint í betri líðan, meiri lífsgleði. Þess vegna
verður að lelja það efalaust, að þjóðfélagið má flestu
öðru siður til þess spara, að gera ráðstafanir lil aukinn-
ar lieilbrigði. Verður í því efni fyrst og fremt að leggja
á það áherzlu, að hver ung kynslóð þjóðarinnar sé var-
in svo sem verða má fyrir sýkingu og lieilsuspjöllum,
og að hverjum ungum einstaklingi séu tamdar þær lífs-
venjur, sem leiða til Iieilbrigði og langlífis. Má þetta
verða með ýmsu móti, á ýmsum sviðum. Skal bent hér
á nokkur atriði, en í þeim öllum er þörf miklu víðtækari
og gagngerðari ráðstafana og úrbóta ríkisvaldsins, en
nú er raun á:
1. Bætt húsakynni, svo að heilsa manna spillist ekki
vegna kulda, raka eða spillts lofts í híbýlum.
2. Aukin fræðsla um almenn heilsufræðiefni, svo
sem næringargildi og heilbrigðisgild fæðutegunda, þýð-
ingu áreynslu, hvíldar og svefns, heilbrigðisgildi ljóss
og lofts, smitun og smitunarleiðir o. s. frv.
3. Útrýming eiturnautna.
4. Ráðstafanir til tryggingar þvi, að allir uppvaxandi
einstaklingar fái nægilega næringu og næg fjörefni í
fæðunni.
5. Nákvæmt eftirlit með heilsufari og heilbrigðisupp-
eldi barna og unglinga, og aðgerðir í tíma, ef með ])arf.
í því sambandi er ástæða lil að minna á brýna þörf
barnasjúkrahúss.
6. Ráðslafanir til afnáms slysahættu, svo sem að