Skinfaxi - 01.04.1940, Qupperneq 27
SKINFAXI
27
V.
Iþróttalögin hlutu fúllnaöarsamþykki Alþingis í des-
embermánuði s. L, mjög litið breytt frá frumvarpi
íþróttamálanefndar. Með þeim er vafalaust stigið mjög
merkilegt skref i íþróttamálum þjóðarivmar. Sennilega
valda þau engri snöggri breytingu, og þó ætli að hef jast
með þeim nýtt og hetra tímahil í íþróttasögu landsins.
Ungmennafélögin hafa, að eg held, fulla ástæðu til að
vera ánægð með lögin. Þau taka fullt, sanngjarnt og
eðlilegt tillit til Umf., starfsemi þeirra, þýðingar og að-
stöðu. Félögunum er veilt hlutdeild i stjórn íþróttamál-
anna, aöstaða til að hljóta styrk eftir verðleikum sínum,
og full réttindi sem íþróttafélögum, innan þeirra tak-
marka, sem þau liafa sjálf valið íþróttastarfsemi sinni.
Nú þurfa Umf. að kynna sér lögin vel og liugsa og skipu-
leggja framtiðarstarfsemi sina að iþróttamálum. Áríð-
andi er, að félögin sendi þeim manni, sem valinn verður
af þeirra hálfu í iþróttanefnd, sem l'jölhreyttastar og
nákvæmastar upplýsingar um ástand og framtíðar-
áætlanir um íþróttamál, svo að hann geti unnið skipu-
lega og rökfast að því, að veita stuðningi þangað, sem
þörf er mest.
En þó að íþróttalögin séu að vísu merkilegt skref i
rétta átt, eru þau þó aðeins einn áfangi á langri leið, og
verða menn jafnan að vera minnugir þess. Næsta skref-
ið er að tryggja íþróttasjóði fé svo um muni. En síðan
þarf að snúa sér með festu að öðru því, sem gera þarf
til eflingar heilbrigði æskunnar —- þjóðarinnar í fram-
itið.