Skinfaxi - 01.04.1940, Qupperneq 35
SKINFAXI
35
liugsjónir með vörunum, en vinna eklci fyrir þær. Það
má ósköp vel J)enda á þá, sem játa í orði og vegsama
með málskrúði ýmsar hugsjónir, en lifa þeim þó ekki
— þjóna þeim ekki með slarfi sínu. Þvi miður á það
sér oft stað, að menn tala um nauðsyn, réttifiæti og
ágæli þeirra mála, sem þeir vilja ])ó engu fórna fyrir
og' engu styðja, nema innantómu gaspri einu saman.
Slik dæmi um lcokhreysti og smjaður, veilufylgi og
varajátningu, eru leiðinleg víli til varnaðar. En þá ynnu
ómerkilegir menn stærra verk en efni eru til, ef þeir
kæmu óorði á allt hugsjónalíf með íslöðuleysi sínu. Það
er alveg satt, að það lijálpar manninum ekki, að verða
snortinn hugsjón, ef hann hefur ekki þrek til að lifa
fyrir hana og bregzt jafnan, þegar á hann reynir og
einhvers þarf með. Slikt veilufylgi og ótryggð, sljkt dað-
ur við stefnumál eykur ístöðuleysi manna og veiklar
viljalífið, og er því mannskemmandi. Til þess að hug-
sjónin geti bjargað manninum, þarf hann að eiga liana
og hún að eiga hann. Hún þarf að fylla liuga lians,
svo að fánýtið komist þar ekki að. Hún þarf að kalla
krafta hans að þroskandi starfi, svo að hann sé vaxandi
maður, — lifsþróttur hans fágist og skírist í fórnfúsri
baráttu, og líf hans verði öðrum mönnum eggjandi
dæmi og styrkjandi fyrirmynd. Þannig er liugsjónalíf-
ið og dæmi slíks vænti ég að séu mörg í hverri sveit
og hverju þorpi. Af þeim her að læra. Þau eiga að l'æða
af sér fleiri dæmi slík.
Það er líka annað, sem mannkynssagan sýnir okkur.
Því betur, sem við athugum hana, — og sama á við
um sögu okkar eigin þjóðar, — því ljósara verður okk-
ur það, að þrátt fyrir allt er lífið betra en áður á öldum
og lífskjör manna bærilegri. Mennirnir eru yfirleitt
betri. Svona er það, þrátt fyrir alla ófremd okkar thna.
Slik vitneskja gefur okkur trú á framtíð mannsins og
fær okkur til að líta með bjartsýni og þrautseigri trú
hverskonar velferðarbaráttu, hversu illa sem annars lít-
3*