Skinfaxi - 01.04.1940, Blaðsíða 54
54
SlvlNFAXr
þar sem oss öllum jarðarbörnum er ællað að nema land, fyrr
eða síðar.
Okkur félögum Sigmundar og skólasystkinum þykir sárt að
missa hann úr okkar hópi, en það er gott að minnast sam-
verustundanna.
Góðar minningar hvetja til góðra verka.
Skúli Þorsteinsson
frá Oseyri.
Sigurður Thorlacius:
Arfur íslendinga.
Vinsældir bókmenntafélagsins Máls og menningar fara vax-
andi með hverju ári. Er það meðal annars Ijóst af því, að
félagatalan hefur margfaldazt á örskömmum tíma. Mál og
menning gefur út mjög vandaðar og góðar bækur. Er því inn-
streymið i félágið fagurt vitni um fróðleiksfýsn og smekk-
visi íslenzkra lesenda.
Mál og menning hefur nú ákveðið að ráðast í nýtt stór-
virki. Félagið ætlar að gefa út árið 1943 rit um ísland og
íslendinga, náltúru landsins, sögu j)jóðarinnar, menningu, bók-
menntir og listir. Ritið heitir Arfur fslendinga og verður i
5 stórum bindum. Sigurður Nordal prófessor hefur tekið að
sér yfirstjórn úlgáfunnar og ritar sjálfur meginið af tveim-
ur bindunum. Fyrirætlunum S. N. verður bezt iýsl með til-
vitnunum í greinargerð lians, er birtist i Tímariti Máls og
menningar, júlíhefti ]). á. Þar segir m. a.:
„Eg hef ekki einungis tekizt starf mitt að þessu ritverki
á liendur fyrir Mál og menningu vegna þess, að hinn fram-
takssami formaður félagsins átli frumkvæðið að því að gera
áætlun um efni ])ess, sem mér gazl vel að, heldur líka af
þeirri ástæðu, að eg sé ekki annað íslenzkt útgáfufyrirtæki,
sem hafi jafngóð skilyrði til þess að gera slíkt ril rausnar-
lcga úr garði og koma því i hendur mjög margra áhugasamra
lesenda. Einkanlega tel eg l>að mikils vert, að ]>essi fyrir-
ætlim mun standa eða falla með vilja og skilningi félagsmanna
sjálfra.....
Aðalheiti verksins, Arfur íslendinga, bendir nógu skýrlega