Skinfaxi - 01.04.1969, Blaðsíða 1
skinfaxi
Tímarit Ungmennafélags íslands — LX. árgangur — 1.—2. hefti ársins 1969
Ritstjóri Eysteinn Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju, hvert 32 slður
28. 6. 1883 — 5. 10. 1968
Fyrsti formaður UMFf er fallinn í valinn
í hárri elli. f endurminningum sínum
segir hann m. a.: . . ég hélt heim um
vorið til þess að frelsa ísland". Jóhann-
es talaði aldrei tœpitungu. Þetta var
1905. Jóhannes kom heim frá Noregi,
uppfullur af baráttuhug og þjórœknis-
anda norsku ungmennafélaganna. A-
samt Þórhalli Bjarnasyni og fleiri á-
hugasömum vinum sínum réðst hann í
það hlutverk að reyna að vekja íslend-
inga til dáða og að fá íslenzka œsku
til að sýna reisn og baráttuhug. Til
þess voru ungmennafélögin stofnuð.
Jóhannes Jósefsson var í fararbroddi
þeirrar baráttusveitar í upphafi. Kjarkur
hans og ódrepandi árœði ruddi öllum
hindrunum úr vegi. Hann átti stœrsta
þáttinn í að koma ungmennafélags-
hreyfingunni á fót fyrir rúmum 60 ár-
um. Hann var frumkvöðull að stofnun
Umf. Akureyrar í ársbyrjun 1906. Á
hinni sögulegu Þingvallahátíð sumarið
1907, þegar Friðrik kóngur áttundi var
hér í heimsókn, gengu 12 menn 1 lit-
klœðum um vellina og þótti þetta ný-
stárleg sjón. Þeir voru fulltrúar fjögurra
ungmennafélaga, og þarna stofnuðu
þeir Ungmennafélag íslands. Brautryðj-
andinn Jóhannes Jósefsson var kosinn
formaður og fór vel á því. Forystu hans
naut ekki lengi við, því árið eftir hófst
hin langa sýningarferð hans erlendis,
sem varði í áratugi og víða um heim-
inn. En brautryðjendastörf hans lifðu á-
fram í ungmennafélagshreyfingunni,
sem nú kveður hann með þökk í huga.
Myndin af Jóhannesi, sem hér fylgir,
birtist í Skinfaxa árið 1914, og er ein
fyrsta myndin, sem blaðið birti.
Jóhannes
Jósefsson
SKINFAXI