Skinfaxi - 01.04.1969, Blaðsíða 11
flyzt aftur til fósturjarðarinnar eftir sjö
ára starf í Noregi. „Seint fyrnast fom-
ar ástir“, skrifar hann sjálfur og geng-
ur rakleitt til starfa á ný meðal ung-
mennafélaga. Hann birtir ávarp í Skin-
faxa, 5.—6. tbl. 1920, fer í erindrekst-
ur um Árnessýslu og Borgarfjarðar-
sýslu og í ágústmánuði tekur hann við
ritstjórn þessa málgagns á ný.
Það eru erfiðir tímar. Skuggar ó-
friðarins mikla grúfa yfir hugum
manna. „Menn hafa látið hugsjónir
sínar falla hér sem annars staðar,“ —
skrifar Helgi. Bjartsýni og eldmóður
aldamótaáranna hefur snúizt í kæru-
leysi, peningahyggju og vantrú á mann-
göfgi. Flóttinn úr sveitunum á mölina
er hafinn. I Skinfaxa skorar Helgi á
ungmennafélaga að láta samtökin „nú
sem áður vekja og glæða áhuga og
starfsþrá æskulýðsins í góðum og göfg-
andi félagsskap á þjóðlegum grund-
velli“. Helgi lætur af ritstjórastörfum
í árslok 1921.
I ársbyrjun 1922 hefst ritstjóralaust
tímabil Skinfaxa og annast sambands-
stjórnin imdir forystu Magnúsar Stef-
ánssonar um blaðið. Einkum mun Guð-
mundur Davíðsson og Guðmundur frá
Brennu hafa séð um útgáfuna. I fyrsta
tbl. er hin merka grein Guðmundar
Davíðssonar „Þingvallafriðunin“, þar
sem greint er frá upphafi hugmyndar-
innar um friðun Þingvalla en hugmynd-
inni um að gera Þingvöll að þjóðgarði
hafði Guðmundur hreyft þegar árið
1910. — Guðmundur ritar einnig um
Þrastaskóg og flytur fyrstur tillöguna
IIIIMIIHIIIIIINIIIIIIIIIIIIIIllllIIIINIIIIIIIllllllllllllMIIIIIIllllllllllllinilllMlllllllllllillllilllllillllllllllllllllIllinillllllllllllllllllllllllllllllMllllllllllllllllll
| Nafnið á tímariti UMFÍ er komið úr hinni
= miklu nafnauppsprettu Eddukvæðanna og
| Snorra-Eddu. í Vafþrúðnismálum er Óðni
| sjálfum lögð þessi vísa í munn:
| „Skinfaxi heitir,
| er inn skíra dregur
| dag of dróttmögu;
hesta beztur
þykir hann með Hreiðgotum;
ey lýsir mön af mari.“
Snorri Sturluson skrifar svo í Gylfaginn- =
ingu: — „Þá tók Alfaðir Nótt og Dag son =
hennar, og gaf þeim tvo hesta og tvær 1
kerrur og sendi þau upp á himin, að þau |
skuli ríða á hverjum tveim dægrum um- |
hverfis jörðina. Ríður Nótt fyrir þeim =
hesti, er kallaður er Hrímfaxi, og að |
morgni hverjum döggvir hann jörðina af f
mérdropum sínum. Sá hestur, er Dagur á, |
heitir Skinfaxi, og lýsir allt loft og jörðina §
af faxi hans". 5
Þessi ljósberi dagsins og birtunnar er því |
ákjósanlegt tákn fyrir ungmennafélags- |
hreyfinguna. í 1. tölublaði þessa tímarits |
árið 1909 segir svo í ávarpinu til ung- |
mennafélaga íslands: „SKINFAXI heitir =
hann, og sól og sumar vill hann breiða yf- I
ir land allt. Bera kveðju milli ungmenna- |
félaganna. Og færa þeim fréttir af starfi |
voru víðsvegar um land. — Hann vill |
flytja þeim hvatarorð og leiðbeiningar um =
starf þeirra.“ |
||■ll■ll■ll■llllllll■lllll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■lllll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■ll■lllll■ll■ll■ll■ll■ll■lllll■l^■
SKINFAXI
13