Skinfaxi - 01.04.1969, Síða 15
um ungmennafélögin í þessu þjóðfé-
lagsástandi í 1. hefti blaðsins 1936. —
Ungmennafélagshreyfingin gat ekki
látið þessi brennandi vandamál æsku-
fólks afskiptalaus. A 11. sambands-
þingi UMFÍ í Þrastaskógi 1936 var
samþykkt að setja eftirfarandi grein í
stefnuskrá UMFÍ: ,,Að vinna að því, að
næg og lífvænleg atvinna bíði allra
unglinga, er vaxa upp í landinu, þegar
þeir hafa náð starfsaldri eða lokið
námi“. „Ungmennafélögin hafa glatað
tilverurétti sínum, ef þau taka ekki til-
lit til og skilja kröfur æskunnar um
bætt efnaleg skilyrði," skrifar ungur
guðfræðingur í 1. hefti 1937, Eiríkur
J. Eiríksson, þá nýkjörinn varasam-
bandsstjóri. I grein sinni birtir Eiríkur
nýtt og vekjandi mat á viðfangsefnum
ungmennafélaga í samræmi við þjóð-
félagsþróunina og ástandið í heimsmál-
málunum. Sama ár skrifar Aðalsteinn
Sigmundsson langa og gagnmerka grein
um æskuna, vandamál hennar og úr-
ræði henni til handa. Greinin nefnist
„Atvinnulaus æska“ og í henni lýsir
Aðalsteinn þeim eymdarkjörum, se'm
ungu alþýðufólki eru boðin, og leggur
jafnframt fram tillögur til úrbóta.
Hinar pólitísku andstæður í þjóð-
félaginu aukast stöðugt. Arnór Sigur-
jónsson hvetur ungmennafélaga í grein
árið 1937 til að standa gegn tilraun
pólitískra leiðtoga eldri kynslóðarinnar
til að smala skólaæskunni með hótun-
um í svokallaða „Vökumannahreyf-
ingu“ grímubúinn pólitískan félagsskap
til varnar ráðandi skipulagi.
Friðsamlegri mál
A kreppuárunum var fjallað um
margt annað en þjóðfélagsleg deilumál
í Skinfaxa. Má þar t. d. nefna greinar
eftir Kristján frá Garðsstöðum og
Ragnar Ásgeirsson um málvöndun, ör-
nefni og mannanöfn. Ungur flugmað-
ur, Agnar Kofoed Hansen, ritar nokkr-
ar greinar og hvetur ungmennafélaga
til þátttöku í svifflugi og uppbyggingu
llugmála og flugsamganagna hér á
landi. 1939 ritar ungur jarðfræðingur,
Sigurður Þórarinsson, grein um nauð-
syn þess að stofna byggðasöfn til að
bjarga minjum og minningum um
forna hluti og lýsingum íslenzkra at-
vinnuhátta og lífskjara.
Landgræðsla en ekki hernám
1940 var síðasta árið, sem Aðal-
steinn Sigmundsson gegndi ritstjóra-
störfum við Skinfaxa, en tveim árum
áður hafði hann látið af störfum sam-
bandsstjóra UMFI. Aðalsteinn stýrði
blaðinu og veitti UMFÍ forstöðu á erf-
iðu tímabili. Hreyfingunni var það mik-
il gæfa að fá að njóta starfskrafta hans
og forystu. Hann var prýðilega ritfær.
Skrif hans í Skinfaxa vitna um fram-
sýni og víðsýni, góða menntun og óbil-
’ --------------- -------------------------------
Þegar ísland var hernumið 1940, skrifaði
Aðalsteinn greinina „Vér mótmælum allir“.
SKINFAXI
17