Skinfaxi - 01.04.1969, Síða 29
KJARTAN BERGMANN GUÐJÓNSSON:
HORFNIR AFREKSMENN
Upp úr aldamótunum reis upp stór sveit æskumanna, sem hóf á Ioft
merki ungmennafélaganna og bar það fram með glæsibrag. Margir
þessara manna urðu þjóðkunnir á sviði íþróttamála, félagsmála, at-
vinnulífs og stjórnmála. Á síðustu 2—3 árum hafa margir þeirra fallið
í valinn eftir Iangt og afkastamikið ævistarf. Þessir menn báru ætíð
ræktarhug til ungmennafélagshreyfingarinnar og margoft hafa þeir lýst
því í ræðu og riti, hversu hollur skóli ungmennafélagshreyfingin varð
þeim. Skinfaxa þykir hlýða að minnast þessara mætu manna með fáein-
um orðum og fór þess á leit við Kjartan Bergmann, formann Glímusam-
bands íslands, að hann minntist 6 horfinna ungmennafélaga, sem allir
áttu það sammerkt að vera góðir glímumenn og fjölhæfir íþróttamenn.
Jóhannes Jósefsson
Jóhannes Jósefsson glímukappi lézt í
Reykjavík þann 5. október 1968, 85
ára að aldri. Hann var fæddur á Akur-
eyri 28. júní 1883, sonur hjónanna
Jósefs Jónssonar frá Kristnesi í Eyja-
firði og konu hans, Kristínar Einars-
dóttur, ættaðri úr Köldukinn.
Þegar minnst er Jóhannesar Jósefs-
sonar, þá er óefað tvennt, sem hæst
ber. I fyrsta lagi var hann brautryðj-
andi á íþrótta- og vakningasviði ísl-
enzku þjóðarinnar. Jóhannes var sá
maður, sem stærsta þáttinn átti í því
að stofna íslenzku ungmennafélags-
hreyfinguna, sem var eins konar þjóð-
arskóli fslendinga.
Annað atriðið var glíman. Við glím-
una tók Jóhannes miklu ástfóstri og
þó hann hyrfi tiltölulega fljótt af í-
þróttapöllum íslands, þá hafði hann
valdið svo sterku ölduróti í tilveru
glímunnar með sínum óvenju miklu til-
þrifum, að lengi kenndi boða frá því
ölduróti.
I því sambandi má minna á hina svo
kölluðu veðmáls- eða verðlaunaglímu,
sem háð var á Akureyri í ársbyrjun
1906, en glíma þessi fór fram á milli
þeirra Ólafs V. Davíðssonar og Jóhann
esar og má hiklaust telja undanfara
fslandsglímunnar, en í þessum veðmáls
glímum sigraði Jóhannes.
Fyrsta Íslandsglíman var svo háð í
ágústmánuði 1906 og sigraði þar sem
kunnugt er Ólafur V. Davíðsson, en í
næstu Íslandsglímum, 1907 og 1908,
sigraði Jóhannes.
Jóhannes Jósefsson var glímukappi
SKINFAXI
31