Skinfaxi - 01.04.1969, Side 36
Ungmennafélagar, Skinfaxi er ykkar málgagn og sá vettvangur, þar
sem þið eigið að birta áhugamál ykkar og skoðanir á málefnum æsk-
unnar og þjóðfélagsins. Gerum það af áhuga og einurð, en flokkapólitik
leiðum við hjá okkur hér eftir sem hingað tii.
Maðkur í mysunni
Við íslendingar höfum viljað kalla þjóðfélag
okkar velferðarríki, en í því á að felast, að
hér ríkir almenn velmegun. Öll hljótum við
að fagna þeim miklu framförum, sem orðið
hafa í verkmenningu og almennri menntun
á síðustu áratugum. Þetta hefur fært þjóðinni
stórbættan efnahag á tiltölulega skömmum
tíma. En undanfarið hafa íslendingar orðið
áþreifanlega varir við, að gengi efnahags-
legra framfara er valt í velferðarríki þeirra.
Æskan þarf að gefa þessum málum meiri
gaum en hún hefur gert í góðærinu, því að
Verksmiðja í verkbanni. Mannlausir salir og
þöglar vélar Hampiðjunnar í Reykjavík
hennar er mátturinn og hennar verður ríkið.
Vinnustéttirnar hafa óþyrmilega fengið að
kenna á versnandi lífskjörum, en óhugnan-
legust er sú staðreynd, að vofa atvinnuleys-
isins hefur nú gert vart við sig á ný og lagt
sína dauðu hönd á líf þúsunda fólks. Jafn-
framt logar vinnumarkaðurinn í ófriði, kjara-
deilum, verkbönnum og verföllum. Fiski-
bátaflotinn lá bundinn í höfn í sex vikur í
byrjun vetrarvertíðar, og svipuð saga gerð-
ist í fyrra, að verulegu leyti vegna deilna
frystihúsanna við ríkisstjórnina. Verkbönn og
verkföll hafa skert þjóðarframleiðsluna sem
nemur milljörðum króna á þessu ári.
í nýbirtri skýrslu Seðlabanka íslands eru
ýmsar staðreyndir um hagvöxt og hagrýrnun
síðustu ára. Unga fólkið verður að kynna sér
slíkar upplýsingar, því það verður þess hlut-
verk að grafa fyrir rætur meinsins. Þjóðar-
tekjurnar rýrnuðu um 15% á árunum 1967—
1968, en næstu 6 ár þar á undan höfðu þær
aukizt um nær 50% eða um 7,1% á ári, sem
er einhver mesti hagvöxtur, er um getur hjá
nokkurri þjóð. Þrátt fyrir hnignunina síðast-
liðin 2 ár, eru íslendingar enn í röð þeirra
þjóða, sem hæstar tekjur hafa á hvern þjóð-
félagsþegn. Jafnframt er það staðreynd, að
38
SKINFAXI