Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1995, Qupperneq 24

Náttúrufræðingurinn - 1995, Qupperneq 24
Ha, þús 1961 1966 1971 1976 1981 Ár 7. mynd. Ræktun grœnfóðurcikra frá því grœnfóður- og kornrœkt hófst 1961 fram til 1985 er skýrsluhald lagðist af (Bún- aðarrit). mestum hluta innflutta túnvingulsins verið sáð af Landgræðslu ríkisins um land allt og einnig hefur Vegagerð ríkisins sáð túnvingli í vegkanta. Má telja að þarna sé kominn nýr landnemi í íslensku llóruna. Með erlenda sáðgresinu bárust til landsins ýmsar aðrar plöntutegundir sem í flestum tilfellum var illgresi í fræökrum erlendis. Sumar þessara tegunda ílentust um skamma hríð en nokkrar þeirra hafa náð fótfestu (Ingólfur Davíðsson 1967). Einnig eru dæmi um að sjaldgæfar sáð- gresistegundir hafi tórt lengi í túnum eða í nánd við ræktað land (Hörður Kristinsson 1986). ■ KORN'OGGRÆNFÓÐURRÆKT Upphaf kornræktar á síðari tíma má telja þegar Klemenz Kr. Kristjánsson varð til- raunastjóri á Sámsstöðum 1927. Hann hvatti menn mjög lil kornræktar og tókst um síðir að vekja verulegan áhuga bænda. Á árunum frá 1950 voru veittir jarðabóta- styrkir vegna nýrra akra. Fram til 1960 voru þetta einkum kartöfluakrar og akrar til framleiðslu annars grænmetis. Korn- rækt mun hafa náð hámarki upp úr 1960. Árið 1961 var t.d. sáð í um 280 ha í Gunn- arsholti (Morgunblaðið 9. sept 1961). í kringum 1965 féll kornrækt nær því niður nema á tveimur bæjum og þráðurinn var ekki tekinn upp að marki fyrr en um 1980. Sumarið 1994 var kornrækt á um 600 ha. Um 1960 hófst grænfóðurrækt að marki og hefur hún farið vaxandi síðan (7. mynd). Náði hún mest tæpum 6000 ha árið 1985, en þá var hætt að greiða jarðabótastyrki og féll skýrsluhald þar með niður. Miðað við fræinnflutning síðastliðin þrjú ár hefur grænfóðurrækt dregist saman um nær helming frá því sem mest var. Kornrækt byggist á því að sá byggi, sem er einær grastegund, til þroska. Hér hefur ávallt verið notast við erlend afbrigði og þau einkum sótt til Noregs og Svfþjóðar. Fyrir og um 1960 var mest notast við afbrigðin Edda, Flpya, Jptun og Herta frá Noregi og Svíþjóð. Upp úr 1960 kemur sænska afbrigðið Mari á markað og hefur verið hryggjarstykkið í íslenskri kornrækt síðan. Það var ekki fyrr en sumarið 1993 sem afbrigðum í ræktun fjölgaði verulega (8. mynd). Til grænfóðurs eru ræktaðar gras- og káltegundir, einærar eða tvíærar en nýttar sama sumarið og þeim er sáð. Þegar græn- fóðurrækt hófst að marki var einkum sáð fóðurmergkáli (Brassica oleracea var. acephala) og bættist haustrepja (Brassica napus var. biennis) fljótt við. Síðar var svo farið að rækta einært rýgresi, hafra og bygg til grænfóðurs. Á árunum 1971-1976 var rýgresi, hafrar og kál 30% af heildar- flatarmáli undir grænfóðri ár hvert og bygg var um 10%. Séu síðastliðin þrjú ár tekin til samanburðar hefur ræktun byggs og hafra minnkað verulega og eru þær tegundir samanlagt um 15% af heildar- flatarmáli, kál heldur sínum hlut, en rýgresisræktun hefur aukist verulega og er nú liðlega helmingur allrar grænfóður- ræklar. I grænfóðurrækt skiptir vetrarþol ekki máli og því eru þeir stofnar og afbrigði sem notuð eru suðrænni að kyni en flestar aðrar fóðurjurtir. Afbrigði af höfrum og byggi sem hér eru ræktuð til grænfóðurs eru að jafnaði ætluð til korn- frantleiðslu í heimalöndum sínum. Sama máli gegnir um repju að einhverju leyti. Grænfóðurbygg hefur oftast verið danskt og þau afbrigði sem ódýrust hafa verið á fræmarkaði hverju sinni. Afbrigði af höfrum hafa verið valin af nokkurri kost- gæfni og hafa flest afbrigði verið sænsk 134
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.