Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 57
Fílar
ÖRNÓLFU R THORLACIUS
Auk tveggja tegunda fíla sem nú eru
uppi liafa verið skráðar 350 tegundir
útdauðra dýra af œttbálki ranadýra,
Proboscidea. Fá dýr vekja meiri for-
vitni tnanna en fílarnir. / þessari grein
er saman tekinn ýmis fróðleikur um
þessi stórvöxnu spendýr, um líkams-
gerð þeirra, lífshœtti og þróun og um
samskipti fíla og nutnnafrá steinöld til
nútíma.
ílar eru stærstu núlifandi land-
dýrin. Líkast til hafa aldrei þrif-
ist stærri spendýr á landi, nema
________ stærstu jarðletidýr, Megatherium
americanum, sem lifðu í Suður-Ameríku
fyrir um hálfri milljón árá. Ef einnig er
litið til annarra landhryggdýra en spendýra
voru stærstu stóreðlur miðlífsaldar samt
enn stærri.
Nú eru uppi tvær tegundir fíla, afríkufíll,
Loxodonta africana, í Afrfku sunnan Sa-
hara, og indlandsfíll eða asíufíll, Eleþhas
maximus, á Indlandsskaga og víðar á
meginlandi Suðaustur-Asíu og á eyjunum
Sri Lanka, Súmötru og Borneó. Nokkur út-
litsmunur er á þessum dýrum (1. mynd).
Afríkufíllinn er að jafnaði stærri. Tarfar
verða þriggja til ijögurra metra háir og allt
Örnóll'ur Thorlacius (f. 1931) lauk fil.kand.-prófi í
liffræði og efnafræði frá Háskólanum í Lundi í Sví-
þjóð 1958. Hann var kennari við Menntaskólann í
Reykjavík 1960-1967, Menntaskólann við Hamra-
hlíð 1967-1980 og rektor þess skóla 1980-1995.
Samhliða kennslustörfum hefur Örnólfur samið
kennslubækur og hann hafði um árabil umsjón með
fræðsluþáttum um náttúrufræði í útvarpi og sjón-
varpi. Hann var um skeið ritstjóri Náttúrufræðingsins.
að IV2 lest. Indlandsfílar geta orðið
tveggja og hálfs til þriggja metra háir og 5
lestir. Indlandsfíll er með kryppu á baki en
hryggur afríkufíls gengur niður í boga á
milli herðakambs og lendar. Enni ind-
Iandsffls er hvelft en flatt á afríkuffl.
Afríkufíll er ineð stærri eyru en indlands-
ffll.
Gildir fæturnir eru með fimm tær, en
ystu tærnar eru rýrar og ekki alltaf með
neglur (hófa). Indlandsfíll er með fjóra
hófa á afturfótum (stöku dýr þó með
fimni) og fimm á framfótum. Flestir
afríkufílar eru með þrjá hófa á afturfótum
og fimm á framfótum.
Tennur ffla eru sérkennilegar. I efri
gómi eru tvær framtennur, afar stórar
skögultennur eða höggtennur. Þær eru nær
eingöngu úr tannbeini (,,fflabeini“). Að-
eins fremst er hetta úr glerungi. Högg-
tennurnar eru stærri í afríkufíl en indlands-
ffl og stærri í törfum en kúm. Þær vantar
raunar í flestar kýr indlandsfíls.
Núlifandi fílar hafa ekki framtennur að
neðan. Augntennur eru engar en einn
gríðarstór jaxl alsettur grófum fellingum í
hverjum gómhelmingi, alls fjórir (2.
mynd). Þar sem ffllinn er matfrekur og
neytir hrjúfrar fæðu, eins og trjágreina,
slitna jaxlarnir með tímanum. Jafnharðan
og einn eyðist, á 6-10 árum, tekur annar
að vaxa fyrir aftan liann, þokast fram og
kemur í hans stað og svo koll af kolli uns
komnir eru sex. Ef fíll lifir það að allir
jaxlarnir eyðist sveltur hann í hel. Fílar
lifa í mesta lagi fimmtíu til sextíu ár í nátt-
úrunni. í dýragörðum og sirkusum, þar
sem fóðrið er mýkra, slitna jaxlarnir hægar
og fílarnir gela orðið áttræðir.
Nattiirufræðingurinn 65 (3-4), bls. 165-177, 1996.
165