Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 81
12. mynd. Leiðólfsfell og Nauthólmar séð vestan yfir Skaftá. Greina má rofskurði og ofar
apalhraunin og háa brún Skaftáreldahrauns þar ofanvið. - Leiðólfsell seen from the west
across Skaftá and the lava flow of 1783. Nauthólmar, an area not covered by lava. Far-
ther the Leiðólfsfell lava and above it the Laki lava of 1783. Mynd/photo Jón Jónsson.
upprunalegri þykkt þess skal hér ósagt
látið. Við Eystra Hrossatunguvatn er ösku-
lagið 36 cm, í Nauthólmum og vestan
undir Hólaskafli 34-36 cm, sunnan undir
Sæmundarskeri 36-45 cm, í Tólfahringum
og á Kálfasléttum 36^40 cm, við Svarta-
núp 40 cm, Réttarfell 30-36 cm, hjá
Skaftárdal 12-14 cm, hjá Gröf 24 cm og
sunnan við Hrífunes 20 cm. Þetta lag er
auðþekkt af stærð, útlili og stöðu í jarð-
vegssniðum (sbr. snið). Sums staðar á
Landbrotsafrétti er það í dyngjum þar sem
jarðvegur hefur rofist ofan af því, eins og
nálægt Hrossatunguvatni. Sennilega munu
flestir halda þá vikurskafla vera frá
Skaftáreldum, en jarðvegssnið norðan við
valnið tekur af allan vafa því þar eru tvö
vel þekkt öskulög (O- og G-) ofan við það
og negla það þar með fast í tíma og rúmi.
Enn eitt einkennir þessa gosmyndun en
það eru Ijós (súr) vikurkorn sem á víð og
dreif koma fyrir, bæði í lausu öskunni og
efsta, þétta lagi öskuflóðsins. Korn þessi
eru um 2-3 mm í þerrnál en einstaka lítið
eitt stærri og oftast eru þau í lögun eins og
nokkuð núin væru. Ekki verður nánar um
þau ljallað hér en á það skal bent að Guð-
rún Larsen (1978) hefur látið þess getið að
súr korn komi „stöku sinnum fyrir“ í
Kötluösku og séu jafnvel einkennandi fyrir
sum Kötluöskulög. I öðrum eldstöðvum á
þessum slóðum hafa þau ekki fundist svo
vitað sé.
■ HVENÆH VARÐ GOSIÐ?
Samkvæmt frásögn Jón Steingrímssonar
(1788) eyddist byggð í Tólfahring „1112
eða þar um bil“. Athuganir sem gerðar
voru á því svæði fyrir nokkrum árum (Jón
Jónsson 1985, 1989) benda sterklega til
þess að í fyrsta lagi hafi þar byggð verið
og í öðru lagi að það sem byggðinni eyddi,
hafi það á annað borð eldgos verið, geti
það vart hafa verið annað en gosið við
Leiðólfsfell.
Til þess að grafast fyrir um hvernig
þessu er háttað var safnað gróðurleifum:
189