Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 15

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 15
UPPRUNI OG DREIFING ÍSL. FISKISTOFNA 61 svæði, þar sem þetta á við. En þessu er ekki svo farið með íslenzka hafsvæðið. Eins og fyrr getur, liggur Island í farvegi hafstrauma, og bæði fánan og flóran eru því sambland heimaalinna og aðvífandi plantna og dýra. Langmestur hluti íslenzku fánunnar er af heimaöldum stofni, enda er íslenzka grunnsævið tvímælalaust eitt gróskumesta hafsvæði Norð- ur-Atlantshafsins, og er fiskimergðin ljósasti vottur þess. En hinir eiginlegu átthagar þessara fiska, svæðin þar sem þau tímgast, liggja ekki jafndreifð kringum landið, heldur hafa rannsóknir sýnt, að sunnlenzka grunnsævið er aðalhrygningarsvæði flestra íslenzkra nytja- fiska. Meðan hrygningin stendur yfir, eru þeir bundnir hlýsænum, og ákvarðast nyrðri takmörk gotstöðvanna af 4—5 stiga hita. Af þessum fiskum má nefna þorsk, ýsu, upsa, spærling, síld, skarkola og þykkvalúru. Hvað snertir einstaklingsmergð, eru aðeins fáar aðrar tegundir, sem standa þeim á sporði. Fjórar þeirra hrygna kringum allt land: loðna, sandsíli, sandkoli og skrápflúra, og yfirleitt miklu meira við suður- og vesturströndina heldur en norður- og austur- ströndina. Tvær tegundir hrygna í úthafi, karfi og flyðra, báðar í hlýsænum fyrir sunnan og vestan landið. MeginniSurstaSan verSur sú, aS allar fiskitegundir, sem mikla einstaklingsmergS hafa, hrygna mestmegnis viS suSur- og vesturströnd landsins. Aðvífandi fiska verðum við oft vör við, bæði uppsjávarfiska sunn- an úr hafi og djúpsjávarfiska úr djúpum Atlantshafsins. Af hinum fyrra flokki má nefna makríl, gráröndung, bramafisk, guðlax, tún- fisk, brynstirtlu og geirnef, og af hinum síðarnefnda flokki, sædjöful og surt. Af svifdýrum finnast tilsvarandi flokkar. Það, sem ég eink- um vildi vekja athygli á, er það, að aðvífandi skepnur eru nær ein- göngu af suðlægum uppruna. Skýringin á þessu er fólgin í þvi, að meginsjávaraðstreymið liggur að landinu sunnanverðu. Hafstraumamir em nátengdir landslagi botnsins. Gert hefur ver- ið líkan af sjávarbotninum kringum Island, og birti ég það hér les- andanum til glöggvunar og fróðleiks. ísland liggur í miðju Norður-Atlantshafi eins og þvergirðing, með neðansjávarhryggjum til vesturs og austurs. Að sunnanverðum stöpli landsins flæðir golfstraumssjórinn. Landgrunnshallinn er snarbratt- ur undan mestöllu Suðurlandi. I suðvesturátt frá Reykjanesskaga liggur neðansjávarhryggur, Reykjaneshryggurinn. Hann er nyrzti hluti miðhryggs, sem liggur eftir Atlantshafinu endilöngu, allt suður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.