Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 41

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 41
UPPRUNI OG DREIFING ISL. FISKISTOFNA 87 framkvæmdi árið 1908, en dr. Táning hefur ritað um. Meðfylgjandi kort, sem sýnir árangur þessara tilrauna, er hér tilfært úr ritgerð dr. Tánings (19). Á tímabilinu l.júni til 3. ágúst 1908, en þó aðal- lega í júlímánuði, var 280 straumflöskum kastað í sjóinn á stöðum, sem merktir eru með hringum á kortinu. 22 þessara flaskna endur- fundust. Engin þeirra hafði rekið út fyrir íslenzka hafsvæðið. Dr. Tá- ning ályktar: „The experiment showed therefore, that from about July and in the following months of 1908 the currents round the coasts of Iceland were of a typical anticyclonic character11 (l.c. bls. 5). Mjög athyglisvert virðist i þessu sambandi, að þetta ár ber ekkert á reki til Noregs. I grein þessari hefur verið reiknað með því a priori, að straum- arnir hafi mikil áhrif á göngur fiska utan hrygningartímans. Þetta er ekki sannað mál. Og það er vitað, að á leið sinni til gotstöðvanna getur síldin leitað þvert á straum. Hins vegar má færa fyrir þvi gild rök, að lífsferill svifdýra, sem eru næring fiskanna í úthafinu, sé nátengdur straumkerfunum. Það getur því hugsazt, að það sé ekki beint samband milli fiskigangna og strauma, heldur séu það svif- dýrin, sem fiskarnir sækjast eftir, er áhrif hafa á göngurnar. Hvern- ig sem því er varið, hallast ég að þeirri skoðun, að rétt sé að leita samhengis milli strauma og fiskigangna, hverjar sem hinar dýpri orsakir eru. Á það hefur verið minnzt, að tilgáta Árna Friðrikssonar um göng- ur norðurlandssíldarinnar, eins og hún er sett fram í bók hans um norðurlandssíldina, styðst ekki við sjófræðileg rök nema að hálfu leyti. Straumrannsóknir hafa sýnt, að frá íslandi til Noregs er greið straumleið öll síðari árin, sem t'annsóknir ná til. En hins vegar ná straumar frá norsku ströndinni ekki til íslands. Þessi staðreynd birtist greinilega í árangri rekflöskutilrauna og sildarmerkinga, og það er næsta furðulegt, hve lík niðurstaðan er. I báðum tilfellum berst tiltölulega mikill fjöldi til Noregs, en engin straumflaska og fáar síldar hafa borizt frá Noregi til íslands. Til athugunar og frekari rannsóknar set ég því fram þœr sko'ðanir: 1) Að á hafsvœSinu fyrir norSan eða norSvestan ísland safnist sam- an sérstœSur síldarstofn, sem er blanda af eldri árgöngum úr þrem- ur síldarstofnum: íslenzkri vorgotssíld, íslenzkri sumargotssíld og norskri vorgotssíld. 2) AS þessi blanda geti stundum haldizt þar ár- um. saman og myndáS uppistöSuna í veiSi á /lorSurlandsmiSunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.