Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1954, Qupperneq 44

Náttúrufræðingurinn - 1954, Qupperneq 44
90 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Niðurstaðan varðandi uppruna íslenzku fiskistofnanna er sú, að þeir eigi að mestu uppruna sinn að rekja til hlýsævarins við sunnan- og vestanvert landið, og að grunnsævið á þessum slóðum hafi sér- staklega mikið gróskumagn, vegna sérstæðra náttúruskilyrða. Síðan er bent á þýðingu hringrásarkerfanna fyrir viðhald íslenzku fiskitegundanna, sem eru flestar af heimaöldum stofnum. En um leið er bent á það, að þessi hringrásarkerfi eru ekki lokuð. Liggja frá þeim tapstraumar til fjarlægra hafsvæða. Meginniðurstaða greinarinnar er fólgin í því, að frárennslisstraum- ar þessir leiði hluta af fiskistofnum út fyrir íslenzka hafsvæðið, annað- hvort á svifskeiðinu, eins og dæmið um flutning þorskseiðanna til Grænlands sannar, eða síðar á lífsleiðinni. Er í því sambandi sett fram sú tilgáta, að hlutar af norðurlandssíldarstofninum lendi straum- leiðina austur á bóginn til Noregshafs, samlagist norska síldarstofn- inum og eigi vart afturkvæmt til fslandsmiða. Er tilgáta þessi studd með heimildum frá síldarmerkingum síðari ára og athugunum mín- um á samsetningu norðurlandssíldarinnar. Fjölmörgum spurningum í sambandi við þessa tilgátu reyni ég ekki að svara á þessu stigi málsins, vegna vöntunar á rannsóknum. Þannig er enn ókannað, hvernig sú sérstæða síldarblanda myndast, er við köllum norðurlandssíld. Við vitum heldur ekki eftir hvaða leiðum eldri síld af norskum uppruna sameinast þessum stofni, né hvaðan eldri síld af íslenzkum uppruna leitar inn í norðurlandsstofninn. Er eitthvert samband milli þessa fyrirbæris og þeirrar einkennilegu stað- reyndar, að það er eins og eldri síld vanti í sunnanstofninn? Breytir síldin um gönguvenjur og gönguleiðir, þegar kynkrafturinn fer að dvína, eða vantar kynörvun á slóðum, þar sem hún heldur sig? — Þannig mætti lengi spyrja. Engum er ljósar en sjálfum mér, hve mikil þörf er á viðtækari og ýtarlegri rannsóknum á þessum viðfangsefnum en mér hefur gefizt kostur á að framkvæma, enda hef ég því miður aldrei fengið leyfi til að rannsaka norðurlandssíldina, nema í frístundum mínum. Sé ég fram á, að mig skortir algörlega aðstöðu til að sinna slíku verkefni á viðunandi hátt. Ég sé mig því tilneyddan að hætta reglubundnum síldarrannsóknum, en áður en ég segi skilið við þessi hugðarefni mín, mun ég á fræðilegum vettvangi skýra frá helztu athugunum, sem ég hef gert á íslenzkri síld, ef það gæti orðið einhverjum til leið- beiningar og fróðleiks.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.