Náttúrufræðingurinn - 1969, Blaðsíða 5
NÁTT Ú RU F RÆÐINGURINN
51
það, að einn maður ritar þarna um alla mosaflóruna, þarf engan
að undra, að ýmis atriði hafa reynzt þurfa endurskoðunar við. I
heild er ritgerð Hasselbos vel og samvizkusamlega unnin.
Bandaríski mosafræðingurinn Albert LeRoy Andrews kom hér
við árið 1914 og ritar á árunum 1915—1949 nokkrar greinar um
mosa héðan. Árin 1931 og 1932 safnar svissneskur læknir, að nafni
Meyer, hér mosum, og árið 1940 birtir Ch. Meylan niðurstöður úr
rannsóknum sínum á því safni. Árið 1934 kemur hingað E. W.
Jones til rannsókna í Grímsey og gerir grein fyrir mosunum í
merkri grein árið 1946. Árið 1952 birtist ritgerð eftir Bodil Lange
um Sphagnum á íslandi. Er þar um að ræða gagngera endurskoðun
á öllum þeim eintökum, er hún náði til, og er þessi ritgerð mikil-
vægt framlag til rannsókna á íslenzku mosaflórunni. Lange kennxr
síðan hingað sjálf 1959 og birtast niðurstöður þeirrar ferðar í rit-
gerð árið 1963. Með tilliti til þess, er hér fer á eftir, skal að lokum
getið lista Bergþórs Jóhannssonar í Flóru 1968. Margar fleiri rit-
gerðir mætti nefna, þar sem íslenzkir mosar koma við sögu, en sú
upptalning yrði ekki tæmandi, svo hér verður látið staðar numið.
Nýjungar um nokkrar tegundir
Anomodon attenuatus (Hedw.) Hueb.
Eyvindarmúli, Fljótshlíð, milli steina í grasivaxinni hlíð, ágúst
1965, B. J. Fyrsti fundur tegundarinnar hérlendis.