Náttúrufræðingurinn - 1969, Blaðsíða 14
60
NÁTTÚRU F R Æ Ð 1N G U RIN N
Leskeella tectorum (Funck ex Brid.) Hag.
Jörundarfell, Vatnsdal, A.-Hún., á þurrum klettum, ágúst 1966,
B. J. Er á lista mínum 1968, en hefur annars ekki verið getið héðan
fyrr.
Lophocolea bidentata (L.) Dum.
Ekki getið héðan fyrr. Eintök séð frá nokkrum stöðum á Suður-
lancli og Suðvesturlandi og úr jarðhita frá Reykjum í Hrútafirði,
Reykhólum í Barðastrandarsýslu og Goðdal og Klúku í Bjarnar-
firði í Strandasýslu. Þeir fundir, sem ég gat um 1961 sem L.
cuspidata, virðast tilheyra þessari tegund.
Marsupella ustulata (Hueb.) Spruce
Bæjarfell við Krýsuvík, á móbergsstabba, ágúst 1965, B. J. Hefur
ekki fundizt hér áður.
Mnium blyttii B. S. G.
Vaðlaheiði, milli þúfna í hallandi mólendi, 500 m, júní 1963,
B. J. Rimar, Svarfaðardal, 500 m, júlí 1963, Helgi Hallgxímsson.
Hefur ekki fundizt hér lyrr, en er á lista mínum 1968.
Mnium rostratum Schrad.
Búðir, Snæfellsnesi, á gólfi í hraunskúta, júlí 1963, B. J. Hefur
ekki verið getið héðan fyrr, nema hvað hún er á lista mínnm 1968.
[Mylia anomala (Hook.) Gray
Hesselbo s. 417 sem Leptoscyphus anomalus (Hook.) Lindb. Þessi
tegund er aðeins talin hafa fundizt hér einu sinni, af Helga Jóns-
syni, og er hennar fyrst getið í grein Helga 1895 og var nafngreind
af C. Jensen. Tegundin er tekin upp í Botany of Iceland, enda
hafði Hesselbo séð eintökin, en full ástæða virðist til að ætla, að
hann hafi um of treyst á nafngreiningar Jensens og tekið þær góðar
og gildar án lrekari athugana. Eintök þessi eru til á Náttúrufræði-
stofnun íslands og er hér um að ræða sambland tveggja tegunda,
Nardia scalaris (Scrad.) Gray og Tritomaria quinquedenta (Huds.)
Buch, sem vel geta skýrt mistök Jensens. Mylia anomala hefur J>ví
ekki lundizt hér.]