Náttúrufræðingurinn - 1969, Blaðsíða 32
74
NÁT T Ú R U F RÆÐINGURINN
Meðalþykkt áfoksjarðvegsins er breytileg eftir landshlutum eða frá
55 cm að meðaltali á Vesturlandi og upp í 150 cm að meðaltali á
Suðurlandi (B. Jóhannesson 1900). Áfoksjarðvégurinn og jrar með
gróðurinn er þó óvíða algerlega samfelldur, heldur eru þar að jafn-
aði stærri eða minni eyður, sem ýmist eru þaktar jökulruðningi,
möl, sandi eða þá að berggrunnurinn kemur þar í ljós. Þar sem
eyðurnar mæta gróðurlendinu, er markalínan nærri alls staðar skýrt
afmörkuð með nær lóðréttu þrepi, þar sem gróðurinn liggur hærra.
Víða er það jafnframt augljóst, að jarðvegurinn er að eyðast undan
gróðrinum, því að gróðurtorfan slútir fram ylir sig eða hefur jafn-
vel alveg sigið fram af þrepinu (mynd 1 a og b). Þrep þetta er
mjög misjafnlega hátt, allt frá fáeinum centimetrum og upp i 5—6
metra. Það hefur verið nefnt „rofbarð“ (deflation scarp), þar sem
vindrofið er augljóst, annars staðar er það í daglegu tali nefnt
„moldarbarð“ (soil scarp). Ég mun hér á eftir nota orðið rofbarð
um þetta jrrep.
Áfok og dfoksjarðvegur
[arðvegsmyndunin á íslandi skipar algerða sérstöðu miðað við
nágrannalöndin beggja vegna Atlantshafsins, eins og reyndar svo
margt í jarðmyndunum þess. Það sem við íslendingar nefnum
mold eða moldarjarðveg, finnst þar varla (B. Jóhannesson 1961).
Annars staðar, t. d. í Noregi, er jarðvegsmyndun á þurrlendi mjög
hægfara og steinefnainnihald hans byggist nær einvörðungu á þeint
lausu jarðefnum, sem jöklarnir skildu þar eftir. Þar sem berggrunn-
urinn var nakinn eftir, er um mjög litla jarðvegsmyndun að ræða,
því að veðrunin er þar mjög hægfara, nenra þá í veikbyggðum set-
lögum (Lág 1960).
Hvernig hefur svo þykkur jarðvegur getað myndazt á íslandi d
svo stuttum jarðsögulegum lírna'? Ef litið er á dreifingu hans, ligg-
ur hann nokkuð jafnt ylir hæðir og lægðir og virðist þar að auki
án teljandi tengsla við undirlag sitt. Efnasamsetning lians og eðlis-
eiginleikar eru einnig því sem næst þeir sömu, þó að undirlagið
breytist. Steinefnainnihald íslenzkra mýra er 19—80% eftir lands-
hlutum, en það er einnig miklu meira heldur en gerist í nágranna-
löndunum. Dreifing þess og samsetning er mjög tilsvarandi stein-
efnainnihaldi áfoksjarðvegsins á hverjum stað (B. Jóhannesson