Náttúrufræðingurinn - 1969, Blaðsíða 78
120
N ÁT T Ú R U F R Æ ÐIN G U RI N N
hvít að innan og ber mest á hvíta litnum,
því að hinir 5 krónuflipar eru stórir, út-
sveigðir og þar að auki kögurhærðir. Ekki
vita menn gerla, hvaða gagn kögrið eða
flosið í blóminu gerir. Ef til vill varnar
það sumum skordýrum inngöngu? Krónu-
fliparnir eru fremur þykkir og kjötkennd-
ir. Bikarinn er bjöllulaga. A sumum ein-
staklingum eru blómin með stuttan stíl
og langa fræfla, en á öðrum einstakling-
um er stíllinn langur en fræflarnir stutt-
ir. Styður þetta aðfrævun, en jurtin
blómgast í júní—júlí og eru þá skordýr
öll komin á kreik. Aldinið er hýði, fræ-
in ljósbrún. Þau geta lengi flotið og dreif-
ast að verulegu leyti með vatni.
Reiðingsgras verður stórvaxnast og
þroskalegast í vatni og myndar þar oft
Reiðingsgras. stórar flækjur, t. d. í tjarnajöðrum. Eru
hvítblómgaðar bryddingarnar einkar fagr-
ar. Loftgöng eru í jarðstönglunum, svo
að þeir eru léttir og fljóta vel á vatninu og loft kemst niður í ræt-
urnar. A allstórum bletti geta öl 1 reiðingsgrös verið komin út af
einni móðurjurt. Innan um mýrakólfaflækjurnar vaxa víða starir,
mosar o. fl. jurtir og getur allur þessi gróður smám saman fyllt
tjarnirnar. Varasamt er að stíga út á slíkar vatnajurtabendur, jrær
láta undan fæti. Ekki virðist íé gráðugt í reiðingsgras, en bítur þó
í blöðkuna, ef lítið annað er að fá. E. t. v. bendir horblöðkunafnið
til þess að þetta þótti léleg beitarjurt. Geitur kváðu aftur á móti
vera sólgnar í horblöðku og hún er kölluð hafrablaðka (bukkeblad)
í Danmörku og víðar á Norðurlöndum. Hreindýr eru gráðug í hor-
blöðkuna, segja Norðmenn. Á vorin, þegar liart er í ári, grafa þau
jafnvel upp mýrakólfana og eta. Blöðin (horblöðkurnar) lialdast
og lengi græn í bleytu og vatni. Mýrakólfarnir voru fyrrum þurrk-
aðir, malaðir og blandað í mjöl í hallærum í N.-Svíþjóð. Reiðings-
gras er forn og fræg lœkningajurt. Grasafræðingurinn og læknirinn
Linné notaði hana gegn gigt. Hún er og talin hafa ljlóðhreinsandi
og magastyrkjandi áhrif og örva matarlyst. Jurtin er auðug af beisk-