Náttúrufræðingurinn - 1969, Blaðsíða 17
N ÁT TÚRUFRÆÐINGURIN N
63
Þessarar tegundar hefur ekki verið getið ltéðan fyrr, nema livað
hún er á lista mínum 1968.
Scapania gymnostomophila Kaal
Brunahraun, V.-Skaft., í hraunbolla, júlí 1967, B. J. Hefur ekki
fundizt hér áður.
Seligeria brevifolia (Lindb.) Lindb.
Við Kleifarvatn, Gullbringusýslu, neðan á lofti og á veggjum
móbergshellisskúta, í samfelldri breiðu, með miklu af vel þroskuð-
um gróhirzlum, sept. 1965, S. W. Greene og B. J. Er þetta eini
fundur tegundarinnar hérlendis. Er á lista mínum 1968, en hefur
annars ekki verið getið héðan fyrr.
Spliagnum magellanicum Brid.
Ingólfur Davíðsson hefur oft gripið með sér mosa á ferðum sín-
um um landið undanfarna áratugi. í ágúst 1937 fann hann þessa
tegund á tveim stöðum í nágrenni Reykjavíkur, á Álftanesi og í
Viðey. Þessi tegund er, sem S. medium Limpr., í Botany of Iceland,
talin fundin á nokkrum stöðum hérlendis. Bodil Lange (1952)
komst að þeirri niðurstöðu við endurgreiningu á öllum eintökum
af ættkvíslinni, sem fundust í söfnum í Kaupmannahöfn og Reykja-
vík, að engin eintök væru þar af S. magellanicum frá íslandi. Öll
eintök, sem í Botany of Iceland eru til hennar talin, reyndust til-
heyra S. centrale C. Jens. og S. papillosum Lindb. Þessi endur-
skoðun leiddi reyndar í ljós, að um helmingur allra eintaka af
ættkvíslinni var áður rangt nafngreindur. Nú er aftur á móti þess
að geta, að A. LeRoy Andrews getur um S. magellanicum frá Vífils-
stöðum og Reykjavík í grein árið 1917, en Andrews var einn helzti
.SJ5/iagnim-sérfræðingur síns tíma. Þessi fundur Ingólfs kemur því
ekki alveg á óvart, en þeir Andrews og Ingólfur eru þeir einu, sent
hafa fundið þessa tegund hérlendis. Þess skal getið, að B. Lange
hafði livorki séð eintök Andrews né Ingólfs.
Tritomaria scitula (Tayl.) Joerg.
Jökuldalur við Tungnafellsjökul, í klettum, ca. 850 m, ágúst
1967, B. J. Ekki fundin hér fyrr.