Náttúrufræðingurinn - 1969, Blaðsíða 13
N ÁTT Ú RUFRÆÐI N GU RINN
59
Hygrohypnum polare (Lindb.) Loeske
Helgi Jónsson getur þessarar tegundar frá Vallanesi í ritgerð sinni
1895. Hesselbo tókst ekki að finna nein eintök af henni í safni Helga
og er hún því ekki talin til íslenzku mosaflórunnar í Botany of
Iceland. I júlí 1964 fann ég hana á steinum í Eyvindará í Egils-
staðaskógi og aftur sá ég hana þar í ágúst 1967. í júlí 1965 fann
ég hana einnig í Reyðará í Lóni.
Hygrohypnum styriacum (Limpr.) Broth.
Hefur ekki verið getið héðan fyrr nema hvað hún er á lista mín-
um 1968. Þessa tegund fann ég í safni Ólafs Davíðssonar innan
um aðra mosa úr Hofsá. I júlí 1968 fann ég hana í Skálabjörgum
í Esjufjöllum í Vatnajökli.
[Hylocomium pyrenaicum (Spruce) Lindb.
Hesselbo s. 542. Talin fundin hér af Steenstrup og fyrst getið á
lista Grönlunds 1873. Eintökin, sem varðveitt eru í Kaupmanua-
liöfn, tilheyra að mínum dómi Isothecium eumyosuroides Dix.
E. W. Jones (1946) telur sig hafa fundið nokkra smásprota af þess-
ari tegund nálægt Dalvík, en þau eintök hef ég ekki séð.]
[.Hypnum imponens Hedw.
Hesselbo s. 535. Er í Botany of Iceland talin fundin á allmörgum
stöðum á suðurhluta landsins. Því miður er þessi tegund á lista
mínum 1968, því þó ég efaðist þá um að eintökin tilheyrðu þessari
tegund, var ég ekki viss um nema svo gæti verið. Nú er ég hins
vegar sannfærður um að öll eintök, sem greind hafa verið til
þessarar tegundar, tilheyra öðrum tegundum ættkvíslarinnar og
verður því að fella þessa tegund niður úr íslenzku mosaflórunni.]
Leiocolea gillmanii (Aust.) Evans
Eintök, er Ólafur Davíðsson safnaði á Hofi í maí 1903 og áðnr
hafa verið talin til L. muelleri, tilheyra þessari tegund. Auk þess
fundin í Álftavatnskrókum, Skaftártungum, í júlí 1963 af Herði
Kristinssyni og á rökum móbergsklettum við Seljalandsfoss, Rang.
í ágúst 1965 af B. ]. Hefur ekki verið getið héðan fyrr.