Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 11

Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 11
NÁTTÚ RU F RÆÐINGU RIN N .57 talin til F. obtusa, aí: þessari tegund. Þessi tegund er á lista mínum 1968, en hefur annars ekki verið getið héðan fyrr. [Funaria fascicularis (Hedw.) Schimp. Er í grein, er ég birti 1963, talin fundin liér og er getið þar sem Entosthodon fascicularis (Hedw.) C. Muell. Nú er mér ljóst, að sú nafngreining var röng og að hér er um að ræða F. attenuata.] Grimmia agassizii (Sull. & Lesq. ex Sull.) Jeag. 8c Sauerb. Reykjarvík, Bjarnarfirði, Strand., á steini í læk, með fullþroska gróhirzlum, sept. 1967, B. J. Meylan getur hennar liéðan 1940 sem Schistidium angustum Hag., og er það fyrsti fundur þessarar teg- undar hérlendis. Grimmia alpestris (Web. 8c Mohr) Schleich. ex Nees, Hornsch. & Sturm Er í Botany of Iceland getið frá tveim fundarstöðum, en eintök- in tilheyra ekki þessari tegund. Er síðan getið frá Dalvík af Jones 1946. Einu eintök, sem ég hef séð og tel tilheyra þessari tegund eru eintök, er Simon Lægaard salnaði sumarið 1966 í Skjaldfannar- dal við ísafjarðardjúp. Grimmia anomala Hampe ex Schimp. Bandaríski mosafræðingurinn William C. Steere kom til íslands sumarið 1964, og í júní—júlí það sumar fór ég með honum í mosa- leit um norðaustanvert landið og Vestfirði. Meðal þess markverða, er fannst, var Grimmia anomala, er við fundum á Upsaströnd við Eyjafjörð, við Skutulsfjörð og við Dýrafjörð. Bandaríski mosafræð- ingurinn Albert LeRoy Andrews getur um þessa tegund héðan árið 1923, og er það eini fundur hennar hér áður. Arnþór Garðarsson fann hana í Hrísey á Eyjafirði í júní 1965, og ég hef síðan fundið liana í Goðdal í Bjarnafirði og á Fitjum í Steingrímsfirði í sept. 1967 og á Hveravöllum á Kili í ágúst 1968. Grimmia elongata Kaulf. ex Sturm Kvísker, Öræfum, á kletti við læk, sept. 1965, B. J. Er ekki nefnd í Botany of Iceland.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.