Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1969, Page 59

Náttúrufræðingurinn - 1969, Page 59
101 N ÁT TÚ RU F RÆ ÐINGURINN og fjúka burt við minnsta vindblæ, ef eitthvað losnar um þær. Frost- veðrunin, regndroparnir og fótatraðk dýra losa mjög auðveldlega um efsta lag moldanna, sem þá þornar og blæs í burtu. Þannig eyðast moldirnar smátt og smátt og vatnsrofið hjálpar þar oft til. Grófasti hluti fokefnanna fellur fyrst til jarðar og magn þeirra verður einnig mest næst uppsprettu þeirra. Þykknunarhraði áfoks- jarðvegsins er því mestur næst meginuppsprettum fokefnanna, og þar er hann jaínframt grófastur. Jarðskrið sandfoksins berst einnig lítið eitt inn á gróðursvæðin. Áfoksjarðvegurinn hefur því alltaf verið þykkastur við gróðurmörk miðhálendisins og við alla jrá staði, J^ar sem stórfellt jarðvegsrof hefur átt sér stað, og jafnframt er hann veikbyggðastur Jrar. Jarðvegsrofið Vindur og vatn eru Jrau roföl'l, sem stöðugt hafa herjað á áfoks- jarðveginn. I sjálfu sér valda Jrau aðeins mjög hægfara rofi, en um leið og Jrau fá sand eða vikur sem verkfæri í hendurnar, Jrá geta Jrau orðið að stórvirku eyðingarafli. Á gróðursvæðunum bindur rótakerfi jurtanna efsta hluta áfoksjarðvegsins og verndar hann gegn vindrolinu, meðan gróðurtorfan er heil og samfelld. Allt öðru máli gegnir með vatnsrofið. Það getur flutt sandinn, graftæki sitt, langar leiðir, og þess eru fjölmörg dæmi, að vatnið hefur grafið langa skurði í áfoksjarðveginn í einni vorleysingu eða einni stór- rigningu. Stórfellt vindrof verður Jrví aðeins við útjaðra gróður- svæðanna, Jiar sem vindurinn hefur greiðan aðgang að sandi, og sár liala opnazt í gróðurtorfuna. Vatnsrásirnar skilja stöðugt el'tir opin sár fyrir vindrofið. Þar sem vindrofið og vatnsrofið hafa lít- inn sem engan aðgang að sandi verður jarðvegsrofið hægfara og landnám gróðursins fylgir Jrá rofbarðinu (mynd IV a), svo að ])ar er um mjög litla gróðureyðingu að ra:ða. Af framangreindum ástæðum geta gróðurmörk stórra gróðurvana svæða aldrei verið í fullkomnu jafnvægi, því að stöðugt veðrast úr rofbörðunum. Þetta á Jró sérstaklega við um efstu gróðurtak- mörkin á hálendinu, þar sem áfoksjarðvegurinn er sérstaklega veik- byggður. Auk jæss fá roföflin Jiar stöðugt ný verkfæri í héndur. Vindar Jaeir, sem blása af hálendinu, eru yfirleitt þurrir og eiga því auðvelt með að losa um fokefnin. Þeir koma að gróður-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.