Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 67

Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 67
NÁTTÚ RU F RÆ ÐINGURINN 109 komu húsdýrabeitarinnar. Beitin kom víða í veg fyrir sjálfgræðslu landsins, en það létti mjög roföflunum aðgang að sandi og vikri til eyðingarstarfseminnar. Þetta atriði er vert að hafa í huga í barátt- unni gegn jarðvegsrofinu. Það mun reynast dhrifaríkara að rœkta upp örfoka landið áveðurs við rofbörðin heldur en að berjast við pau sjálf. Þcettir úr sögu Haukadalsheiðar Skal nú vikið nokkrum orðum að sögu áfokssöfnunar og jarð- vegseyðingar á Haukadalsheiði. 1. mynd sýnir á hvaða stigi þróunin stóð árið 1960. Verulega mun sú mynd þó frábrugðin því, sem fyrr hefur verið. Margir þættir í þróunarsögu áfoksjarðvegsins eru mun auðskild- ari í ljósi framanskráðra rannsókna. Reikna má með því, að saga áfokssöfnunarinnar liefjist um leið og landið varð örísa við lok síð- asta jökulskeiðs. Líklegt er, að jökullinn hafi hörfað af rannsóknar- svæðinu lyrir tæpum 10.000 árum, en gæti þó verið fyrr. Mæling jarðvegssniðanna sýnir, að áfokssöfnunin hefur verið tiltölulega hæg fyrstu árþúsundirnar (4. mynd). Það er sérstaklega athyglisvert, hve hæg áfoksþykknunin hefur verið neðan við öskulagið H5, en þá hefði hún átt að vera livað örust, ef jökulminjar og móbergsveðrun hefði verið uppspretta áfoksins, því að þá lá jarðgrunnurinn miklu opnari gagnvart veðruninni, áður en hann hjúpaðist blæju áfoks- jarðvegsins. Miki! samsvörun virðist milli þykkt öskulaga (tafla I) og þykknunarhraða áfoksins á forsögulegum tíma (tafla II). Þessi þróun staðfestir mjög vel þýðingu eldfjallaöskunnar í uppbyggingu áfoksjarðvegsins. Norðaustlægir vindar er aðalvindrofsáttin á Haukadalsheiði og á sama hátt hafa norðaustlægir vindar borið mest af áfokinu þangað. 5. rnynd sýnir, að áfokssöfnunin á forsögulegum tíma hefur verið örust norðan til á lieiðinni, en strax ofan við öskulagið H,, fer að bera á því, að söfnunarhraði þess hafi aukizt suðvestan í hálendis- brúninni. Þetta bendir til þess að fljótt hafi farið að bera á tak- mörkuðu jarðvegsrofi á stöku stað. Jarðvegsrofið mun þó hafa verið mjög hægfara og bundið við smábletti. Líklegt má þó teljast, að stórfelld öskugos hafi komið af stað nokkurri jarðvegseyðingu. Til

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.