Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 70

Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 70
112 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Þróunarsaga jarðvegseyðingarinnar endurspeglar allar þrjár meg- inorsakir stórfelldrar jarðvegseyðingar. Návist mannsins og húsdýra hans fór strax að segja til sín með auknu áfoki á norðausturhluta svæðisins. Fram til 1100 var þó um enga stórfellda jarðvegseyðingu að ræða, en árið 1104 gaus Hekla mesta öskugosi sínu á sögulegum tíma (S. Þórarinsson 1968). Askan og vikurinn frá þessu gosi dreifð- ust yfir miðhálendið 1 ríkum mæli, og öskugeirinn frá því náði inn á austanverða Haukadalsheiðina. Loftslag fór einnig mjög kóln- andi á 12. öld og hélzt svo frarn yfir 1300, en þá hlýnaði nokkuð aftur (P. Bergþórsson 1967). Á 12. öldinni lögðust því allar þrjár meginástæður jarðvegseyðingarinnar á eitt við jarðvegsrolið. Rúm- lega tvær aldir voru liðnar frá landnáminu, svo að áhrif þess voru lögzt með fullum þunga á gróðurinn, en við bættust bæði stórfellt öskugos og kólnandi loftslag. Afleiðingin af þessu varð geigvænleg jarðvegseyðing, svo að hún hefur að öllum líkindum aldrei verið meiri. Veturinn 1226 er nefndur í annálum: „Sandavetur, vegna skaðlegs sandfoks" og veturinn 1227: „Sandavetur, eins og sá næsti á undan“ (Gísli Oddsson 1637). Bendir þetta til þess, að stórkostleg jarðvegseyðing hafi verið þessi ár. Þó ber þess að gæta, að orðið sandavetur er oft notað í fornum heimildum til að tákna öskufall. Það er því vert fyrir sagnfræðinga að hafa þetta í huga, þegar rann- sökuð er saga Sturlungaaldarinnar og sjálfstæðismissisins, því að jarðvegseyðingin hlýtur að liafa haft afdrifáríkar afleiðingar fyrir landbúnaðinn bæði sunnanlands og norðan. Verulega dró úr jarðvegseyðingunni upp úr 1300, enda fór þá loftslag hlýnandi og áhrifin af Heklugosinu 1104 dvínuðu. Heklu- gosið árið 1300 vó að vísu í sama knérunn, en öskumagn þess var margfalt minna. Áhrif mannsins og húsdýranna gætti þó áfram, svo að jarðvegseyðingin stöðvaðist ekki, þó að hún gengi nú hægara fyrir sig. Loftslagið kólnaði svo mjög aftur á 17. öld og Iiélzt svo 18. og 19. öldina (P. Bergþórsson 1967). Askan frá Heklugosunum 1693 og 1766 og Kötlugosinu 1721 dreifðist yfir Haukadalsheiðina og nágrenni. Afleiðingin af þessu varð ný jarðvegseyðingarskriða, eins og áður hefur verið lýst. Það mun því liafa verið fyllsta ástæða til, að bændurnir börmuðu sér sáran yfir ágangi sandfoks og landspjalla af völdum Heklugossins, þegar Árni Magnússon tók saman jarða- lýsinguna fyrir Biskupstungur í Skálholti árið 1709.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.