Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 72

Náttúrufræðingurinn - 1969, Side 72
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 114 um, hvílíkir gífurlegir efnisflutningar eiga sér stað í sambandi við jarðvegsrofið, en þó er rannsóknarsvæði mitt aðeins örlítið brot af þeim svæðum, sem orðið hafa jarðvegseyðingunni að bráð á íslandi. Lokaorð Er hægt að sporna við og stöðva jarðvegseyðinguna og með hvaða ráðum? Landgræðslan hefur sýnt það og sannað, að unnt er að stöðva stórfellt jarðvegsrof og rækta upp örfoka land. Samkvæmt framanskráðum rannsóknum verður þó jarðvegseyðing aldrei stöðv- uð að fullu, því að hún er einn liður í náttúrlegri þróuti áfoks- jarðvegsins, en aftur á móti er það engum vafa undirorpið, að mögulegt er að breyta stórfelldri jarðvegseyðingu í hægfara jarð- vegsrof, sem veldur ekki teljandi tjóni. Mjög mikið vantar á, að fullrannsakað sé, hvaða ráð séu tiltækust og hagkvæmust í barátt- unni við jarðvegseyðinguna, því að þau munu vera nokkuð breyti- leg við mismunandi veðráttuskilyrði og á mismunandi jarðgrunni. Þessi þáttur varð alveg útundan í rannsóknum mínum, eins og reyndar fjölmargt annað, en að rannsóknunum vann ég með það í huga, að nauðsynlegt er að Jrekkja eðli og innræti óvinarins til að sigra hann. Að lokum vil ég svo nota tækifærið til að þakka þeim fjölmörgu, sem veittu mér margvislega og ómetanlega aðstoð við þessar rannsóknir. Sérstak- lega vil ég þakka þeim Dr. Sigurði Þórarinssyni prófessor, Reykjavík, og Dr. Just Gjessing prófessor, Oslo, fyrir margvíslega fræðilega aðstoð og rökræður. Einari Gíslasyni, Rannsóknastoíu landbúnaðarins, þakka ég fyrir mikilsverðar leiðbeiningar við kornastærðarmælingar á áfokinu. Inge Bryhni, cand. real., Oslo, þakka ég sérstaklega fyrir kristalgreiningu á áfokssýnunum. Þeim Páli Sveinssyni, landgræðslustjóra, og Uákoni Bjarnasyni, skógræktarstjóra, þakka ég sérstaklega fyrir áhuga þeirra og aðstoð við rannsóknirnar. Haukadals- feðgum, Sigurði og Greipi, þakka ég sérstaklega óþreytandi hjálpsemi við úli- rannsóknirnar. Að lokum vil ég flytja landbúnaðarráðuneytinu fyrir tilhlutan Ingólfs Jónssonar, landbúnaðarráðherra, og Vísindasjóði sérstakar þakkir fyrir veittan fjárhagsstuðning, en hann gerði mér kleift að leggja stund á þessar rannsóknir.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.