Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 30
1. mynd. Elaine Morgan fæddisl í Wales árið
1920. Hún er bókmenntafræðingur að mennt
en ekki háskólagenginn náttúrufræðingur.
Þekktust er hún fyrir gerð sjónvarpsþátta og
hefur hlotið margs konar viðurkenningu og
verðlaun fyrir ágætt fræðsluefni. Má þar nefna
myndaflokk um ævi Marie Curie. Frú Mor-
gan er greinilega víðlesin og einkar fundvís
á hvers konar rök er rennt geta stoðum undir
kenninguna um apann í vatninu. I ákafanum
við boðun þessarar kenningar minnir hún
stundum á boðbera heiðingjatrúboðs eða skóg-
ræktar (Morgan 1982).
fyrir þeim möguleika að börnin gætu
hafa náð handfestu i skeggi hans.)
Bókin um uppruna konunnar vakti
mikla athygli og seldist vel á níu
tungumálum. Mér fannst hún á sínum
tíma athyglisverð og forvitnileg af-
lestrar en sá ekki að lestrinum loknum
ástæðu til að endurskoða viðhorf mín
til þróunarsögu mannkyns. Hygg ég
að öðrum lesendum hafi mörgum verið
svipað farið.
Tíu árum síðar, 1982, birti Elaine
Morgan aðra bók um sama efni og hét
sú The Aquatic Ape, Apinn í vatninu.
Þriðja ritið, The Scars of Evolution,
Örin eftir þróunina, kom svo út 1990.
Þar eru saman dregin rökin sem færð
eru fyrir vatnsapakenningunni í hinum
bókunum og ýmislegt nýtt tínt til.
LANDREKSKENNINGIN
Þýskur veðurfræðingur og jarðeðlis-
fræðingur, Alfred Wegener, setti árið
1912 framkenningu um uppruna megin-
landa og úthafa og birti á bók 1915.
Hann færði þar rök fyrir því að meg-
inlöndin væru á reki í jarðskorpunni.
Þegar Wegener fórst á Grænlandsjökli
1930 átti kenning hans formælendur
fáa og þeim fjölgaði lítt næstu þrjátíu
árin. Þá komu loks fram skýringar á
hreyfingum í möttli jarðar sem renndu
stoðum undir hugmyndir Wegeners.
Þær teljast nú sjálfsagður partur af
fræðakerfi jarðvísinda. Verður raunar
eftir á að hyggja að teljast furðulegt að
menn skuli ekki fyrr en raun ber vitni
hafa áttað sig á því hve glögga heildar-
mynd Iandrekið gefur af mörgum ein-
angruðum athugunum sem án þess
virðast óskiljanlegar. Og rökin voru
jafnaugljós á dögum Wegeners og nú.
Wegener benti meðal annars á það
hve vel vesturströnd Afríku fellur að
austurströnd Ameríku. Kenning hans
skýrði það einnig að steingervingar
sams konar landdýra fundust í jarð-
lögum frá fornlífsöld á svæðum sem
nú eru aðskilin víðum sjó.
APINN í VATNINU
FESTIST í SESSI
Morgan telur að vatnsapakenning
þeirra Hardys sé nú í svipaðri stöðu og
landrekskenningin skipaði fyrir 1960.
Hún gefí heildarmynd af mörgun fyrir-
152