Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 66

Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 66
um aldinum sem dreifast með dýrum. Dreifíng fræja með maurum er þekkt hjá tegundum a.m.k. 60 ætta blóm- plantna bæði í hitabelti og í tempraða beltinu (Fenner 1985). Flest þessara fræja eru með litla fitukúlu (eliasome) á öðrum endanum. Maurarnir draga fræin í bú sín og safna þeim saman. Þeir éta fitukúluna en skilja fræin síðan eftir (Beattie og Culver 1982). Hér á landi eru þessir maurar ekki til. Engu að síður eru hér plöntur, t.d. vall- hæra (Luzula multiflorá), sem mynda fræ með fitukúlu og sem í öðrum löndum er dreift með maurum. Hjá tegundum sem mynda kjötkennd aldin utan um fræin, sem síðan er dreift er með dýrum, getur verið að máli skipti hvort mörg eða fá aldin eru mynduð. Sýnt hefur verið fram á að dýr fara frekar að trjám sem bera mörg aldin en fá og þannig má vera að það skili sér í betri dreifingu fræjanna að mynda sjaldnar fræ en fleiri í einu (t.d. Janzen 1971, Bawa 1980). Annars eru skilin milli afræningja á fræjum og frædreifenda óglögg; mörg dýr eru hvort tveggja í senn. Fræ eru að mörgu leyti ákjósanleg fæða fyrir dýr. I þeim er miklu minna vatn en í öðrum plöntuhlutum en yfirleitt hærra hlutfall próteina og fitu, efna sem oft eru mjög takmarkandi fyrir vöxt dýra. Ekki eru öll fræ þó jafn lostæt. Sum eru eitruð. Til dæmis eru baneitraðar amínósýrur í fræjum sumra plantna af ertublóma- ætt. Stundum er aðeins hluti fræsins eitraður. Ur fræjum Ricinus communis er t.d. unnin laxerolía. Hún fæst úr fræhvítunni en í kíminu eru prótein sem eru banvæn, jafnvel í mjög litlum skömmtum (Evans 1989). Dreifing á milli landa En ef flest fræ fara svona stutt, hvernig geta þau dreifst milli landa og heimsálfa? Það er athyglisvert að á fyrri jarðsöguskeiðum virðist flóra jarðar hafa verið einsleitari en nú er, þ.e. minni munur var á samsetningu gróðurs í heimshlutum á svipuðum breiddargráðum. Sú tilgáta hefur verið sett fram að ein ástæða fyrir því að þetta breyttist hafi verið sú að í stað plantna sem íjölga sér með gróum urðu fræplöntur ríkjandi. Gróin eru örsmá og fislétt og geta auðveldlega borist um langan veg með vindi. Fræin eru undantekningalítið miklu stærri og þyngri og þeim er að auki oft dreift í stórum aldinum (Raven o.fl. 1992). Þótt hér á undan hafi áhersla verið lögð á að fræ dreifist yfirleitt ekki langt eru vissulega til undantekningar. Því má ekki gleyma að enda þótt allur meginþorrinn berist skamma leið getur brotabrotið sem fer miklu lengra skipt gífurlegu máli fyrir nýliðun og áfram- haldandi tilvist stofnsins. Aftur má hafa það í huga að allra tegunda, nema þeirra sem einkenna lokastig fram- vindu, bíður staðbundin útrýming. Stofninn deyr út þegar samfélagið færist á næsta framvindustig. Aðeins fræ sem bárust út fyrir svæðið munu skila af sér afkomendum. Samsetning fánu og flóru á ein- angruðum úthafseyjum er heillandi fyrir líffræðinga. Dýr og plöntur eru framandi og einkennileg, afkomendur fárra einstaklinga sem á milljónum ára hafa einhvern veginn borist til þessara eyja og hafa þróast þar í einangrun síðan. Hawaii-eyjarnar eru eitt besta dæmið um slíkar eyjar. Reiknað hefur verið út að þangað liafi plöntufræ borist á 20-30.000 ára fresti (Carlquist 1967). Öll hawaíska flóran er þróuð af fáum landnemategundum og eru um 94% tegunda blómplantna einlendar (Carlquist 1980). Með því að skoða dreifingarmáta plantnanna sjálfra og öruggra eða líklegra forfeðra þeirra má 188
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.