Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 116
í annarri og þriðju útgáfu ritsins
Forsog til en dansk oeconomisk
Plantelœre eftir J.W. Hornemann pró-
fessor í Kaupmannahöfn, sem komu
út 1806 og 1821, var auk danskra
plantna fjallað um norskar, íslenskar
og grænlenskar plöntur og þær nytjar
sem af þeim má hafa. Geta má þess
að Islenzk grasafrœði eftir Odd Hjalta-
lín, sem kom út 1830, var að verulegu
leyti byggð á þessari bók Horne-
manns.
A síðustu öld kom út Handbok i
Skandinaviens Flora eftir Svíann C.J.
Hartman, sem náði yfir bæði Svíþjóð
og Noreg, og var hún gefin út mörgum
sinnum, síðast 1879 og var það ellefta
útgáfa hennar. Fyrir um það bil 80
árum fór O.R. Holmberg, landi hans,
að vinna að riti um flóru Norðurlanda,
Skandinaviens Flora, sem átti að ná
til Danmerkur, Finnlands, Noregs og
Svíþjóðar. Á árunum 1922-1931
komu út nokkur hefti hennar en höf-
undurinn lést skömmu síðar og verk-
inu var aldrei lokið.
Fyrir okkur Islendinga er áhugavert
að árið 1934 kom út flóra sem náði
yfir Island og Færeyjar, skrifuð á
ensku, heitir The Flora of Iceland and
the Faeroes og er eftir Danina C.H.
Ostenfeld og Johannes Grontved. Sá
síðari skrifaði seinna þekkt rit um
íslenskar háplöntur, The Pteridophyta
and Spermatophyta of Iceland, sem
kom út í Kaupmannahöfn 1942.
Þó þar sé ekki um venjulega flóru
að ræða er rétt að geta hins merka
verks Atlas över vaxternas utbredning
i Norden eftir Svíann Eric Hultén,
með kortum af útbreiðslu allra teg-
unda háplantna í Svíþjóð, Noregi,
Finnlandi og Danmörku, sem kom út
1950 og var svo gefið út aftur endur-
skoðað 1971. Þá er einnig ástæða til
að geta tveggja verka með teikningum
og ljósmyndum af norrænum plöntum.
Hið fyrra, Billeder af Nordens Flora
eftir Danina A. Mentz og C.H. Osten-
feld, kom út á árunum 1901—1907, en
síðan í nýrri og aukinni útgáfu 1917-
1923 og loks kom viðbótarbindi 1927.
í verkinu öllu eru litaðar teikningar af
663 tegundum háplantna í Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og á Islandi, ásamt
stuttum texta um hverja tegund og
ættirnar sem þær tilheyra. Síðara
verkið, eftir Knud Jessen og A. Mentz,
kom út í Kaupmannahöfn á íjórða ára-
tugnum og var í íjórum bindum með
litljósmyndum af 795 tegundum
háplantna í Danmörku, Finnlandi,
Islandi, Noregi og Svíþjóð og nokkru
lesmáli um þær.
Nýjasta myndaflóran, sem nær til
allra landa Norðurlanda, Den Nord-
iska Floran, er sænsk og eftir Bo
Mossberg; hún er með fallegum og vel
teiknuðum litmyndum af hverri teg-
und eftir Lennart Stenberg og út-
breiðslukortum eftir Stefan Ericsson,
og kom út í Stokkhólmi 1992. Bókin
er hin vandaðasta í alla staði og er
plöntuættum raðað niður á sama hátt
og gert er í ritinu Flóra Evrópu (Flora
Europaea), sem kom út á árunum
1964-1980. En tegundalýsingarnar eru
allar mjög stuttar, annars hefði flóran
orðið enn lengri en þær 696 blaðsíður
sem hún þó er, og ákvörðunarlykla
vantar alveg.
Margir höfðu haft áhuga á að taka
upp þráðinn eftir O.R. Holmberg og
halda áfram með Skandiviens Flora en
ekki varð af því fyrr en Svíinn Nils
Hylander tók að vinna að nýrri nor-
rænni flóru, sem náði til háplantna
Svíþjóðar, Noregs, íslands, Færeyja,
Finnlands og Danmerkur. Ritið nefndi
hann Nordisk karlvaxtflora og eftir
rúmlega tíu ára vinnu kom fyrsta
bindið út 1953, gagnmerkt rit þar sem
fjallað er ýtarlega um byrkninga og
hluta einkímblöðunga. Annað bindi
238