Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 166
það einnig í samræmi við reynsluna í sögu
félagsins. I ferðunum gætti líka áhrifa stór-
aukins ferðaframboðs á vegum annarra aðila.
Við þessari þróun þyrfti að bregðast með því
að koma reglu á útgáfu Náttúrufræðingsins
og gera efni hans alþýðlegra, a.m.k. að hluta
til. Ritstjóra tímaritsins hefði miðað vel að
koma þessu hvoru tveggja í betra horf á ár-
inu. Mikil þátttaka í ferðum félagsins væri
sem slík ekki markmið, hcldur náttúrukynn-
ingin, sem þar færi fram. Því væri rétt að
einbeina ferðum félagsins að skilvirkri kynn-
ingu á náttúrufari landsins en falla ekki í tál-
gryíju „æsiferða", þó þær drægju að fleira
fólk í svip. Full ástæða væri til að efla
almannakynningu á náttúrufræðum á lleiri
vegu.
Framkvæmdastjóri félagsins, Guttormur
Sigbjarnarson, greindi frá útgáfu á vegum
félagsins á árinu: Utgáfú Náttúrufræðingsins,
sölu á Náttúru Mývatns og undirbúningi að
útgáfu rits um villt spendýr á Islandi í sam-
vinnu við Landvemd.
Gjaldkeri félagsins, Ingólfur Einarsson,
gerði grein fyrir reikningum félagsins og
sjóða í vörslu þess. Vom reikningarnir
samþykktir einróma án athugasemda. Fram
kom að fjárhagur félagsins hefði verið og
væri nokkuð aðkrepptur vegna útgáfu
Náttúru Mývatns og langs hala á Náttúru-
fræðingnum, sem ná þyrfti Úpp. Nú væri þó
búið að Ijúka öllum gjöldum af Mývatns-
bókinni og yrðu héðan af tekjur einar af
henni. Allnokkurt fé væri einnig í sjóði til að
standa straum af hröðun á útgáfu Náttúru-
fræðingsins. Þannig séð væri Ijárhagur
félagsins traustur, þó það róði vart yfir
digrum sjóðum til stórra og nýrra átaka.
Flutt var skýrsla frá Agnari Ingólfssyni
um störf hans í Fuglafriðunamefnd. Sigurður
H. Richter, fulltrúi í Dýraverndunamefnd,
flutti skýrslu um störf í nefndinni.
Tillaga stjórnar um hækkun félagsgjalda í
3000 kr. var samþykkt einrómaenhjónagjald
var ákveðið 3600 kr.
Úr stjórn áttu að ganga Hreggviður Norð-
dahl og Sigurður S. Snorrason. Gáfu þeir
báðir kost á sér til endurkjörs, ekki komu
fram aðrartillögurog voru þcir báðir einróma
endurkjömir. Sömuleiðis voru cndurkjömir
án mótframboðs varamenn í stjóm, Einar
Egilsson og Þóra Elín Guðjónsdóttir, svo og
endurskoðendur, Magnús Ámason og
Sveinn Olafsson, og varaendurskoðandi,
Olafur Jónsson.
I upphafí fundar var í fyrsta sinn veitt
viðurkenning HIN fyrir sérstakt framlag til
almennrar kynningar á náttúrufræðum. Sú
viðurkenning var veitt Elínu Pálmadóttur,
blaðamanni, fyrir einstök greinaskrif um
náttúrufræði í Morgunblaðið um þriggja ára-
tuga skeið, en þær greinar hafa verið „samdar
af vandvirkni og þekkingu og þó á þann létta
og auðskilda hátt sem hefúr gert viðfangs-
efnið öllum aðgengilegt“, eins og formaður
tók til orða þegar hann afhenti Elínu viður-
kenningarskjal félagsins. Elín þakkaði fyrir
veitta viðurkenningu og fór nokkmm orðum
um það verkefni að kynna almenningi
náttúmfræði.
Þá lagði stjóm HIN til að þrír félagar yrðu
gerðir að heiðursfélögum fyrir mikil og
margvísleg störf í þágu félagsins, en þeir em:
Jón Jónsson, jarðfræðingur, sem m.a. mun
hafa skrifað fleiri greinar í Náttúrufræðinginn
en nokkur annar maður núlifandi; Eyþór
Einarsson, grasafræðingur, fyrrverandi for-
maður félagsins og óþreytandi fræðari á þess
vegum; Þorleifur Einarsson, jarðfræðingur,
fyrrverandi formaður félagsins og forystu-
maður um náttúmvemd. Var kjör þeirra til
heiðursfélaga samþykkt einróma með lófataki
og sæmdi formaður HIN þá síðan gullmerki
félagsins en hinir nýju heiðursfélagar
þökkuðu fyrir sig með nokkrum vel völdum
orðum.
Fundi var slitið um kl. 16.
FRÆÐSLUFUNDIR
Félagið gekkst fyrir 6 fræðslufundum á ár-
inu. Voru þeir allir haldnir í stofu 101 í
Odda, síðasta mánudag í hverjum vetrar-
mánuði, kl. 20:30, samkvæmt nærri sjö ára-
tuga gamalli hefð. Fyrirlesarar og fræðsluefni
voru sem hér segir:
27. janúar: Olafur Amalds, jarðvegsfræð-
ingur: Efnaveðmn í jarðvegi og jarðvegseyð-
ing. Fundinn sóttu 52 manns.
24. febrúar: Ágúst H. Bjamason, grasa-
fræðingur: Landnám gróðurs á Hekluhraun-
um. Fundinn sóttu 54 manns.
30. mars: Karl Gunnarsson, líffræðingur:
Þarinn í Breiðafírði. Fundinn sóttu 47 manns.
27. apríl: Magnús Sigurgeirsson, jarðfræð-
288