Samvinnan - 01.03.1926, Side 13
SAMVINNAN
7
séu hollar og hentugar fyrir þá, sem í þeim búa, hlýar og
varanlegar. Á öllum þessum sviðum koma fram margskon-
ar fyrirmyndir. þær álitlegustu þurfa að vera sem flestum
kunnar, og verða til fyrirmyndar öðrum, sem síðar byggja.
Á þennan hátt er reynsla allrar þjóðarinnar tekin til að
leysa úr vanda byggingarmálanna. Hver sem hefir eitt-
hvað að bjóða, sem sýnist vera umbót eða geta leitt til
umbótar á að fá tækifæri til að láta sitt ljós skína í þessu
tímariti.
Við erum skarnt á veg komnir með byggingar, en ef
til vill enn skemra með húsgögn og híbýlaprýði. I sveitun-
um eru víða sumpart engin húsgögn nema lítt vönduð rúm-
stæði, samanrekið matborð og koffort til að sitja á. Og
þó er þetta ekki það versta. Fátæktin hefir valdið mestu
um útlit snauðu heimilanna. En sumstaðar hefir miklu fé
verið varið í ósmekkleg húsgögn. Enn vantar alveg ís-
lenskan stíl í húsbúnað manna, stíl, sem væri mótaður
af eðli landsins, híbýlum og atvinnuháttum í kauptún-
um og til sveita.
Sömu aðferð má beita hér. Leita eftir því besta sem
hér hefir verið hugsað og gert í þessu efni, og láta mynd-
ir og lýsingar tala, eftir því sem á við um aðra hí-
býlaprýði og skraut, til dæmis með myndum sem
veggir eru skreyttir með. Sú list er nokkuð ný hér og
þess eru mörg dæmi, að menn sem hafa vel vit á góðum
skáldskap bera lítið skyn á myndir og fegurð þá sem í
þeim býr. Til ber það á myndarlegum heimilum hér á
landi, að á veggjunum hanga nauða-ómerkilegar auglýs-
ingamyndir, eða útlendir þjóðhöfðingjar, sem ekkert eiga
skylt við hugsanalíf manna hér á landi. Tilviljunin og lítt
þroskaður smekkur valda því að ómyndir þessar óprýða
veggina. Ef því verður við komið mun Samvinnan
telja sér skylt að sinna líka þessari hlið. þyrfti þar helst
það tvent að fara saman að í ritinu kæmu smámyndir af
viðurkendum listaverkum og að ódýrar en stærri myndir
af þeim fengjust nógu víða á landinu, t. d. í öllum kaup-
félögum fyrir utan búðir þæv sem áður versla með slíka