Samvinnan - 01.03.1926, Síða 14
8
S A M V 1 N N A N
hluti. Sumir kynnu að halda að slík nýbreytni leiddi til
aukinnar eyðslu, og ber því síst að neita að svo yrði. En
fyrst og fremst má mikið gera í þessum efnum með lít-
illi eyðslu, og í öðru lagi er þroskun smekksins verð nokk-
urra útgjalda.
Skáldskapur fær að svo stöddu ekki rúm í þessu
tímariti, hvað s.em síðar kann að verða. Öðru máli er að
gegna um ritfregnir. þeirra er raunar mikil þörf hér á
landi, því að markaðurinn er fullur svo út af flóir af alls
konar bókum, sem lítið erindi eiga til almennings, og sum
blöð eru svo háð á einn eða annan hátt, að frásagnir þein-a
um bækur eru ekki leiðbeinandi fyrir væntanlega kaup-
endur. þar sem gengi samvinnnnar í landinu er svo ná-
tengt menningarástandi þjóðarinnar, má segja að það geti
legið nokkuð nærri tímariti samvinnufélaganna að leið-
beina að einhverju leyti bókhneigðu fólki um bókaval.
þegar Steingrímur Jónsson, nú sýslumaður á Akur-
eyri, ritaði formála eða inngang að fyrsta hefti þessa
tímarits, fyrir nálega 10 árum, tók hann réttilega fram
þá nauðsyn félaganna, að hafa sitt eigið málgagn, því að
blöðin sem voru þá til, væru treg til að taka greinar um
kaupfélögin, síst þeim til varnar. þessi aðstaða er óbreytt
enn. Andstæðingar félaganna ráða yfir miklum blaða-
kosti, sem vinna að því að styrkja þeirra málstað. Sam-
vinnuhreyfingin þarf þessvegna jafnan að hafa blöð og
tímarit í þessu skyni, sér til varnar. Undanfarin ár hafa
verið harður baráttutími fyrir kaupfélögin og Samband-
ið. Fyrst hinn mikli vöxtur félaganna á stríðsárunum og
fyrst eftir stríðið, sem egndi mótstöðumennina til margs-
konar örþrifaráða. Síðan kom hin mikla kreppa og óvænt-
ir erfiðleikar af mörgu tægi. Á þessum árum hafa sam-
vinnumenn orðið að vera sífelt á verði móti árásum og
hættu úr öilum áttum. En þessi mikli umbreytingatími
virðist nú vera liðinn. Verkefni samvinnuhreyfingarinnar
sýnist nú um stund ekki vera fólgið í því að færa út kví-
arnar, né að nauðsyn geti talist að eyða verulegri orku til
að halda í skefjum andstæðingum, sem starfa að því að