Samvinnan - 01.03.1926, Page 49

Samvinnan - 01.03.1926, Page 49
S A M V I N N A N 43 og hagfræði. Voru það rit David Hume er beindu huga hans að þjóðmálunum. Að náminu loknu settist hann að í Edinborg og hélt þar fyrirlestra í heimspeki, réttar- fræði og þjóðfélagsvísindum. Fyrirlestrar hans vöktu mikla athygli og umræður meðal mentamanna. Efni þeirra vár hið sama og sem hann skýrði nánar síðar í bók sinni um þjóðarauðinn (The wealth of nations). Stefna hans í þjóðmálum og réttarfari mótaðist og þroskaðist á þessum árum. Náttúruréttarfræðin höfðu vakið áhuga hans fyrir frelsi einstaklings- ins. Hún var hans kærasta viðfangsefni. Fór svo mikið orð af lærdómi og hæfileikum Adams Smith, að hann var skipaður háskólakennari í heimspeki við háskólann í Ed- inborg, og gegndi hann því embætti í þrettán ár. Á þeim árum gaf hann út bók heimspekilegs efnis, er bar orðs- týr hans víða vegu. þegar hann lét af embætti hélt hann til Frakklands og dvaldi þar nokkur ár. Kynti hann sér franskar bókmentir og stjórnmál. Dvaldi hann löngum hjá bókmentafrömuðum Frakklands, þar á meðal aðal- mönnum búauðunga. Eftir að hann var horfinn heim til Englands aftur settist hann að í Kircaldy, og bjó þar um tíu ára skeið. Á þeim árum vann hann aðallega að bók sinni um þjóðarauðinn. Hann var til þessa verks færari en flestir aðrir. Frá því á háskólaárum sínum hafði hann í tómstundum sínum lagt stund á þjóðmeg- unarvísindi og hliðstæðar fræðigreinar. Enskar og fransk- ar bókmentir í þessum greinum voru honum gagnkunnar. Varð hann í Frakklandsför sinni fyrir áhrifum af búauð- ungum, ýms hugtök hagfræðinnar er honum voru ekki með öllu ljós áður, hafði hann frá þeim. Hann dvaldi lang- vistum í mestu iðnaðarborg Skotlands, Edinborg, og fann þar á verklegum sviðum mörg dæmi sínu máli til sönn- unar. Athugull og samviskusamur vildi hann láta sjón vera sögu ríkari. Fór hann víða til þess að kynna. sér verklegar framkvæmdir og gang atvinnumála. Stór- iðnaðurinn færði honum hvívetna heim sannir um það
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.