Samvinnan - 01.03.1926, Page 75
S AMVINNAN
69
þegar þingið er sett fer aðalathöfnin fram í efri deild
og konungur heldur þar ræðu. Síðan fara neðri deildar-
menn í sinn sal og kjósa forseta (Speaker). það er sér-
kennilegt fyrir Parlamentið, að forsetakosningin er ekki
flokksmál. Speaker er æfinlega endurkosinn meðan hann
gefur kost á sér, þó að andstæðingar hans komist til valda
og séu í meiri hluta. þegar forsetaskifti eru, er hinn nýi
forseti kosinn úr meiri hluta flokknum, en ætíð með sam-
þykki minni hlutans. það kemur aldrei fyrir að neinn
ágreiningur eigi sér stað um kosningu forseta. Hann er
altaf kosinn í einu hljóði.
Veldissproti þingsins (Mace) er tákn valds þess. Hann
er hinn mesti dýrgripur, settur gimsteinum, og liggur á
borðinu fyrir framan forseta meðan fundur stendur yfir,
og er borinn inn þingsalinn á undan forsetanum hvert
sinn er hann gengur til sætis síns. þegar forseti er sest-
ur 1 stólinn, og sprotinn lagður á borðið. er þingið heiiagt.
Forsetastarfið er ákaflega erfitt og vandasamt, vegna
þess hve þingsköp eru forn og margbrotin. það eru því
að eins gamlir og þaulreyndir þingmenn, sem kosnir eru.
Forsetinn er mest virti embættismaður landsins (First
Commoner in the Realm) og hefir sömu laun og hæstu
ráðherrar, og auk þess embættisbústað í þinghúsinu.
þess má igeta, að forseti tekur aldrei þátt í umræð-
um og greiðir aldrei atkvæði, nema ef atkvæði eru jöfn,
þá hefir hann úrslitaatkvæði. I síðastliðin hundrað ár,
hefir það þó varla komið fyrir, að forseti hafi greitt at-
kvæði, og gerir það líklega ekki framar.
það er talinn einn hinn vandasamasti starfi, að vera
forseti, og vald hans er mikið. Forseti ræður því meðal
annars í hvaða röð menn fá orðið, og jafnvel hvort menn
á annað borð fá að tala. þingmenn fá ekki ý1’ðið í þeirri
röð, ei þeir biðja um það, heldur eftir því, sem forseíð
þóknast. Ráðherrar og helstu menn flokkanna sitja fyrir
óþektum þingmönnum. Venjulega ráðfærir forseti sig
við tiunaðarmenn flokkanna (^Vhips) um það hverir eigi
að tala í hvert sinn, og það er venja að flokkarnir ákveða