Samvinnan - 01.03.1926, Side 79
SAMVINNAN
73
heyra undir taka þátt í umræðum. Auk þess eru stundum
skipaðar 4 manna nefndir til þess að rannsaka lítilvægi-
leg mál.
Meðferðin á „Private Bills" en alt öðru vísi. Um það
hafa verið settar miklar og margbrotnar reglur, sem hér
er ekki rúm til að lýsa, að eins skal hér sagt, að í þess-
um málum gætir nefndarstarfanna miklu meira, og þau
eru sjaldan eða aldrei gerð að flokksmálum. Minni hlut-
mn ræður hér oft eins miklu eins og stjómarflokkurinn.
þareð mörg atvinnumál heyra undir „Private Bills“ er
auðskilið að þetta hefir afskaplega þýðingu fyrir þing-
stjómarfyrirkomulagið. Flest þessi frumvörp þurfa form-
legan undirbúning, sem kosta of fjár. Er þetta gert til
til þess að hindra „spekulation“, einstakra manna og fé-
laga í atvinnumálum, sem mikið var farið að bera á. Til
dæmis með einkaleyfi, sérréttindi eða fjástyrk til einhvers
atvinnureksturs. Ef einhver sveit, borg eða félag vill fá
einhver hlunnindi frá ríkinu, þá verður það fyrst að út-
vega sér ailskonar skýrslur frá ýmsum embættismönnum
bæja- og sveitafélaga og atvinnurekendum, til þess að sýna
og sanna nytsemi málsins. því næst verður að fá stjórn-
ina til þess að leggja málið fyrir þingið. En áður en hún
gerir það, skipar hún vanalega nefnd óvilhallra, sérfróðra
manna til þess að rannsaka málið. þessar nefndir eru
vanar að drepa mestan hluta af beiðnum þeim, er fram
koma. Allan kostnað er af þessu leiðir verða umsækjend-
ur sjálfir að borga.
þessi gangur málanna er seinn og þunglamalegur, en
á þennan hátt hefir Englendingum tekist að miklu leyti,
að losa sig við þá spillingu, sem er orðin svo rótgróin hjá
flestum öðrum þjóðum, að einstök gróðabrallsfélög reyni
að nota fjárveitingavald þinganna í eiginhagsmunaskyni.
þá komum vér að því, sem er eitt hið merkilegasta
atriðið í löggj afarstarfsemi breska þingsins, því atriði,
sem er ólíkast því er tíðkast á öðrum þingum, og það er
frumkvæði mála.
Á næstum því öllum löggjafarþingum í öðrum ríkjum