Samvinnan - 01.03.1926, Síða 89
SAMVINN AN
83
stjórnin falli. Andstæðingarnir eiga jafnan á að skipa
fjölda af vel mentuðum, sjálfstæðum og stjórnhæfum
mönnurn til þess að taka við völdunum.
pess má einnig geta, að Englendingar krefjast þess
fastlega af stjórnmálaleiðtogum sínum, að þeir séu efna-
lega sjálfstæðir.
Ráðuneytið ber sameiginlega ábyrgð á gerðum ein-
stakra ráðherra, og svo auðvitað hver þeirra útaf fyrir
sig á sínum gerðum. En eftir enskum skilningi verða ráð-
iierrar ekki dæmdir fyrir embættisafglöp, nema þeir hafi
unnið eitthvert verk, sem kemur í bága við grundvallarat-
riði þingstj órnarinnai. Eyrir föðurlandssvik má auðvitað
k.æra ráðherra. Annars líta Englendingar svo á, að hinn
siðferðislegi dómur almenningsálitsins, sé nægileg refs-
ing. Landsdómur er enginn til á Englandi, en neðri deild
þingsins getur kært ráðherra fyrir efri deild þingsins,
sem svo kveður upp dóminn.
Lávarðarnir geta ekki kært ráðherra. Neðri deild ein
hefir rétt til þess.
Stjómin getur með samþykki konungs rofið þing er
henni sýnist og efnt til nýrra kosninga. þetta er mjög
títt á Englandi. þing situr sjaldan alt kjörtímabilið. þing-
rof er hin öflugasta vörn stjórnarinnar gegn yfirgangi
þingmanna. ^
þingið er einnig æðsti dómstóll Englands í fjölda-
mörgum málum. Bretar eiga engan eiginlegan hæstarétt.
þeir hafa fjölda af hliðstæðum dómstólum með einkenni-
legu sniði, sem allir eiga rót sína að rekja til hinnar sögu-
legu þróunar á löngu liðnum tímum. Allur málarekstur er
þunglamalegur og afardýrt að ná rétti sínum.
Úrskurðum flestra dómstóla má skjóta til þingsins
og er dómur þess endanlegur. Gömul ensk setning segir:
„það er hvorki leyfilegt né sæmandi, að efast um, eða
gagnrýna dóma þingsins“. þingið er í rauninni hafið yfir
alla dómstóla. Hin stolta setning Pitts eldra: „Fátækling-
urinn í hreysi sínu getur boðið öllu veldi krúnunnar byrg-
inn. þó kofinn sé kominn að hruni, rigni í gegnum þakið
6'