Samvinnan - 01.03.1928, Blaðsíða 9
SAMVINNAN
3
þekti hann manna best og hefir skrifað um hann prýði-
lega.
Mesta afrek Jóns heima í héraði var forusta hans
fyrir Kaupfélagi Þingeyinga. Hann stýrði því frá up]3-
hafi þess og meðan honum entist aldur til. Þegar ofsókn-
imar hófust á kaupfélagið, var ráðist í senn á félagið og
Jón, og var honum þá sjálfum hvergi hlíft. En þrek hans
og karlmenska gerði gæfumuninn. Mun það verða æ því
ljósara, er lengra líður, um hve mikið var bai'ist, þegar
Kaupfélag Þingeyinga varðist, og hve sigur þess var
mikill.
Jón kom á þing þrítugur, og sat hvert þing síðan
meðan hann lifði. Þingeyingar kusu hann fyrst. En síð-
ar bauð hann sig fram í Eyjafirði með Benedikt Sveins-
syni sjálfum, er mikið þótti við liggja að bjarga því kjör-
dæmi frá andstæðingunum; en eftir það var hann þing-
maður Eyfirðinga. í stjórirmálunum barðist Jón alla tíð
í fylkingarbrjósti framsóknannannanna, er þá voru, fyrst
með Jóni Sigurðssyni, en síðan Benedikt Sveinssyni. Hann
átti þátt í mörgum vandamálum, var öruggur í hverri
raun, glöggskygn og harðfylginn. Mun enginn þingmanna
hafa notið slíks trausts alþjóðar sem hann, er hann
féll frá.
Jón á Gautlöndum var mikill maður vexti, höfðing-
legur ásýndum og karlmenni, þrekmaður á sál og' líkama,
íþróttamaður á yngri árum, glímumaður ágætur, eins
og fleiri Mývetningar. Eftir hann er til einhver besta
glímulýsing, sem geymst hefir frá fyrri kynslóðum, og'
sýnir það, hve margt hann lagði á gjöi'va hönd í öllu ann-
ríkinu.
Einhverju sinni, er Jón fór til þings, sundreið hann
9 ár á leiðinni. Nú munu þær ár allar brúaðar vera. Og
ekki er hlutur hans lítill í þeim framförum, þó að hann
lifði ekki þá tíð. Hann er einn þeirra manna, sem mest
hafa rutt steinum úr vegi þjóðar sinnar, þó að grjótið í
götunni á Öxnadalsheiði yrði honum sjálfum að fjörlesti.
Helgi Hjörvar.